Fréttablaðið - 12.02.2009, Síða 25
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Kjóllinn og skórnir eru úr
Topshop en kragann keypti ég hræ-
ódýran í Claire‘s í Bandaríkjun-
um,“ segir Anna Sóley Viðarsdótt-
ir, nemi í Iðnskólanum í Reykjavík
og afgreiðslustúlka í Spúútnik og á
B5. „Reyndar er kraginn hugsað-
ur sem ballettpils á litlar stelpur
en ég ákvað að nota það bara sem
kraga,“ segir Anna Sóley og bætir
við kímin að hún hafi frá upphafi
hugsað sér pilsið þannig. „Ég ætl-
aði nú ekki að reyna að troða mér
í það hinsegin.“
Sokkarnir eru fínlegir og
skreyttir með blúndum, en þá fékk
hún á netinu. „Ég fann einhverja
búð í gegnum eBay og keypti fullt
af bæði háum og stuttum sokk-
um en ég hef mjög gaman af að
skreyta mig með sérstökum sokk-
um,“ segir hún og nefnir að fatastíl
hennar sé best lýst sem stelpuleg-
um eða dömulegum. „Ég er eigin-
lega aldrei í buxum. Síðan held ég
að ég hafi nánast fæðst á hælum.
Ég fótbrotnaði einu sinni og þá var
ég á flatbotna skóm en vona nú að
það gerist ekki aftur þar sem ég
varð að fá mér eitt flatbotna par til
að teygja á kálfavöðvunum,“ segir
hún og brosir.
Anna Sóley segist reyna að
hugsa út fyrir rammann þegar
hún klæðir sig og nýtur þess að
vera öðruvísi. „Ég reyni að sjá
möguleikana í hverri flík fyrir
sig og hef gaman af að nota föt á
annan hátt en þau voru upphaf-
lega ætluð til,“ segir hún áhuga-
söm. „Ég er mikið fatafrík og
eftir að ég fór að vinna í Spúútnik
safna ég vönduðum „vintage“-flík-
um. Þær eru einstakar og mögu-
leikarnir eru endalausir. Ég nota
til dæmis blúndupils sem sjal eða
ponsjó, smáatriðin eru oft falleg
og gaman að fötin eigi sér sögu.“
Spúútnik býður upp á kílómark-
að þessa dagana. „Þá kostar kíló
af fötum bara 3.900 krónur og því
er hægt að gera reifarkaup,“ segir
þessi hugmyndaríka stúlka.
hrefna@frettabladid.is
Fæddist líklega á hælum
Anna Sóley Viðarsdóttir hefur lengi haft áhuga á fatnaði og hönnun, enda vinnur hún í tískuversluninni
Spúútnik og stundar nám við Iðnskólann í Hafnarfirði. Hún er dömuleg í klæðaburði og oftast á hælum.
Anna Sóley notar föt
oft á hugvitssaman
hátt. Kraginn sem
hún skartar hér var til
að mynda upphaflega
hugsaður sem ballett-
pils á litlar stelpur.
fr
ét
tA
b
lA
ð
ið
/S
te
fá
n
BúSetA HeIMA - Þarfir og þjónusta við eldri
borgara er yfirskrift málþings sem verður haldið
föstudaginn 20. febrúar næstkomandi frá klukkan
13.00-16.00 á Háskólatorgi. Skráning á rbf@hi.is
fyrir 18. febrúar.
• 8 vikna byrjendanámskeið
• Ástundunartímar fyrir vana
• Námskeið fyrir eldri borgara
• Lyftingarnámskeið fyrir byrjendur og vana.
lyftingarnámskeiðin byggjast á rope Yoga, lyftingum, stöðum, fl æði-
æfi ngum, teyjum, öndunaræfi ngum og hámarksnýtingu næringar,
ásetningur næringar og matar-
prógrammi. Mjög öfl ugt námskeið, færri í hóp og 2 kennarar
6 vikna námskeið. nánari upplýsingar á heimasíðunni www.elin.is
elín Sigurðardóttir
rope Yoga Meistarakennari
Íþróttafræðingur
Rope Yoga • elin.is • Bæjarhrauni 2 • Hfj. • Sími: 696 4419
lyftinga-námskeið hefjast 16. febrúar
byrjenda-námskeiðin hefjast 2. og 3. mars
SÚKKULAÐIVAX
HAFRAVAX
SÚKKULAÐISTRIMLAR
F. ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar
TILBOÐ
2 PÖR
AF
LEÐURHÖNSKUM
4.590 KR.
YFIR 60 LITIR