Fréttablaðið - 29.01.2009, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
10.17 13.41 17.06
10.15 13.26 16.37
Í dag er fimmtudagurinn 29.
janúar, 29. dagur ársins.
Ja hérna, ný ríkisstjórn, nýtt Ísland og allar líkur á að for-
sætisráðherrann verði kona. Það
var sannarlega kominn tími til.
ÉG FAGNA ÞVÍ að kona setj-
ist loks í forsætisráðherrastól-
inn. Það eru gleðileg tímamót. En
eftir allan þann vitleysisgang sem
á undan er genginn í þjóðmálun-
um stend ég mig að svartsýni yfir
þessari nýju ríkisstjórn. Finnst
einhvern veginn að það skipti engu
máli hver fari með völdin, þetta lið
sé allt saman eins inn við beinið.
SAMFYLKINGIN tók þó loks
af skarið þegar þjóðfélagið var
við það að springa. Eitthvað
þurfti að gera og það strax. Ungir
sjálfstæðismenn hafa þó hátt um
að Samfylkingin hafi brotnað
undan álaginu og hafi ekki getað
tekist á við ástandið. Það held ég
að sé ekki satt.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
er síst skárri til að takast á við
ástandið enda ber hann í mínum
huga talsverða sök á því. Allt var
líka orðið stíflað í höndum hans.
Flokkurinn getur ekki hróflað við
valdakerfinu innan flokks vegna
hefða, hlýðni og vinatengsla, á
kostnað málefnanna sem virðast
ekki í forgangi. Egill Helgason
sagði í morgunþætti í útvarpi um
daginn eitthvað á þá leið að fólk-
ið í landinu væri orðið langþreytt
á eiginhagsmunapoti stjórnmála-
manna sem hugsuðu um það eitt
að verja sín lén og átti þar við rót-
gróið valdakerfi Sjálfstæðisflokks-
ins.
VIÐ ERUM orðin langþreytt á
þessu, sjálf er ég orðin þreytt á
öllum flokkunum, poti þeirra og
valdaklíkum sem setja sjálfar sig
ofar málefnum. Þess vegna lætur
gleðitilfinningin á sér standa þrátt
fyrir nýja stjórn, því deila má um
aðferðir Samfylkingarinnar við að
sprengja upp stjórnarsamstarfið.
Eiginhagsmunapot og valdaklíkur
koma óneitanlega upp í hugann.
ÞAÐ ER jafnvel spurning hvort
hægt er að nota orðið „ný“ um þá
ríkisstjórn sem er að myndast.
Hvort ný sýn á hlutina komi til, því
það fólk sem heldur um stjórnar-
taumana og ætlar að byggja upp
nýtt Ísland hefur svo sem setið á
ráherrastólum áður. Það verður
spennandi að sjá hverjir veljast í
hvaða embætti í nýju stjórninni og
hvort valdakerfið og lénaskipting-
in séu jafn rótgróin innan þeirra
raða eins og hjá Sjálfstæðisflokkn-
um. Þau andlit sem orðuð eru við
æðstu embættin eru sannarlega
ekki ný.
Nýtt en ekki
nýtt