Fréttablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 56
40 12. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Haukamenn voru sigursælir þegar tilkynnt var val á bestu
leikmönnum N1-deildanna í umferðum 8-14. Haukaleik-
mennirnir Ramune Pekarskyte og Freyr Brynjarsson voru
valdir bestu leikmennirnir og Aron Kristjánsson besti
þjálfarinn í N1-deild karla.
„Þetta kom skemmtilega á óvart. Ég vissi það
ekki fyrir að ég myndi vinna þetta. Hélt ég væri
bara að taka við verðlaunum sem hornamaður
umferðanna,“ sagði Freyr Brynjarsson nokkuð
kátur en heyra mátti að honum þótti vænt um
viðurkenninguna.
„Jú, ég tel mig alveg vera ágætlega að þessu
kominn. Liðið hefur náttúrulega verið að
spila vel og það hjálpar. Ég er kannski ekki
alltaf markahæstur en hef verið að spila vel í
vörninni líka og er bara sáttur við mína spila-
mennsku,“ sagði Freyr og bætti við að honum
þætti í góðu lagi ef það væri líka valinn besti
varnarmaður umferðanna í þessu uppgjörshófi
sem HSÍ og N1 standa fyrir. Freyr er uppalinn Valsmaður en hætti að
spila með þeim fyrir nokkrum árum. Hann hætti reyndar að
spila handbolta í stuttan tíma í kjölfarið en var fljótur að
snúa til baka.
„Þannig var mál með vexti að ég flutti til Grindavíkur þar
sem mér bauðst vinna. Ég vildi þrátt fyrir það halda áfram
að spila með Val en Valsmenn voru ekki tilbúnir að koma
eins mikið til móts við mig og ég taldi vera eðlilegt.
Úr varð að ég hætti að spila með Valsmönnum og
hætti í handbolta í tvær vikur. Nokkur lið höfðu
síðan samband við mig og ég ákvað að velja
Hauka sem er val sem ég sé svo sannarlega ekki
eftir. Ég ber samt engan kala til Vals þrátt fyrir
þetta. Þykir vænt um félagið og verð alltaf mikill
Valsmaður,“ sagði Freyr.
Freyr hefur verið afar vaxandi leikmaður á síðustu
árum. „Ég fékk traust hjá Aroni þjálfara til að gera
mín mistök og vinna mig inn í liðið. Ég hef nýtt það vel
og bætt mig stöðugt.“
ÚRVALSLIÐ N1-DEILDAR KARLA: ARON BESTI ÞJÁLFARINN OG FREYR BRYNJARSSON BESTI LEIKMAÐURINN
Þetta val kom mér skemmtilega á óvart
N1-DEILDIRNAR
Úrvalslið karla - umferðir 8-14
Birkir Ívar Guðmundsson Haukar
Haraldur Þorvarðarson Fram
Freyr Brynjarsson Haukar
Sigurbergur Sveinsson Haukar
Valdimar Þórsson HK
Rúnar Kárason Fram
Arnór Gunnarsson Valur
Besti leikmaður: Freyr Brynjarsson
Besti þjálfari: Aron Kristjánsson, Hau.
Besta umgjörð: FH
Úrvalslið kvenna - umferðir 8-14
Florentina Stanciu Stjarnan
Nína Björk Arnfinnsdóttir Haukar
Dagný Skúladóttir Valur
Ramune Pekarskyte Haukar
Ragnhildur Guðmundsdóttir FH
Alina Petrache Stjarnan
Hanna Guðrún Stefánsdóttir Haukar
Besti leikmaður: Ramune Pekarskyte
Besti þjálfari: Atli Hilmarsson, Stjarn.
Besta umgjörð: Valur
Bestu dómarar beggja deilda: Anton G.
Pálsson og Hlynur Leifsson
HANDBOLTI Stórskyttan Ramune
Pekarskyte var valin besti leik-
maður N1-deildar kvenna í
umferðum 8-14.
Ramune hefur farið mikinn í
toppliði Hauka í deildinni og átt
hvern stórleikinn á fætur öðrum.
Atli Hilmarsson, þjálfari
Stjörnunnar, var valinn besti
þjálfarinn en Stjörnuliðið hefur
sýnt mikinn stíganda frá því að
hann tók við liðinu af Ragnari
Hermannsyni. - hbg
N1-deild kvenna:
Ramune og Atli
valin best
ATLI OG RAMUNE Ánægð með viður-
kenningar sínar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Undankeppni HM:
Malta-Albanía 0-0
San Marínó-Norður-Írland 0-3
Írland-Georgía 2-1
0-1 Iashvili (1,), 1-1 Robbie Keane, víti (73.), 2-1
Keane (78.)
Vináttulandsleikir:
Liechtenstein-Ísland 0-2
0-1 Arnór Smárason (28.), 0-2 Eiður Smári
Guðjohnsen (47.).
Ísrael-Ungverjaland 1-0
1-0 Yossi Benayoun (76.).
Pólland-Wales 1-0
1-0 Guerreiro Roger (80.)
Tyrkland-Fílabeinsströndin 1-1
1-0 Unal (11.), 1-1 Didier Drogba (90.).
Rúmenía-Króatía 1-2
1-0 Marica Ciprian (22.), 1-1 Ivan Rakitic (29.),
1-2 Kranjcar (75.).
Grikkland-Danmörk 1-1
0-1 Jonas Borring (49.), 1-1 Theofanis Gekas (61.)
Austurríki-Svíþjóð 0-2
0-1 Rasmus Elm (58.), 0-2 Kim Källström(63.)
Þýskaland-Noregur 0-1
0-1 Christian Grindheim (63.). Norðmenn unnu
sinn fyrsta leik undir stjórn Egil „Drillo“ Olsen.
Sviss-Búlgaría 1-1
0-1 Ivelin Popov (34.), 1-1 Benjamin Huggel (45.)
Túnis-Holland 1-1
0-1 Huntelaar (62.), 1-1 Saihi (66.)
Frakkland-Argentína 0-2
0-1 Gutierrez (41.) , 0-2 Lionel Messi (83.)
1. deild karla:
Grótta-Selfoss 32-31 (15-16)
Mörk Gróttu: Finnur Ingi Stefánsson 13, Jóhann
Gísli Jóhannesson 5, Atli Rúnar Steinþórsson 5,
Brynjar Árnason 4, Zoltan Belany 3, Arnar
Freyr Theódórsson 2.
Mörk Selfoss: Atli Kristinsson 9, Guðmundur Á.
Ólafsson 8, Helgi Héðinsson 5, Halldór S. Har
aldsson 4, Bjarki M. Elísson 2, Óskar Pétursson 2,
Ragnar Jóhannsson 1.
Finnur Ingi Stefánsson skoraði sigurmarkið úr
vítakasti eftir að leiktíminn var liðinn. Metfjöldi
áhorfenda var á leiknum, en 893 áhorfendur
studdu bæði liðin sem hafa nú spilað tvo
hnífjafna leiki á innan við viku.
Stig efstu liða: Grótta 28, ÍR 24, Selfoss 24, Aftur
elding 20, Haukar (b) 18.
IE-deild kvenna (B):
Valur-Grindavík 58-61 (38-30)
Stig Vals: Signý Hermannsdóttir 22 (12 frák., 7
varin), Þórunn Bjarnadóttir 11 (11 frák., 8 stoðs.,
4 stolnir), Bernadett Toplak 10, Berglind Ingv
arsdóttir 7, Kristín Óladóttir 4, Ösp Jóhannsdóttir
2, Kristjana Magnúsdóttir 2 (7 frák.)
Stig Grindavíkur: Petrúnella Skúladóttir 18 (15
stig í seinni, 5 stolnir), Ólöf Helga Pálsdóttir 14 (4
stolnir), Íris Sverrisdóttir 12 (8 stoðs., 4 stolnir),
Ingibjörg Jakobsdóttir 9, Lilja Ósk Sigmarsdóttir
2, Berglind Anna Magnúsdóttir 2, Jovana Lilja
Stefándóttir 2, Helga Hallgrímsdóttir 2.
Staða: Valur 18, Grindavík 14, Snæfell 8, Fjölnir 2.
Bandaríska háskólakarfan:
TCU-UNLV 75-46
Helena Sverrisdóttir var með 16 stig, 10 stoð-
sendingar, 5 fráköst og 5 stolna bolta. Önnur
stoðsending hennar var númer 200 fyrir TCU.
Þýski handboltinn:
Wetzlar-Lemgo 24-29
Vignir Svavarsson skoraði eitt mark en Logi
Geirsson klikkaði á öllum sex skotum sínum.
ÚRSLIT
> Ramune ekki með gegn Stjörnunni
Haukar verða án stórskyttunnar Ramune Pekarskyte á
laugardaginn er þeir taka á móti Stjörnunni í undan-
úrslitum Eimskipsbikarsins. Ramune fékk að líta rauða
spjaldið í deildarleik Stjörnunnar og Hauka á dögunum
og stendur spjaldið. Það þarf vart að fjölyrða um hversu
mikill missir þetta er fyrir Hauka sem vildu að rauða
spjaldið yrði dregið til baka. Í dómi aganefndar er tekið
fram að það sé ekki á hennar borði að endurskoða
ákvarðanir dómara heldur ákveða viðurlög við þeim
refsingum sem dómarar beita.
Bifreiðaeigendur athugið!
Tímareimaskipti.
Bremsuviðgerðir.
Kúpplingsviðgerðir.
Smurþjónusta.
Tímapantanir í síma
5355826
FÓTBOLTI Það er góður gangur á
íslenska landsliðinu þessi misserin
undir stjórn Ólafs Jóhannessonar.
Liðið vinnur hvern leikinn á fætur
öðrum og dvergríkið Liechteinstein
var engin fyrirstaða í gær. 2-0 sigur
með mörkum hins tvítuga Arnórs
Smárasonar, sem lék einn í fremstu
víglínu, og Eiðs Smára Guðjohn-
sens. Mark Eiðs Smára glæsilegt
enda beint úr aukaspyrnu.
„Ég er verulega sáttur enda var
þetta fínn leikur hjá okkur. Við
stjórnuðum leiknum frá a til ö og
lentum aldrei í vandræðum. Við töl-
uðum um að þora að halda bolta og
vera ekki stressaðir og það gekk
frábærlega eftir. Menn hafa oft
fallið í þann pakka að vera kæru-
lausir þegar við mætum þessum
lakari liðum, en þetta lið er lak-
ara en við, en það var alls ekki upp
á teningnum núna,“ sagði Ólafur
Jóhannesson landsliðsþjálfari kátur
og morgunljóst að hann er að ná vel
til leikmanna íslenska liðsins.
„Menn voru vel stemmdir og
vildu gera hlutina. Hugarfarið var
nákvæmlega eins og það á að vera.
Auðvitað blundaði það í þeim að
þeir voru flengdir af þessu liði fyrir
ekki svo löngu og það skemmdi
eflaust ekkert fyrir. Ég fékk því
það sem ég vildi út úr þessum leik,“
sagði Ólafur en það eina sem hann
var ósáttur við var nýting færa.
Íslenska liðið fékk 5-6 dauðafæri í
leiknum sem ekki voru nýtt.
Hinn tvítugi Arnór Smárason
var einn í fremstu víglínu í gær
en hann hefur vakið athygli fyrir
vaska frammistöðu í hollenska
boltanum síðustu vikur.
„Mér fannst Arnór spila fantavel
sem framherji. Ég hef haft trú á
honum og finnst hann góður. Hann
fékk tækifærið núna og svar-
aði kallinu eins og á að gera það.
Hann er augljóslega að verða betri
og betri enda farinn að spila reglu-
lega með sínu liði. Ég get alveg við-
urkennt að hann var betri en ég átti
von á,“ sagði Ólafur en það vakti
einnig athygli að hann skyldi láta
Árna Gaut Arason byrja leikinn
en Gunnleifur Gunnleifsson spil-
aði síðari hálfleikinn.
„Árni Gautur hefur verið að æfa
og spila á grasi meira en Gunnleif-
ur. Það voru engin skilaboð með
þessu vali. Þeir eru báðir mjög
fínir markverðir sem munu berj-
ast áfram um stöðuna,“ sagði Ólaf-
ur en það var afar lítið að gera hjá
markvörðunum reyndar. Árni fékk
á sig eitt skot en Gunnleifur ekk-
ert. henry@frettabladid.is
Arnór er betri en ég hélt
Íslenska landsliðið í knattspyrnu náði að hefna fyrir niðurlæginguna í Vaduz
er það yfirspilaði lið Liechtenstein í gær og vann sigur, 2-0. Þjálfarinn, Ólafur
Jóhannesson, var sérstaklega ánægður með frammistöðu Arnórs Smárasonar.
STÓÐ SIG VEL Skagamaðurinn ungi, Arnór Smárason, skoraði sitt fyrsta landsliðsmark
í gær og uppskar mikið hrós frá landsliðsþjálfaranum eftir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM.
ÍSLAND-LIECHTENSTEIN
Byrjunarlið Íslands:
Árni Gautur Arason
Grétar Rafn Steinsson
Ragnar Sigurðsson
Hermann Hreiðarsson
Indriði Sigurðsson
Birkir Már Sævarsson
Brynjar Björn Gunnarsson
Aron Einar Gunnarsson
Emil Hallfreðsson
Eiður Smári Guðjohnsen
Arnór Smárason
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í fótbolta setti met með 2-0 sigri á
Liechtenstein á La Manga í gær.
Þetta er í fyrsta sinn sem lands-
liðið vinnur þrjá leiki í röð án
þess að fá á sig mark. Ísland end-
aði síðasta ár á 1-0 sigrum bæði
á Makedónum og Möltubúum og
hóf síðan nýtt landsleikjaár á
öruggum sigri á Spáni í gær.
Íslenska landsliðið hefur
sjö sinnum áður náð því að
vinna þrjá leiki í röð en metið
er síðan 2000 þegar lands-
liðið vann fjóra leiki í
röð undir stjórn Atla
Eðvaldssonar. Lands-
liðið getur jafnað
það met í næsta
landsleik sem er
gegn Færeyingum
í Kórnum 22. mars
næstkomandi.
Ólafur Jóhannesson náði einn-
ig einstökum árangri í gær með
því að vera fyrsti landsliðsþjálf-
ari Íslands frá upphafi sem nær
að stjórna landsliðinu í tveim-
ur þriggja leikja sigurgöngum.
Íslenska landsliðið vann einnig
þrjá leiki í röð síðasta vetur.
Íslenska liðið vann þá 2-0 sigur
á Armenum, 3-0, sigur á Fær-
eyingum og loks 2-1 sigur á
Slóvökum. Íslenska lands-
liðið hélt þá hreinu í 339
mínútur og það met er nú í
hættu þar sem það eru liðn-
ar 295 mínútur síðan
skorað var hjá íslenska
landsliðinu. - óój
Karlalandsliðið er búið að vinna þrjá leiki í röð:
Söguleg sigurganga
6 SIGRAR Í 14 LEIKJUM
Ólafur Jóhannesson
náði einstökum árangri
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HETJAN Finnur Ingi Stefánsson skoraði
sigurmark Gróttu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON