Fréttablaðið - 29.01.2009, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 29.01.2009, Blaðsíða 54
38 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is Popparinn Michael Jackson er að undirbúa nýjan söngleik í Banda- ríkjunum sem verður byggður á myndbandinu við lag hans Thrill- er. Að sögn fram- leiðandans James Nederlander, sem á níu leikhús á Broadway, ætlar Jackson að eiga fullan þátt í sköp- un verkefnisins. Í myndbandinu við Thriller frá árinu 1983 lék Jackson varúlf auk þess sem dansandi uppvakningar komu við sögu. Jackson tók engan þátt í gerð söngleiksins Thriller-Live sem var frumsýndur í West End í London fyrr í mánuðinum. Bróðir hans Tito mætti engu að síður á frumsýninguna. Thriller fer á Broadway Sala á dvd-diskum með breska grínhópnum Monty Python hefur aukist um tuttugu og þrjú þúsund prósent eftir að valin atriði voru sett í góðum gæðum á Youtube. „Við leyfum þér að sjá þetta allt ókeypis en við viljum eitt í stað- inn. Ekki hugsunarlaust blað- ur í athugasemdakerfinu heldur viljum við að þú kaupir mynd- irnar og sjónvarpsþættina okkar og linir þar með sorgir okkar og andstyggð yfir því að hafa látið féfletta okkur í öll þessi ár,“ eru skilaboð hópsins á Youtube. Ákallið svínvirkaði. Monty selja gríðarlega SÖLUAUKNING Monty Python í ham. MICHAEL JACKSON Íslenska heimildarmyndin From Oakland to Iceland hefur verið sett í dreifingu í Kanada. Myndin fjallar um ferðalag plötusnúðs- ins Dj Platurn (Illuga Magnús- sonar) til Íslands eftir 25 ára dvöl í Bandaríkjunum. Greint er frá því hvernig hann upplifir heima- landið og hipphoppmenninguna sömuleiðis. Myndin var sýnd á MTV-vef Skandinaívu í fimm vikur síð- asta haust og í Ríkissjónvarpinu í nóvember í fyrra. Einnig hefur hún verið sýnd í flugvélum Ice- land Express. Myndin er á ensku og tónlistin í henni er samin af Dj Platurn. Handritshöfundur og leikstjóri er Ragnhildur Magnús- dóttir, systir Illuga. DJ Platurn til Kanada DJ PLATURN From Oakland to Iceland hefur verið sett í dreifingu í Kanada. Nýbylgju- rokkbandið Yeah Yeah Yeahs er til- búið með þriðju plöt- una sína. Platan heit- ir It‘s Blitz og kemur út með vorinu. Þetta verður fyrsta skífa sveitarinnar frá árinu 2006. Hljómsveitin segir þessa nýju plötu ekki líka nokkru af því sem hún hefur gert til þessa en hljóm- ar samt eins og Yeah Yeah Yeahs. Ný plata frá Karen og kó IT‘S BLITZ Ný plata í vor. Lay Low spilaði á Café Rósenberg á þriðjudags- kvöld við góðar undirtektir. Þetta voru síðustu tónleikar hennar áður en hún hélt af stað í tónleikaferð um Evr- ópu með Emilíönu Torrini. Ferðast þær meðal annars til Belgíu, Þýskalands og Frakklands, þar sem fyrstu tónleikarnir verða haldnir í kvöld. Til að stilla síðustu strengi sína fyrir ferðina ákvað Lay Low að spila á Café Rósenberg og miðað við móttökurnar eru hún tilbúin í slaginn og rúmlega það. Lokatónar fyrir Evróputúr LAY LOW Á RÓSENBERG Lay Low, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, spilaði flest af sínum þekktustu lögum á tónleikunum. Hún held- ur nú í þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu með Emilíönu Torrini. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þær Eva Aradóttir og Berglind Ólafsdótt- ir voru brosmildar á Café Rósenberg. Óli Þór og Eygló Valdimarsdóttir létu sig ekki vanta á tónleikana. Þau Linda Björk og Axel Fannar hlust- uðu á ómþýða tóna Lay Low. Sigurborg Magnúsdóttir og Gunnar Andrésson skemmtu sér greinilega vel. „Nýsköpun og frjó hugsun er eitt af því örfáa jákvæða sem verður kreist út úr þessari kreppu. Maður finnur að nú eru gildin að breytast og öll sköpun fær loks- ins þá viðurkenningu sem hún á skilið,“ segir Andrea Róbertsdóttir, fjölmiðla- kona og mannauðsstjóri, sem hófst nýver- ið handa við að búa til handgerð hjörtu sem hafa fengið nafnið Jórunn. „Hjörtun eru virðingarvottur við Jórunni Brynj- ólfsdóttur sem rak verslun á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs þar til í fyrra, en hún lést seint á síðasta ári, 98 ára gömul. Hún átti það til að láta hjarta fylgja með í kaupbæti í versluninni og gaf vinkonu minni eitt hjarta sem hún gaf svo syni mínum í nafnaveislunni sinni,“ útskýrir Andrea sem eignaðist soninn Dreka í september. „Ekkert hjarta er eins. Ég er að endur- vinna til dæmis gardínur úr fal- legu og skrautlegu efni sem ég skreyti enn frekar með perlum, semelíusteinum, blúndum og dúlla við hvert og eitt þeirra. Handtökin úr Húsmæðraskólanum hér um árið koma sér vel núna,“ segir Andrea og brosir, en hjörtun koma í verslanir fyrstu helg- ina í febrúar og fást í Epal, Kraumi og versluninni Börn náttúrunnar. Aðspurð útilokar hún ekki að hún muni fást frek- ar við hönnun á komandi mánuðum. „Það verður svo spennandi að sjá hvert þetta tekur mig. Ég held áfram að fá útrás á einhvern hátt og hönnun er ein leiðin til þess. Svo bíður maður bara spenntur eftir að sjá hvern- ig nýja Ísland verður þegar fæðingarorlofið endar og hvaða tækifæri maður skapar sér þá.“ - ag Býr til handgerð hjörtu ENDURVINNUR GARDÍNUR Andr- ea Róbertsdóttir hefur breytt og saumað föt frá því hún man eftir sér, en hún býr nú til handgerð hjörtu úr fallega skreyttu gardínuefni og engin tvö eru eins. > HAFNAÐI PLAYBOY Leikkonan Jennifer Aniston hefur hafnað tilboði um að sitja nakin fyrir í tímaritinu Playboy. Gamli Playboy-kóngurinn Hugh Hefn- er var svo hrifinn af myndum sem birtust af Aniston í GQ á dögunum að hann bauð henni háar fjárhæðir fyrir að fækka fötum. Alls hefði An- iston getað fengið yfir hundr- að milljónir króna fyrir tiltæk- ið hefði hún haft áhuga. Léttöl PILSNER Drukkinn í 92 ár G ot t fó lk Það er ekki að ástæðulausu að sumt stenst tímans tönn. Íslendingar hafa haldið tryggð við Egils Pilsner í blíðu jafnt sem stríðu í tæpa öld, þökk sé hressandi bragði og hagstæðu verði. Endurnýjaðu kynnin við ölið sem Íslendingar hafa drukkið allar götur síðan 1917.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.