Fréttablaðið - 12.02.2009, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
Í dag er fimmtudagurinn 12.
febrúar, 43. dagur ársins.
9.32 13.42 17.52
9.26 13.27 17.28
Frasinn að sparka eins og stelpa er gjarnan notaður þegar ein-
hver hefur þótt sparka illa. Að
kasta eins og stelpa eða hlaupa
eins og stelpa þykir víst líka slæmt.
Drengir ganga sjálfkrafa út frá
því að þeir standi stúlkum framar
í flestu. Mörgum þeirra líkar því
illa ef kona skákar þeim á einhvern
hátt.
Í SALNUM þar sem við krakk-
arnir spiluðum fótbolta í barna-
skóla í gamla daga var borðum og
stólum staflað upp í einu horninu
til geymslu. Reglurnar voru þær
að ef boltinn lenti undir borðun-
um var hann á frísvæði. Það lið
sem náði honum fyrst átti innkast-
ið. Einhvern tímann þótti mótspil-
ara mínum ég sækjast fullhart eftir
boltanum undir borðunum og reidd-
ist þegar ég hafði hann undir. Hann
kallaði mig brussu marga daga á
eftir. Á borðtennismóti í sama skóla
stóð keppnin um þrjú efstu sætin
milli mín og tveggja drengja. Ég
varð í öðru sæti en drengurinn
sem lenti í því þriðja reiddist svo
að hann braut borðtennisspaðann á
tennisborðinu.
„ÉG SPYR bara eins og fávís
kona,“ segir fólk gjarnan þegar
því finnst það þurfa að afsaka
heimskulegar spurningar. Karl-
menn gera „góðlátlegt“ grín að
konum, að þeim haldist illa á pen-
ingum. Konur eru ekki einung-
is dæmdar af orðum sínum eða
gjörðum heldur líka fyrir klæða-
burð og vöxt. Þannig komst Angela
Merkel, kanslari Þýskalands, í
fréttirnar nýlega, fyrst kanslara
að ég held, fyrir ljótan klæðaburð.
Ég hef jafnvel heyrt því fleygt að
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra sé of „stelpulega klædd“
fyrir embættið!
KÖRLUM þykir erfitt að taka við
tilmælum frá konu og nú þegar
forsætisráðherraembættið er í
fyrsta sinn í höndum konu stend-
ur Jóhanna í ströngu. Seðlabanka-
stjóri þykist ekki þurfa að taka
mark á henni og forveri hennar
Geir gaf tóninn þegar hann vitnaði
í eldgamla klisju um konur og kall-
aði hana eyðslukló! „Góðlátlegt“
grín þar.
SJÁLFSAGT taka kynin misjafn-
lega á málefnum enda eru þau ekki
eins sem betur fer. Það að hlaupa
eins og stelpa er hins vegar alls
ekkert slæmt, hvað þá að sparka
eins og stelpa. Það þarf Davíð seðla-
bankastjóri að skilja. Hann gerir
það kannski, þegar hann fær spark-
ið út úr Seðlabankanum. Jóhanna!
Sparkaðu honum eins og stelpa!
Að sparka eins
og stelpa
OPIÐ
VIRKA DAGA 10 – 18
LAUGARD. 11 – 16
www.utivistogsport.is
Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322
NÝTT KORTATÍMA
BIL