Tíminn - 23.04.1988, Blaðsíða 27
Laugardagur 23. apríl 1988
Tíminn 27
SPEGILL
illlllli
Loks verður
Jackie amma
*f að var í matarveislu hjá kvikmyndasafninu í New York, sem
Caroline Kennedy tilkynnti móður sinni, Jaqueline Kennedy
Onassis, að hún ætti von á barni. Jackie sem hafði engan annan
en Michael Douglas sem borðherra, steingleymdi honum næstum
því af fögnuði.
Caroline varð þrítug í nóvember, en maður hennar, Ed
Schlossberg er 43 ára. Sagt er að Caroline hafi misst fóstur í fyrra
og því hafi gleðin orðið svo mikil núna.
Talið er líklegt að Caroline hætti
laganámi sínu í sumar, því hún fær
varla möguleika á að halda áfram
í bráðina, auk þess em hún vill taka
því rólega, af ótta við fósturlát.
Jackie missti einnig fóstur áður en
hún átti Caroline og auk þess lést
Patrick sonur þeirra Kennedys
nokkrum vikum fyrir morð föður
síns. Hann fæddist fimm vikum
fyrir tímann og var veikburða.
Varla er að efa, að Caroline á eftir
að heyra mörg ráð frá móður sinni
næstu mánuðina.
Ed og Caroline búa í miðborg
New York, ekki langt frá 16 her-
bergja íbúð Jackie við Fifth
Avenue. Því ætti að vera auðvelt
að fylgjast með barnabarninu. Ed
á auk þess sveitasetur í Chester í
Massachusetts og þar dvelja hjónin
gjarnan um helgar.
Fyrst eftir brúðkaupið, var sam-
band Eds og tengdamömmu heldur
þurrlegt. Jackie er einkar ráðrík og
viljasterk kona og tengdasyninum
fannst hún vilja gefa sér fullmikið
af góðum ráðum. Hann er rit-
höfundur og hönnuður að atvinnu,
nýtur mikillar virðingar sem slíkur
og kann því illa að láta koma fram
við sig eins og strákpatta. Hann
tók það ráð að svara tengda-
mömmu fullum hálsi og nú er
komið jafnvægi á þau mál. Allir
aðrir í fjölskyldunni kunnu einkar
vel við Ed frá upphafi.
Af Jackie er annars ýmislegt að
frétta. Haft er eftir henni í ítölsku
blaði, að hún muni ganga í hjóna-
band í ár, með demantakóngnum
Maurice Tempelsman. Þau hafa
verið saman í mörg ár, en hann er
fyrst núna löglega skilinn.
Paul Anka er kominn fram á sjónarsviðið aftur, með hatt. Ekki er
sjáanlegt að kappinn hafi mikið breyst, nema ef vera kynni undir hattinum.
Anka kominn aftur
Haustið 1957 kom lagið „Diana“ í hljómplötuverslanir um allar
jarðir og lagði á skömmum tíma undir sig heim vinsældalistanna.
Söngvari og höfundur lagsins var ungur og óþekktur náungi, Paul
Anka að nafni. Þó hann hefði aldrei látið sig dreyma um mikinn
frama á söngsviðinu, komst hann nú skyndilega að raun um að
heimurinn lá fyrir fótum hans. Hver platan af annarri kom á
markað og rann beint inn á vinsældalistana.
Svo þagnaði Anka skyndilega og
fór að stjórna upptökum fyrir aðra
söngvara. Árvökulir tónlistarunn-
endur tóku kannski eftir, að hann
samdi lagið „My Way“ fyrir Frank
Sinatra, en að öðru leyti var hljótt
um hann.
Nú eru liðin rösk 30 ár síðan
Anka öðlaðist heimsfrægð og hann
er kominn upp á svið aftur fyrir
nokkru og gerir það gott. Eftir að
hafa sungið fyrir troðfullum húsum
kvöld eftir kvöld í Las Vegas,
ákvað hann að skreppa í hljóm-
leikaferðalag aftur og Evrópa varð
fyrir valinu. Áður en hann lagði af
stað, náði hann samt að syngja inn
á eina breiðskífu, sem var tekið
aldeilis ævintýralega vel.
- Það er bæði skemmtilegt og
ögrandi að reyna fyrir sér á ný,
eftir að hafa verið í þessum útvegi
í 30 ár, segir Anka. - Ég hlakka til
að hitta gamla og nýja aðdáendur
og kynna þeim Paul Anka níunda
áratugsins.
Jackie hefur verið með demanta-
kóngnum Maurice Tempelsman í
mörg ár. Hann er nú lögskilinn og
þau stefna í hjónaband.
Skrítin tilvil jun
Itreska leikkonan Koo
Stark, sem á sínum tíma varð
fræg fyrir að hafa leikið í
heldur ósiðlegri kvikmynd og
gerst síðan vinkona Andrcws
prins, hefur nú fengið hlutverk
í lcikriti Agöthu Christie um
Tíu litla negrastráka.
Sem kunnugt er slitnaði upp
úr sambandi Koo og prinsins,
hann kvæntist Fergie sinni og
fékk titilinn hertogi af York
„Prinsessan"
plataði Bowie
Söngsljurnan David Bowie var aldeilis plataöur upp úr skónum
nýlega. Dökkeyga fegurðardísin, sem hann hefur hitt á laun um
nokkra hrið og var alvarlega ástfanginn af, að sögn vina hans,
reyndist ekki öll, þar sem hún var séð.
Nú er leikritiö með henni
óspart auglýst út á þá skrítnu
tilviljun, að leikhúsið, sem það
er sýnt í heitir einmitt Hertog-
inn afYork.
Eigin húsbóndi
Juiian Lennon er orðinn
þreyttur á að vera aðeins dauf-
ur skuggi af föður sínum, John
Lennon. Nú hefur hann skrap-
að saman aurana sína og fjár-
fest í húsi í svissnesku Olpun-
unt. Heimilisfang og símanúm-
er fá ekki nema fáeinir nánir
vinir.
- Við verðum að halda ást okkar
leyndri, því ég er arabísk prinsessa
og heima hjá mér yrði samband
okkar aldrei viðurkennt, er haft
eftir stúlkunni, sem kallaði sig
Nouru. Blessuð Nóran klykkti út
með því að fullyrða, að ef upp
kæmist, næðu útsendarar föður-
landsins sér og hún yrði umsvifa-
laust hneppt í kvennabúr heima.
Veslings David Bowie, sem hing-
að til hefur ekki verið talinn nema
í meðallagi saklaus, trúði henni
eins og nýju neti.
Nú er hins vegar allt komið fram
í dagsljósið. Bresk tímarit hafa
komist að því, að „prinsessan“ er
mexíkönsk, 31 árs og heitir Diana
Taren. Frekari rannsóknir á fortíð
hennar leiddu í ljós, að hún var
ákærð fyrir þjófnað á 7 milljónum
króna í ferðatékkum, í tengslum
við Wimbledon-mótið í tennis og
einnig fyrir tilraun til bankasvika,
en slapp með skrekkinn í bæði
skiptin, vegna skorts á sönnunum.
Enginn veit sem sé, hvort hún
slapp með peningana.