Fréttablaðið - 12.02.2009, Side 32
12. FEBRÚAR 2009 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● vetrarlíf
Á næsta ári eru liðin tíu ár
síðan Heiða Birgisdóttir kynnti
til sögunnar eigin fatalínu fyrir
brettastelpur undir nafninu
Nikita.
„Brettamennska er lífsstíll sem
tengist svo miklu fleiru en bara því
að fara í fjöllin til að renna sér á
brettum í snjó. Brettafólk klæðir sig
á ákveðinn hátt og lifir eftir ákveð-
inni lífsspeki, ásamt því að skipta
sér í hópa eftir því hvernig það
klæðir sig eða rennir sér. Úr verður
fastheldin fjölskylda með traust og
heilbrigð vinabönd sem nær langt
út fyrir brekkurnar,“ segir Ásgeir
Höskuldsson, markaðsstjóri Nikita,
sem nú kallar eftir myndum og
hvers kyns aðsendu efni frá bretta-
stelpum um víða veröld. Tilefnið er
tíu ára afmæli Nikita og bók sem út
kemur í lok árs af því tilefni. Bókin
hefur hlotið nafnið Sideway Sistas:
The Story of Girls Who Ride en þar
verður lífsstíl Nikita-stúlkunnar
fagnað, ásamt því sem saga Heiðu
í Nikita verður sögð.
„Bókin er nú í startholunum og
við farin að fá sent efni úr öllum
áttum, en Þórdís Claessen hönn-
uður tekur til við að setja bókina
saman í sumarbyrjun,“ segir Geiri
sem vill glaður sjá sem fjölbreytt-
ast efni frá brettastelpum heimsins,
ekki síst þeim íslensku.
„Allt efni er velkomið, hvort sem
það eru uppskriftir, ljóð eða annað,
því við viljum fá stelpur til að skapa
sem mest og höfum oft haldið hinar
ýmsu keppnir í nafni Nikita til að
ýta undir sköpunargáfu stelpna og
leyfa þeim að taka þátt í því sem við
erum að gera.“
Geiri segir brettaíþróttina frá-
brugðna öðrum íþróttagreinum
sem oftar en ekki hafa yfir sér fast-
mótaðra form þar sem fólk mætir
á reglulegar æfingar með þjálfara.
„Í fjöllunum eru það vinahópar sem
hvetja sína liðsmenn og halda hóp-
inn þess fyrir utan. Einmitt þess
vegna var Nikita stofnað; til að geta
haldið áfram að lifa og hrærast í
brettamennskunni og færa stelp-
um flott föt til að klæðast við hin
ýmsu tilefni.“
Frestur til að senda inn myndir
og efni vegna tíu ára afmælisbókar
Nikita er til 30. apríl. Nánari upp-
lýsingar er að finna á vefsíðunni
www. nikitaclothing.com. - þlg
Stórafmælisbók Nikita
Hér sýnir bandaríska brettastúlkan Maribeth Swetkoff kúnstir sínar á bretti í fatnaði
frá Nikita, en stúlkurnar hér eru allar atvinnumenn í fremstu röð. MYND/JOHN WEBSTER
Jordie Karlinski í stuði á handriði.
MYND/DANIEL BLOM
Ótrúleg Magalie Dubois frá Kanada.
MYND/DANIEL BLOM
Nú viðrar vel til útivistar. Vetrar-
íþróttir eins og vélsleðaakstur
eru vinsælar en nauðsynlegt er að
fara varlega. Birkir Sigurðsson,
vélsleðamaður á Akureyri, situr
í stjórn Landssambands íslenskra
vélsleðamanna. Hann segir öflugt
starf fara fram innan félagsins,
sem stendur fyrir vélsleðaferðum
og námskeiðum í akstri og öryggis-
málum.
„Á námskeiðunum hjá okkur
er gríðarlega mikið lagt upp úr
öryggisþáttum, bæði öryggisbún-
aði og svo háttalagi á fjöllum,“ út-
skýrir Birkir. „Í dag huga menn
meira að öryggi en áður. Einu sinni
notuðu menn bara hjálm en nú fer
enginn á vélsleða án þess að nota
hjálm, brynju og alvöruskó sem
veita vörn gegn kulda og áverk-
um. Snjóflóðaýla er líka öryggis-
tæki sem allir ættu að nota.“
Miðað er við bílprófsaldur til að
aka vélsleða og þá getur fólk geng-
ið í félagið. Meðlimir eru hátt á ní-
unda hundrað og veitir aðild að
félaginu aðgang að bæði fræðslu
og líflegu félagslífi.
„Á landsmótið í Kerlingarfjöll-
um, sem haldið er í mars, mæta
hátt í 200 manns svo starfið er
mjög fjörugt. Ferðir á vegum fé-
lagsins eru alltaf undir öruggri far-
arstjórn, bæði dagsferðir og lengri
ferðir.“ Á heimasíðunni www.liv.is
er að finna upplýsingar um dagskrá
vetrarins, öryggismál og fleira. En
hvað er það sem heillar við vél-
sleðaakstur um hálendið?
„Númer eitt, tvö og þrjú er að
upplifa náttúruna á einstakan
hátt. Að komast yfir þvert landið
á nokkrum klukkutímum er ein-
stök upplifun.“ - rat
Áhersla á öryggi og fræðslu
Vélsleðamenn í Kerlingarfjöllum. Aðild að Landssambandi vélsleðamanna veitir aðgang að líflegu félagslífi og fræðslu.
MYND/BIRKIR SIGURÐSSON
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is