Fréttablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 52
12. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
20% verðlækkun
SOTHYS Total Cohesion. Vinsælasta 24 stunda kremið frá Sothys.
Þéttir og styrkir frymisgrind frumanna, sem gerir það að verkum að
húðin endurnýjast. 5.249 kr. 4.199 kr.
20% verðlækkun
CLINIQUE Superdefence. Mest selda rakakremið frá Clinique.
Ofnæmisprófað og 100% ilmefnalaust. 6.739 kr. 5.391 kr.
20% verðlækkun
CLARINS 24 stunda krem. Söluhæsta 24 stunda kremið frá Clarins.
Ver húðina gegn kulda og stuðlar að rakajafnvægi.
6.829 kr. 5.463 kr.
Gildir út febrúar 2009
Veitingastaðurinn Dill verð-
ur opnaður í kvöld í gömlu
kaffiteríu Norræna hússins
en þar munu Gunnar Karl
Gíslason matreiðslumaður
og Ólafur Örn Ólafsson
elda í anda hins svokall-
aða ný-norræna eldhúss.
Forstöðumaður Norræna
hússins, Max Dager, seg-
ir að ákvörðun hafi verið
tekin um að opna fínni
veitingastað í húsinu eftir
að Háskólatorg fór að leysa
kaffiteríuna af hólmi með
ódýrum málsverðum.
„Við höfum undirbúið fastagest-
ina okkar og sagt þeim frá þess-
um breytingum. Þeir eru flestir
mjög spenntir,“ segir Max Dager
um breytingar á veitingasölu Nor-
ræna hússins. „Þetta ný-norræna
eldhús, sem Gunnar Karl Gísla-
son hefur fengið viðurkenningu
fyrir, hefur verið okkur í Norræna
húsinu hugleikið lengi. Nú þegar
Háskólatorg var opnað og fór að
bjóða upp á ódýrari málsverði en
við gátum boðið, var ákveðið að
láta slag standa og fara út í breyt-
ingar á veitingasalnum. Þannig
var þetta hugmynd sem var bæði
búin að vera að gerjast hjá okkur
í Norræna húsinu sem og Gunnari
Karli.“
Max Dager gerir sér hugmynd-
ir um að staðurinn geti orðið eins
konar „Noma“ Íslands, en sá stað-
ur í Kaupmannahöfn er af mörg-
um talinn besti veitingastaður
Norður-Evrópu. „Við erum þarna
með heimsklassa hönnun Alvars
Aalto og húsgögn og svo höfum við
aðgang að einu besta hráefni ver-
aldar, fiski og öðru. Boðið verður
upp á aðeins dýrari mat en að sama
skapi hágæða framleiðslu. Gestir
staðarins geta svo gengið að blöð-
unum sínum frammi á gangi, en
þangað verður blaðagrindin færð
og sófum komið fyrir.“
Hanna Stína Ólafsdóttir inn-
anhússarkitekt, sem hefur meðal
annars unnið fyrir Björgólf Thor
Björgólfsson og Novator, sá um að
taka salinn í gegn og segir að hús-
gögnum Alvars Aalto hafi verið
haldið sem og lömpum og unnið
hafi verið í samráði við húsafrið-
unarnefnd að breytingunum. „Eld-
húsið og kaffisöluveggurinn sem
snýr út í sal er það eina sem ekki
var friðað þarna svo að við rifum
þar allt út og hönnuðum nýjan vegg
þar sem er eins konar skuggamynd
af hönnun Aaltos. Veggurinn er lát-
inn líkja eftir þeim rimlum sem sjá
má víðs vegar um húsið, nema að
ákveðið var að hvít-sprautulakka
rimlana.“
Gunnar Karl Gíslason segir að
Dill muni opna klukkan 11 fyrir
hádegismat, verða opinn til fjögur
og svo verði opnað aftur um kvöld-
matarleytið. Til að byrja með verði
einungis opið á fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöldum.
Max Dieger bætir við að lokum
að einnig sé á dagskrá að opna
jafnvel litla búð í Norræna hús-
inu þar sem hægt verði að kaupa
íslenska framleiðslu, svo sem ost
og sultu. juliam@frettabladid.is
Hágæða veitingastaður
opnaður í Norræna húsinu
URÐU AÐ FARA VARLEGA INNAN UM AALTO Gunnar Karl Gíslason og Ólafur Örn
Ólafsson standa á bak við nýjan veitingastað, Dill, í Norræna húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
The Curious Case of Benjamin
Button er saga mun mann sem eld-
ist afturábak, það er fæðist á gam-
als aldri og endar líf sitt ungur.
Myndin hefst í New Orleans árið
1918, þegar Benjamin Button fæð-
ist með einkenni níræðs manns,
hrukkóttur og með liðagigt. Móð-
irin lætur lífið af barnsförum og
faðirinn skilur hann eftir á tröpp-
um elliheimilis þar sem vinnu-
kona tekur Benjamin í sína umsjá
og elur hann upp.
Á heimilinu kynnist hann stúlk-
unni Daisy, sem verður framtíð-
arástin hans. Eftir að hafa vaxið
úr grasi og lítur þá út sem maður
á sjötugsaldri, kveður Benjamin
heimilið og við tekur einstakt lífs-
hlaup hans. Hann hefur störf á
dráttarbáti, á í ástarsambandi,
kynnist síðari heimsstyrjöldinni og
eltist síðast en ekki síst við Daisy.
Á sama tíma yngist Benjamin með
degi hverjum og er sagan rakin allt
að endalokum hans.
Þetta er svo sannarlega metnað-
arfull mynd. Á nærri því þremur
tímum fjallar hún um ástina, ell-
ina, dauðann og tímans rás og það á
mjög ljóðrænan máta. Efniviðurinn
er mjög frábrugðinn fyrri verkum
leikstjórans Davids Fincher, sem er
þekktastur fyrir Fight Club, Seven
og Zodiac. Þótt sagan sé byggð á
einkar furðulegri hugmynd er hún
sett fram á hefðbundinn hátt.
Myndin er vel leikin af Brad Pitt,
Cate Blanchett, Tildu Swinton og
fleirum. Pitt fær hins vegar að
víkja fyrir tækninni fyrsta klukku-
tímann eða svo, þegar persóna hans
er algjörlega tölvugerð og það með
ótrúlegum árangri. Undir lokin er
Pitt svo yngdur óaðfinnanlega og
Blanchett gerð eldri.
Myndin geldur óneitanlega fyrir
það að sagan skyggnist mjög tak-
markað inn í hugarheim og tilfinn-
ingar aðalpersónunnar. Hún hefði
átt að skilja mikið meira eftir sig,
þegar öllu er á botninn hvolft, en
þrátt fyrir það er þetta virkilega
vönduð og áhugaverð mynd sem er
vel að öllum Óskarstilnefningunum
komin. Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.is
Maðurinn sem fæddist gamall
KVIKMYNDIR
The Curious Case of Benjamin
Button
Leikstjórn: David Fincher.
Aðalhlutverk: Brad Pitt, Cate
Blanchett, Tilda Swinton.
★★★★
Metnaðarfull stórmynd með flottum
leikurum. Myndin geldur fyrir að ekki
er skyggnst nóg inn í hugarheim
aðalpersónunnar.
„Mig langar að hanna föt sem
dásama vöxt kvenna, hvernig sem
hann er. Ég veit hvað virkar þegar
þú ert með ávalar línur.“
LEIKKONAN JESSICA SIMPSON
Tjáir sig um nýja fatalínu sem hún ætlar að koma í
framleiðslu.
„Ég var algjörlega eyði-
lagður þegar ég heyrði
þetta. Ég myndi gera
allt til að hjálpa
henni í hvaða
kringumstæð-
um sem er.“
RAPPARINN
KANYE WEST
Um fregnir af
árás Chris Brown
á kærustu sína,
söngkonuna
Rihanna.
„Því eldri sem þú verður þeim mun
áhugaverðari verða hlutverkin. Ef þú
heldur að það sé frelsandi að verða fer-
tug bíddu þar til þú verður fimmtug.“
LEIKKONAN MICHELLE PFEIFFER
Ræðir um nýjustu mynd sína Cheri sem
fjallar um ástarsamband eldri konu við
mun yngri mann.
folk@frettabladid.is