Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.01.2009, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 29.01.2009, Qupperneq 62
46 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR „Ég kom bara í gær, var eiginlega bara á landinu yfir byltingu,“ segir heimildarmyndagerðarmaðurinn Helgi Felixson sem búsettur er í Svíþjóð. Hann hefur undanfarna hundrað daga eða svo unnið að gerð heimildarmyndar um efna- hagshrunið á Íslandi. Sagan er sögð frá sjónarhóli sex einstaklinga sem upplifa hversdagsleikann hrynja á augabragði og hvernig þeir tak- ast á við þann veruleika sem blas- ir við þeim eftir þjóðargjaldþrot. „Þetta var í raun yfirþyrmandi, að fylgjast með sjálfsmynd Íslend- inga brotna og molna. Landinn fór úr því að vera málsmetandi meðal þjóðanna yfir í að verða að hálf- gerðum hundum.“ Myndinni hefur verið gefið vinnuheitið Point of no Return og hefur sænska ríkissjón- varpið þegar lýst áhuga á að sýna myndina. Þá eru þýskir framleið- endur áhugasamir og Helgi veit sem er að mynd um Ísland og íslenska efnahagshrunið á eftir að vekja mikla athygli erlendis. „Við erum hálfgerður ísbrjótur í þess- ari alþjóðlegu fjármálakreppu. Við erum aðalmálið í heimspressunni þótt ástæðurnar séu okkur ekki alveg að skapi.“ Helgi var staddur á Íslandi fyrir algjöra tilviljun þegar Geir H. Haarde bað guð að blessa þjóðina í beinni útsendingu. Hann fór til Svíþjóðar nokkrum dögum seinna en þá tóku tilfinningarnar öll völd. „Ég varð eiginlega friðlaus, mér fannst eins og ég þyrfti að vera á Íslandi og fanga þessar heitu til- finningar sem voru að brjótast um meðal þjóðarinnar,“ útskýrir Helgi. Hann bætir því við að Íslendingar hafi alltaf verið skapheitir en það hafi aðallega átt við um útvarps- þætti og heita potta. „En á þessum tímapunkti gaus eldfjallið, þjóðin vaknaði eftir að hafa verið kúguð og bæld í hundruð ára og látið allt yfir sig ganga.“ Einn af þeim sem kemur fyrir í myndinni er Sturla Jónsson, for- sprakki vörubílstjóra. Helgi tekur þó skýrt fram að hann vilji einn- ig fá sögu þeirra sem sagðir eru hafa sett Ísland á hausinn; hinna svokölluðu útrásarvíkinga. „Ef þeirra saga er ekki sögð væri það svona svipað eins og að sleppa mik- ilvægum kafla í bók, láta áhorfend- ur horfa á stillimynd.“ Helgi hefur þegar fengið jákvæð viðbrögð frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og bætir því við að hann vilji fyrst og fremst nálgast mannlegu hliðina. „Helst vildi ég bara ná þeim með nátthúfu og tebolla yfir morgunverðarborð- inu.“ Helgi er einn fremsti heimildar- myndagerðarmaður Íslands þótt nafn hans sé ekki á hvers manns vörum. Hann hefur verið að í rúm tuttugu ár en unnið flestar sínar myndir úti í Svíþjóð þar sem hann býr. Myndir hans hafa unnið til fjölmarga alþjóðlegra verðlauna en þeirra þekktust er sennilega Beneath the Stars sem vakti athygli umheimsins á bágri stöðu munað- arleysingja í Cape Town í Suður- Afríku. Áætlað er að myndin um Ísland verði frumsýnd í september á þessu ári. freyrgigja@frettabladid.is 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. planta, 6. sjúkdómur, 8. frosts- kemmd, 9. keyra, 11. kringum, 12. glaður, 14. slór, 16. nafnorð, 17. í viðbót, 18. hress, 20. ung, 21. velta. LÓÐRÉTT 1. fyrirhöfn, 3. kúgun, 4. vanhelgun, 5. angan, 7. hvasst horn, 10. maka, 13. kvk nafn, 15. greinilegur, 16. tangi, 19. nudd. LAUSN LÁRÉTT: 2. mosi, 6. ms, 8. kal, 9. aka, 11. um, 12. kátur, 14. hangs, 16. no, 17. auk, 18. ern, 20. ný, 21. snúa. LÓÐRÉTT: 1. ómak, 3. ok, 4. saurgun, 5. ilm, 7. skáhorn, 10. ata, 13. una, 15. skýr, 16. nes, 19. nú. „Ég fæ mér lýsi og djúsglas til að skola því niður. Svo er það bara kaffið. Mikið af því.“ Kolfinna Baldvinsdóttir athafnakona. HELGI FELIXSON: SÝNIR MANNLEGU HLIÐINA Á ÓGÖNGUM ÍSLENDINGA Gerir heimildarmynd um íslenska efnahagshrunið EKKERT AFTURHVARF Helgi Felixson hefur fylgst með sex einstaklingum og hvernig þeir takast á við þá atburði sem áttu sér stað fyrir rúmum hundrað dögum þegar efnahagskerfið hrundi. Sturla Jónsson er einn þeirra sem kemur við sögu í myndinni. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Einar Kárason og Þorvaldur Kristinsson. 2 Cliff Clavin. 3 11. Jónsi í Sigur Rós og kvikmyndaframleiðandinn Sig- urjón Sighvatsson verða gestgjafar í kynningarteiti sem verður haldið á heimili Sigurjóns í Los Angeles laugardaginn 25. apríl. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu verður íslensk tónlist þar kynnt fyrir áhrifafólki innan tón- listar- og kvikmyndaiðnaðarins í von um að koma henni að í bandarískum kvikmyndum og sjónvarps- þáttum. Lanette Phillips, sem er einn virtasti framleið- andi tónlistarmyndbanda í heiminum, tekur þátt í skipulagningu veislunnar. Hún kynntist Jónsa er hún var stödd hér á landi á tónlistarráðstefnunni You Are In Control og óskaði eftir því að hann tæki að sér hlutverk gestgjafans. „Ég átti fund með Jónsa í síðustu viku og hann brást vel við þessu. Hann er að lána okkur nafnið sitt til að styðja þetta verk- efni,“ segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir hjá Útón sem hefur unnið að verkefninu, sem nefnist Made in Iceland. Hún efast ekki um að Jónsi eigi eftir að standa sig vel í þessu hlutverki. „Ég á von á að hann verði mjög skemmtilegur eins og hann er alltaf í partíum. Þetta er alltaf barátta um að ná athygli og réttum „kontöktum“. Við erum mjög þakklát fyrir að hann skuli styðja við verkefnið.“ Send verða út fjögur hundruð boðskort í veisluna í byrjun apríl og er búist við að um 150 manns láti sjá sig. Líklega munu einhverjar Hollywood-stjörnur leynast þar innan um sé miðað við föngulegan vina- hóp Sigurjóns. Einnig hafa þeir Veigar Margeirsson og Atli Örvarsson, kvikmyndatónskáld í Hollywood, boðað komu sína. „Við ætlum að leggja öll tengsla- net í púkkið,“ segir Anna Hildur og vonar það besta. - fb Jónsi gestgjafi í Los Angeles LISTAMAÐURINN AÐ STÖRFUM Pacas sýnir tólf olíumálverk á Kaffi Sólon. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Þetta eru frábærir tímar fyrir listina. Það er bylting í loftinu og listamenn eiga að vera í broddi fylkingar,“ segir sjónvarps- stjarnan og kokkurinn Pacas. Hann lætur ekki sitt eftir liggja því málverkasýning hans verður opnuð á Kaffi Sólon á sunnudag- inn. „Ég sýni tólf ný olíumálverk. Þemað í sýningunni er hvernig ég sé Ísland. Þetta er náttúrulega alveg rosalega fallegt land. Uppá- haldsstaðurinn minn er Snæfells- nesið en Landmannalaugar eru líka stórkostlegur staður. Mynd- irnar mínar eru undir áhrifum frá þessum stöðum. Og fleiri stöð- um til.“ Pacas hefur sótt myndlistar- námskeið og áður haldið sýning- ar. Fyrir fimmtán árum mátti sjá málverkin hans á 22, en síðan hefur hann meðal annars sýnt á ýmsum kaffihúsum og á Vínbarn- um. Það er skammt stórra högga á milli hjá Pacasi því hann verður fimmtugur á Valentínusardegi, 14. febrúar. „Úff, þetta er ótrúlegt, hálf öld! Ég lít samt mjög vel út miðað við aldur, ekki spurning!,“ segir Pacas og hlær. „Við Beggi verðum í Smáralind um daginn með Valentínusar-prógramm, en um kvöldið verður veisla með þeim nánustu. Beggi er að skipu- leggja veisluna með vinum okkar og ég er að sjálfsögðu fjarskalega spenntur.“ - drg Fimmtugur Pacas opnar málverkasýningu JÓNSI OG LANETTE Jónsi verður gestgjafi í kynningarteiti á heimili Sigurjóns Sighvatssonar í Los Angeles í apríl. Menn hafa í fjölmiðl- um keppst við að finna líkingamál um kreppuna, efna- hagshrunið og bankagjaldþrotið. Veðurfræðihugtök á borð við efna- hagslægðir og efnahagslegt fár- viðri hafa verið vinsæl auk þess sem sjávarútvegsmálfarið hefur notið töluverðrar hylli. Hefur þar verið talað um brotsjó og þjóðarskútu. Friðrik Þór Friðriksson, leikstjóri, nýtti sér hins vegar sinn bakgrunn úr kvikmyndunum í viðtali við þýska dagblaðið Zeist þegar hann líkti íslenska efnahagnum við skrímsli Dr.Frankenstein. „Það er auðvelt að búa til skrímsli, það er erfiðara að stjórna því,“ sagði Friðrik. Íslensku bókmenntaverðlaun- in voru afhent á Bessastöðum í skugga stjórnarmyndunar og karps um vald forseta. Og var samdóma álit viðstaddra að sjaldan eða aldrei hefði verið jafn gaman á þessum verðlaunum og nú. Einar Kárason fór heim með verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir bók sína Ofsa og hafði tvöfalda ástæðu til fagna. Því sama dag tókust samningar við þýsku útgáfuna btb um að gefa bókina út á þýsku en sama forlag gaf einnig út Óvinafagnað, fyrri bók Einars um Sturlungaöldina. Ingvi Hrafn Jónsson er ánægður um þessar mundir og segir hverjum sem heyra vill að sjónvarpsstöð hans, ÍNN, sé farin að skila hagnaði. Þó stöðin sé umtalsvert minni í sniðum en Ríkissjónvarpið getur meistari ljósvakans ekki stillt sig um að stríða stóra bróður. Því fylgir það jafnan sögunni að honum gangi mun betur en Páli Magnússyni sem tapi einni milljón fyrir hádegi og annarri eftir hádegi. - fgg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI föstudagur Allt sem þú þarft föstudagur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.