Fréttablaðið - 12.02.2009, Side 47
FIMMTUDAGUR 12. febrúar 2009 31
Í síðustu viku hlaut Sofi Oksanen
Runeberg bókmenntaverðlaunin
fyrir skáldsögu sína Puhdistus
(Hreinsun). Það fréttnæma við
verðlaunaveitinguna var að Sofi
hafði áður hlotið virtustu bók-
menntaverðlaun Finna fyrir sömu
bók, Finlandiaverðlaunin, og er
þetta í fyrsta sinn sem sama skáld-
verk hlýtur bæði þessi eftirsóttu
bókmenntaverðlaun. Puhdistus
hefur þar að auki fengið Christina-
verðlaunin sem Háskólinn í Hels-
inki veitir, Mika Waltari-verðlaun-
in, Finnsku bókaklúbbsverðlaunin,
Kalevi Jäntti verðlaunin og Varjo-
Finlandia verðlaunin. Er ekki
talið ólíklegt að hún muni keppa
um Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs að ári. Enn hefur bókin
bara komið út á finnsku en þegar
hefur verið samið um útgáfu henn-
ar á 17 tungumálum, þar á meðal
ensku, frönsku, spænsku, þýsku og
öllum Norðurlandamálum. Mál og
menning hefur tryggt sér útgáfu-
rétt bókarinnar á íslensku.
Puhdistus er þriðja skáldsaga
Sofi Oksanen (f. 1977). Hún var
tilnefnd til Runeberg-verðlaun-
anna fyrir þá fyrstu, Kýr Stalíns
(2003), sem vakti hörð viðbrögð
og deilur í Finnlandi vegna hápól-
itísks efnis og ögrandi efnistaka.
Puhdistus var upprunalega leik-
rit, enda er Sofi leikhúsfræðing-
ur að mennt, en persónurnar héldu
áfram að trufla höfundinn þangað
til þær höfðu fengið inni í skáld-
sögu. Puhd istus er þegar orðin
metsölubók í heimalandinu og ver-
öldin bíður.
Puhdistus gerist í Eistlandi á
tveimur tímaskeiðum, um 1940
og 1990, og segir sögu tveggja
kvenna af ólíkum kynslóðum. Þær
kynnast þegar sú yngri, Zara, flýr
undan ofbeldisfullum eiginmanni
á náðir þeirrar eldri, Aliidu Truu,
sem býr í afskekktri sveit. Zara
er illa skemmd af óblíðri reynslu
sem ánauðug vændiskona í Þýska-
landi, og Aliida á sjálf skugga-
lega fortíð því hún sveik það sem
henni var heilagast þegar Rússar
lögðu Eistland undir sig árið 1940.
Smám saman koma í ljós óvænt
tengsl milli þessara tveggja ólíku
kvenna, tilfinningaleg og söguleg .
- pbb
Saga Sofi þýdd á íslensku
BÓKMENNTIR Sofi Oksinen er aðeins 32 ára að aldri en er á örskömmum tíma orðin
virtur höfundur í Finnlandi.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 12. febrúar 2009
➜ Fyrirlestrar
17.00 Leó Kristjánsson flytur erind-
ið: „Silfurberg - áhrifamikil afurð frá
Íslandi“ í húsakynnum Reykjavíkur-
Akademíunnar í JL-húsinu við Hring-
braut 121. Allir velkomnir.
17.15 Auður Haralds flytur fyrirlestur
um húmor og fyndni í Bókasafni Kópa-
vogs, Hamraborg 6a. Allir velkomnir.
20.00 Ásdís Bergþórsdóttir, kerfis-
fræðingur og krossgátuhöfundur flytur
erindið: „Krossgátur: Alls ekki staðlausir
stafir“ hjá Félagi íslenskra fræða í húsi
Sögufélags við Fischersund. Allir vel-
komnir.
20.00 Guðmundur Oddur Magnús-
son fjallar um táknmál stjórnmála á
veggspjöldum, ljósmyndum og merkj-
um í Listasafni Reykjavíkur við Tryggva-
götu. Allir velkomnir.
➜ Tónleikar
20.00 Fimmtudagsforleikur í Hinu
húsinu við Pósthússtræti. Fram koma:
Whale vs. Elephant, Heiða Dóra og
Daniel Jón. Allir 16 ára og eldri vel-
komnir, aðgangur ókeypis.
➜ Sýningar
Í tilefni af opnun textílsýningar í Gerðar-
safni eru til sýnis í Kópavogskirkju fjórir
höklar eftir listakonuna Sigrúnu Jóns-
dóttir. Höklana er hægt að sjá virka
daga milli kl. 10.30-13.
➜ Tónlist
Myrkir músíkdagar 6-13. febrúar. Nán-
ari upplýsingar á www.listir.is/myrkir
12.15 Söngnemar Listaháskóla
Íslands í Sölvhól í sal LHÍ við Sölvhóls-
götu.
20.00 Sinfóníuhljómsveit Íslands í
Háskólabíói við Hagatorg.
➜ Pub Quiz
20.00 Ágúst Bogason stjórnar Pub
Quiz á Dillon Sportbar, Trönuhrauni 10,
Hafnarfirði. Tilboð á barnum og frítt í
pool í febrúar. Aðgangur ókeypis. Nán-
ari upplýsingar á www.dillon.is
Thomas Bredsdorff, einn virtasti
bókmenntagagnrýnandi Dana,
hrósar Blysförum Sigurbjargar
Þrastardóttur í hástert í gagn-
rýni í Politiken í síðustu viku.
Gengur Thomas svo langt að telja
hana koma alvarlega til greina
sem þega Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Blysfarir hefur
hann lesið í sænskri þýðingu.
Hann segir ljóðheim hennar í
verkinu einangraðan og telur
hana eiga meira sammerkt með
bandarískum kvenskáldum en
kynsystrum hennar á skáldabekk
Norðurlanda. „Men dette er poesi
af meget høj kvalitet og derfor
mere rammende beskrevet med
endnu et udtryk hentet fra digt-
ene, »litterær smerteforskning«.
Sådan som i disse maksimalt ind-
dampede tekster føles det, når
det gør ondt,“ segir hann.
Þá er bara að sjá hvort Tómas
reynist sannspár.
Sigurbjörgu
hrósað
Bergstaðastræti 37 s. 552 5700 holt@holt.is www.holt.is
FORRÉTTIR
Saltfiskbollur og dill Aioli í salatlaup
Brasseraðir folaldaskankar „Oriental“ í opnu ravíolí
Innbökuð gæsalæri í smjördeigi umlukin íslenskum aðalbláberjum
Ekta frönsk lauksúpa að hætti Parísarbúa
AÐALRÉTTIR
Steikt klaustursbleikja, sveppir og beikon í döðlum
ásamt flauelismjúkum kartöflum
Gufusoðin lúða á pottaelduðu grænmeti í engiferkrydduðu soði
Íslenskar sjávarafurðir og kanadískur humar
í humarsósu að hætti „Fernand Point“
Dádýrasteik ásamt kremuðum villisveppum,
steiktum kartöflum og rauðvínssósu
EFTIRRÉTTUR
Kirsuber í eigin safa ásamt vanilluís og vöfflu
Crème Brûlée
Gallery Restaurant
býður 15% afslátt
af matseðli, a la carte,
öll kvöld vikunnar.
Gallery Restaurant,
Hótel Holti, státar af einstökum
hópi fagmanna sem töfra fram
ómótstæðilega málsverði í anda
hins franska eldhúss þar sem lögð
er áhersla á íslenskt hráefni.
Borðapantanir í síma 552 5700 og á gallery@holt.is
Opið alla daga í hádeginu og á kvöldin.
B HÓTEL HOLT A
HÁDEGISSEÐILL &
TILBOÐSKVÖLDSEÐILL
SUNNUDAGA/MÁNUDAGA/ÞRIÐJUDAGA
Verð á tilboðskvöldseðli:
Þriggja rétta matseðill á aðeins 4.200 kr.
Verð á hádegisseðli: Frá 1.980 kr.
LEIKHÚSMATSEÐILL
Leikhúsmatseðill er framreiddur frá kl. 18-20
alla daga vikunnar og er í boði fyrir alla matargesti.
Borðapantanir til kl. 19.
Gufusoðin Klausturbleikja með sveppum og beikoni
ásamt döðlugljáa
Steikt dádýr eða fersk smálúða, sellerírótarflauel
og rauðvínssósa
Hálfbökuð karamellukaka og vanilluís
Verð aðeins 4.990 kr.
BOMBAY 2 FYRIR 1
Bombay-kvöld alla fimmtudaga í febrúar.
Tveir fyrir einn af öllum Bombay-drykkjum.
Öl á aðeins 399 kr.
FJÖLSKYLDUBOÐ
LAMBALÆRI & BÉARNAISE
Yndisleg fjölskylduhádegi um helgar
og sunnudagskvöld
Hefðbundinn hádegisseðill ásamt lambalæri og Béarnaise-sósu.
Börn yngri en 12 ára borða á hálfvirði og þau allra minnstu fá frítt.
Allir krakkar fá að heimsækja eldhúsið og velja sér ís.
Nú er gaman á Hótel Holti. Bombay-kvöld öll fimmtudagskvöld. Leikhúsmatseðillinn okkar hefur slegið
rækilega í gegn og nú gerum við enn betur og bjóðum þriggja rétta tilboðsmatseðla í hádeginu og á kvöldin.
Um helgar bjóðum við alla fjölskylduna velkomna í gourmet lambalæri og Béarnaise.
Verið hjartanlega velkomin,
starfsfólk Hótel Holts, Gallery Restaurant.