Fréttablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 6
6 12. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
Útboðsþing 2009
Verklegar framkvæmdir í
mannvirkjagerð og byggingariðnaði
Árlegt útboðsþing um verklegar fram-
kvæmdir verður haldið föstudaginn
13. febrúar kl. 13.00 á Grand Hótel
Reykjavík.
Á þinginu verður gefið yfirlit yfir öll
helstu útboð opinberra aðila á verklegum
framkvæmdum. Verktökum gefst ein-
stakt tækifæri að skyggnast inn í verk-
efnaboð ársins.
Nánari upplýsingar veitir Árni Jóhanns-
son í síma 591 0100, netfang, arni@si.is
Auglýsingasími
– Mest lesið
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykjavík hefur lengi
fylgst með Catalinu Mikue Ncogo, íslenskri konu ætt-
aðri frá Miðbaugs-Gíneu, vegna rökstudds gruns um
að hún geri út vændiskonur og hagnist á því. Catal-
ina hefur verið yfirheyrð vegna málsins, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins.
DV hefur sagt frá vændisstarfsemi sem fram fer
í íbúð við Hverfisgötu 105. Þar starfi fjórar vændis-
konur. Lögregla mun einnig hafa haft til rannsóknar
meinta vændisstarfsemi á heimili Catalinu í Hafnar-
firði.
Málið ku vera eitt hið umfangsmesta sinnar teg-
undar sem íslensk lögregla hefur fengist við. Lög-
regla eigi hins vegar afar óhægt um vik að aðhafast
í málum sem þessum, þar eð vændi er einungis ólög-
legt ef þriðji aðili hagnast á því. Slíkt mansal sé nær
ómögulegt að sanna nema konurnar sjálfar fáist til
að vitna um það. Í þessu tilviki hafi þær ekki reynst
samstarfsfúsar.
Catalina, sem heimildarmaður lýsir sem slóttugri,
er grunuð um að flytja til landsins konur gagngert til
að stunda vændi. Þá er hún einnig grunuð um fleiri
afbrot af ýmsum toga og að hafa á sínum snærum
aðra afbrotamenn sér til fulltingis. Hún hlaut íslensk-
an ríkisborgararétt árið 2004, sem gerir það að verk-
um að ekki er unnt að vísa henni úr landi. - sh
Erfitt fyrir lögreglu að hafa hendur í hári meints höfuðpaurs í stóru vændismáli:
Undir smásjá vegna gruns
um að gera út gleðikonur
HÓRUHÚSIÐ Í þessu húsi er margvísleg starfsemi. Meðal ann-
ars er þar stundað vændi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGGÆSLUMÁL Lögreglumaður-
inn Bergsteinn Karlsson undir-
býr, ásamt nokkrum starfsbræðr-
um sínum, að sækja um inngöngu
í norska herinn vegna atvinnu-
leysis lögreglumanna hér. Annar
lögreglumaður, Guðlaugur Freyr
Jónsson, er á atvinnuleysisbótum.
Þeir eru báðir í hópi 32 lögreglu-
manna sem útskrifuðust úr Lög-
regluskóla ríkisins í lok síðasta
árs.
„Atvinnustaða þessa hóps er
arfaslæm, borið saman við hópana
sem útskrifuðust árin á undan,“
segir Bergsteinn. Hann er einn
af tuttugu lögreglumönnum sem
ráðnir voru tímabundið hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
í kringum mótmælin. Ráðning
þeirra rennur út um næstu mán-
aðamót og þá hætta þeir störfum,
allir sem einn, að óbreyttu.
Guðlaugur segir að 43 lögreglu-
menn hafi sótt um 22 framtíðar-
störf lögreglumanna sem auglýst
voru til umsóknar á höfuðborg-
arsvæðinu fyrir jól. Hann segist
hafa verið meðal umsækjenda en
ekkert bóli á ráðningu í stöðurn-
ar. Það vanti einfaldlega fjármagn
í rekstur lögregluembætta um land
allt. Guðlaugur kveðst hins vegar
ekki hafa haft hug á skammtíma-
ráðningunni, sem boðin var.
„Mér fannst sex vikur í vinnu
engu breyta. Ég bíð bara eftir
svari frá höfuðborgarsvæðinu,
því umsóknarfrestur rann út í lok
desember. Nú er ég bara atvinnu-
laus og á bótum.“
Bergsteinn segir allflesta ef ekki
alla í útskriftarhópnum hafa skráð
sig atvinnulausa að útskrift lokinni
og margir séu enn á atvinnuleysis-
bótum.
„Þetta er í rauninni alveg fárán-
legt,“ segir hann. „Atvinnuleysis-
bætur eru ekkert annað en laun
frá ríkinu, þannig séð. Af hverju
er ekki hægt að hliðra þessu fjár-
magni til og setja það í lögregluna.
Þá væri einstaklingurinn í starfi,
auk þess sem lögreglan fengi liðs-
auka. Ekki veitir af.“
Bergsteinn segir álagið á lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins
gríðarlegt og enn hafi það aukist
í tengslum við mótmælin. Sjálfur
hlaut hann skrámur vegna grjót-
kasts og segir bagalegt að þurfa
að yfirgefa starfið og þar með
félagastuðninginn áður en tæki-
færi gefist til að vinna úr málun-
um. Lögreglumenn séu þéttur og
góður hópur sem séu í starfinu af
lífi og sál, þrátt fyrir aðstæður.
„Við viljum vera hluti af þess-
ari heild,“ segja þeir félagar. „Við
vildum hvergi starfa annars staðar
en í íslensku lögreglunni mættum
við ráða.“ jss@frettabladid.is
Atvinnulausar löggur
sækja í norska herinn
Íslenskir lögreglumenn undirbúa að sækja um inngöngu í norska herinn þar
sem hér er enga vinnu að fá. Einn þeirra, Bergsteinn Karlsson, starfar tíma-
bundið á höfuðborgarsvæðinu. Guðlaugur F. Jónsson er á atvinnuleysisbótum.
ATVINNULEYSI Lögreglumennirnir Guðlaugur Freyr Jónsson t.v. og Bergsteinn Karls-
son eru báðir úr síðasta úrskriftarhópi Lögregluskóla ríkisins. Annar á leið í norska
herinn, hinn atvinnulaus. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FANGELSISMÁL Fjórir fangar á Litla-
Hrauni voru settir í einangrun í
fyrrakvöld vegna agabrota. Einn
þeirra kveikti í ruslafötu í klefa
sínum. Annar er grunaður um til-
raun til íkveikju. Hinir tveir hafa
verið yfirheyrðir vegna agabrota.
Fangarnir fjórir urðu uppvís-
ir að andlegu áreiti og líkamlegu
ofbeldi í garð nýs fanga sem var
að koma inn til að afplána refsingu
í fyrradag. Sá hafði verið dæmd-
ur í tíu mánaða fangelsi fyrir stór-
fellda líkamsárás.
Fangarnir fjórir sem um ræðir
voru lokaðir inni í klefum sínum
eftir að þeir höfðu orðið uppvísir
að áreiti í garð nýja fangans. Eftir
það kveikti einn þeirra í ruslaföt-
unni.
„Það er tekið á svona málum
af fullri hörku,“ segir Margrét
Frímannsdóttir, forstöðumað-
ur fangelsisins á Litla-Hrauni,
um íkveikjutilraun fangans. Hún
segir enn fremur að fangaverðir
hefðu þegar slökkt í ruslafötunni.
Slökkvilið hafi þó verið kallað á
vettvang og lögreglu gert viðvart,
sem sé vinnuregla í tilvikum sem
þessu.
Margrét segir starfsfólk Litla-
Hrauns hafa brugðist hárrétt
við og enn einu sinni komið í ljós
hversu frábærum starfsmönnum
fangelsið hafi á að skipa. - jss
Fangar á Litla-Hrauni urðu uppvísir að áreiti og ofbeldi í garð nýs fanga:
Fjórir fangar eru í einangrun
LITLA-HRAUN Hart er tekið á agabrotum
og hvers konar uppsteyt í fangelsinu,
segir forstöðumaður fangelsisins.
BRETLAND, AP Þegar hin átta ára
gamla Sophie Waller braut tönn
er hún var að borða sælgæti fór af
stað atburðarás sem endaði með
andláti hennar. Mál hennar hefur
kallað á endurbætur á heilsugæslu
barna í Bretlandi.
Stúlkan var þjökuð af sjúkleg-
um ótta við tannlækna og harðneit-
aði að opna munninn þegar læknir
ætlaði að skoða upp í hana. Hún
var því send á sjúkrahús, þar sem
allar barnatennurnar voru fjar-
lægðar. Eftir aðgerðina neitaði hún
svo mikið sem að opna munninn
til að borða. Hún var engu síður
send heim, þar sem hún dó þremur
vikum síðar úr næringarskorti. - aa
Harmleikur í Bretlandi:
Átta ára stúlka
hungurmorða
Ætti Davíð Oddsson að segja af
sér starfi seðlabankastjóra?
Já 78%
Nei 22%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telur þú að fólki eigi eftir að
fjölga á landsbyggðinni á
næstunni?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN