Fréttablaðið - 12.02.2009, Page 64

Fréttablaðið - 12.02.2009, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggvadóttur Í dag er fimmtudagurinn 12. febrúar, 43. dagur ársins. 9.32 13.42 17.52 9.26 13.27 17.28 Frasinn að sparka eins og stelpa er gjarnan notaður þegar ein- hver hefur þótt sparka illa. Að kasta eins og stelpa eða hlaupa eins og stelpa þykir víst líka slæmt. Drengir ganga sjálfkrafa út frá því að þeir standi stúlkum framar í flestu. Mörgum þeirra líkar því illa ef kona skákar þeim á einhvern hátt. Í SALNUM þar sem við krakk- arnir spiluðum fótbolta í barna- skóla í gamla daga var borðum og stólum staflað upp í einu horninu til geymslu. Reglurnar voru þær að ef boltinn lenti undir borðun- um var hann á frísvæði. Það lið sem náði honum fyrst átti innkast- ið. Einhvern tímann þótti mótspil- ara mínum ég sækjast fullhart eftir boltanum undir borðunum og reidd- ist þegar ég hafði hann undir. Hann kallaði mig brussu marga daga á eftir. Á borðtennismóti í sama skóla stóð keppnin um þrjú efstu sætin milli mín og tveggja drengja. Ég varð í öðru sæti en drengurinn sem lenti í því þriðja reiddist svo að hann braut borðtennisspaðann á tennisborðinu. „ÉG SPYR bara eins og fávís kona,“ segir fólk gjarnan þegar því finnst það þurfa að afsaka heimskulegar spurningar. Karl- menn gera „góðlátlegt“ grín að konum, að þeim haldist illa á pen- ingum. Konur eru ekki einung- is dæmdar af orðum sínum eða gjörðum heldur líka fyrir klæða- burð og vöxt. Þannig komst Angela Merkel, kanslari Þýskalands, í fréttirnar nýlega, fyrst kanslara að ég held, fyrir ljótan klæðaburð. Ég hef jafnvel heyrt því fleygt að Katrín Jakobsdóttir menntamála- ráðherra sé of „stelpulega klædd“ fyrir embættið! KÖRLUM þykir erfitt að taka við tilmælum frá konu og nú þegar forsætisráðherraembættið er í fyrsta sinn í höndum konu stend- ur Jóhanna í ströngu. Seðlabanka- stjóri þykist ekki þurfa að taka mark á henni og forveri hennar Geir gaf tóninn þegar hann vitnaði í eldgamla klisju um konur og kall- aði hana eyðslukló! „Góðlátlegt“ grín þar. SJÁLFSAGT taka kynin misjafn- lega á málefnum enda eru þau ekki eins sem betur fer. Það að hlaupa eins og stelpa er hins vegar alls ekkert slæmt, hvað þá að sparka eins og stelpa. Það þarf Davíð seðla- bankastjóri að skilja. Hann gerir það kannski, þegar hann fær spark- ið út úr Seðlabankanum. Jóhanna! Sparkaðu honum eins og stelpa! Að sparka eins og stelpa OPIÐ VIRKA DAGA 10 – 18 LAUGARD. 11 – 16 www.utivistogsport.is Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322 NÝTT KORTATÍMA BIL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.