Tíminn - 20.04.1989, Page 4
4 Tíminn
.Fimmtudagur 20. apríl 1989
Valgerður
Sverrlsdóttir
Hörpukonur Hafnarfirði, Garðabæ
og Bessastaðahreppi
Aðalfundur Hörpu
veröur haldinn miövikudaginn 26. apríl kl. 20.30 að Hverfisgötu 25
Hafnarfirði.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður segir frá störfum
á Alþingi og í Norðurlandaráði.
3. önnur mál.
Kaffiveitingar.
Gestir velkomnir.
Stjórnin.
Kennarar
Seyðisfjarðarskóli auglýsir eftir kennurum í eftir-
taldar stöður:
Yfirkennari
Enskukennari
íþróttakennari
Húsnæði á góðum kjörum er í boði og greiddur
flutningsstyrkur.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-21172 eða
97-21365.
Óskum öllum
gleðilegssumars.
Sigfús Kristinsson,
byggingameistari, Selfossi.
Óskum öllum
gleðilegssumars.
HVOLSVEGI 1 - SlMAfí 99-8145 é 99-8186 - HVOLSVELll
Aðalfundur „Framnes hf.“
verður haldinn laugardaginn 29. apríl 1989 í húsi félagsins Hamra-
borg 5 og hefst kl. 10.00 f.h.
Dagskrá samkvæmt 16. gr. félagslaga.
Lögð verður fyrir fundinn tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Hluthafar, eða löglegir umboðsmenn þeirra mæti vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Hafirðu
smákkað
- láttiTþér þá MJDREI
detta í hug
að keyra!
| UMFERÐAR
Iráð
Fulltrúar ETPO funduðu nýlega á Hótel Sögu.
Fulltrúar útflutningsráða Vestur-Evrópulanda:
ETPO fundar í Reykjavík
Fyrir skömmu fór fram í Reykjavík vinnufundur tuttugu fulltrúa frá útflutningsráðum Vestur-Evrópulanda.
Fulltrúarnir eru allir meðlimir í ETPO (European Trade Promotion Organization). Þeir hittast reglulega,
tvisvar á ári, til að ræða sameiginleg hagsmunamál og skiptast á skoðunum. Aðalumræðuefni fundarins að þessu
sinni er upplýsingamiðlun í viðskiptum. Auk þess er rætt um sölu á þjónustu vestur-evrópsku útflutningsráðanna
og gagnagrunnskerfl þeirra.
Að sögn framkvæmdastjóra Útflutningsráðs íslands, Ingjalds Hannibalssonar, hefur ráðið ekki tekið reglulega
þátt í þessum fundum. En hann segir aftur á móti vera afar gagnlegt að fylgjast með því sem önnur Evrópulönd
eru að gera fyrir útflytjendur sína til að íslendingar geti náð betri markaðs- og söluárangri á erlendum mörkuðum.
jkb
Ágætis hagnaður og
10% arður greiddur
Hagnaður Ágætis hf. á árinu 1988
nam 6,2 milljónum króna eftir reikn-
aða skatta. Þetta kom fram í skýrslu
stjórnar Ágætis hf. en aðalfundur
fyrirtækisins var haldinn á Selfossi
fyrir skömmu. Þá kom einnig fram í
skýrslu stjórnar að fyrsta starfsár
félagsins hafi gengið bærilega, þrátt
fyrir mikla spennu á markaðinum og
lágt verð á kartöflum fyrri hluta
ársins.
Rekstrartekjur fyrirtækisins voru
á árinu um 160 milljónir króna. Þar
af var hlutur innlendrar kartöflusölu
39%, innlent og erlent grænmeti
38% og grænmetisvinnsla og skræld-
ar kartöflur 16%. Hagnaður ársins
eftir reiknaða skatta nam 6,2 millj-
ónum króna og var samþykkt að
greiða hluthöfum 10% arð. Þá var
einnig samþykkt að veita stjórninni
heimild til að auka hlutafé félagsins
um allt að 18 milljónir króna og að
kaupa húsnæði yfir starfsemina.
Á fundinum var tveim fram-
leiðendum veitt viðurkenning fyrir
„Bestu kartöflur 1988“. Viðurkenn-
ingu hlutu Kristján Gestsson, For-
sæti, og Bjarki Reynisson, Mjó-
syndi. Tilgangurinn með viðurkenn-
ingunni er að hvetja framleiðendur
til að leggja sig alla fram við að
framleiða úrvalsvörur. -ABÓ
Hlöðuball að
hætti Holtseta
Á laugardaginn kemur verður
haldið þýsk-íslenskt hlöðuball að
hætti Holtseta, á Hótel Selfossi.
Sveitahljómsveitin Jurgen
Stach Mússen við Lauenburg í
Holtsetalandi leikur fyrir dansi
fram eftir nóttu. Jafnframt mun
níu meyja þjóðdansaflokkur frá
Ratzeburg, Die Scheunentánzer,
skemmta gestum.
Ballið er haldið á vegum Þýsk-
íslenska vinafélagsins en tildrög
stofnunarinnar þess má rekja
fjörutíu ár aftur í tímann. Þann
níunda júní árið 1949 kom hingað
tvö hundruð manna hópur þýsks
landbúnaðarverkafólks. Hópur-
inn kom vegna auglýsinga Búnað-
arsambandsins um störf í land-
búnaði á íslandi og að loknu
sumri höfðu komið hingað um
hundrað manns í viðbót. jkb
Átak á vegum Hollustuverndar ríkisins:
Notuðum rafhlöð-
um saf nað saman
Innan skamms veröur tekið til við
að safna notuðum rafhlöðum, en
víðtækur undirbúningur er þegar
haflnn. Átakið er tvíþætt og er einn
angi norræns samkomulags um
verndun hafsins gegn mengun sem
víða er orðin mikil.
Ætlun Hollustuverndar ríkisins
var að hefja kynningarátak vegna
innsöfnunar á rafhlöðunum fyrsta
maí en því hefur verið frestað vegna
verkfalls BHMR. Þegar hefur verið
útbúinn bæklingur, sem verður lík-
iega sendur inn á öll heimili. Þar er
að finna upplýsingar um rafhlöðurn-
ar, efnin sem í þeim eru, notkun,
skaðleg áhrif á umhverfi og fleira.
Jafnframt hefur verið útbúið plakat
til að minna landsmenn á mikilvægi
söfnunarinnar. „Átakið verður
tvískipt. í haust er ráðgert að taka
þráðinn upp aftur í samvinnu við
grunnskóla landsins. En þaðan í frá
standa vonir til að skil á rafhlöðum
verði mönnum jafn töm og kaup á
þeim,“ sagði Birgir Snorrason um-
hverfisskipulagsfræðingur Hollustu-
verndar ríkisins í samtali við
Tímann.
Framkvæmdin verður í samvinnu
við Samband íslenskra sveitarfélaga,
Siglingamálastofnun, Náttúruvernd-
arráð, Landvernd og Sorpeyðingu
höfuðborgarsvæðisins. Þá verður
leitað samvinnu við einstök sveitar-
félög, heilbrigðisnefndir og fulltrúa,
innflytjendur rafhlaðna og fleiri.
Sérstökum söfnunarílátum verður
komið upp í verslunum og á fleiri
stöðum. Þaðan verður rafhlöðunum
skilað til Hollustuverndar ríkisins
sem sendir þær út til endurvinnslu. í
Danmörku hefur verið sett hátt
skilagjald á rafhlöður og verður að
öllum líkindum einnig tekið upp hér
á landi þegar fram líða stundir.
Á hverju ári flytja íslendingar um
130 tonn af rafhlöðum til landsins.
„Hættulegustu efnin í þessum raf-
hlöðum eru þungmálmar eins og
kadmíum og kvikasilfur. Þessi efni
eiga tiltölulega greiða leið út í lífríki
náttúrunnar. Þeir gufa upp við
bruna, til að mynda þegar sorpi er
brennt, eiga greiða leið að jurtum
með vatni og svo framvegis. Því er
mörgum þáttum lífkeðjunnar mikil
hætta búin, eins og til dæmis fiskum.
Víða erlendis er ástandið orðið
þannig að kvikasilfur í fiskum mælist
í það miklu magni að þeir eru ekki
taldir neysluhæfir. Meginhættan við
þessi efni er að þau geta valdið
fósturskaða, bæði í dýrum og
mönnum. Þegar þau eru einu sinni
komin út í náttúruna er ómögulegt
að hreinsa þau burt aftur,“ sagði
Birgir.
A st'ðari árum hafa verið þróaðar
rafhlöður sem ekki innihalda þessi
skaðlegu efni. Stefnan er að í sam-
vinnu við innflytjendur verði hlutur
þeirra aukinn á markaðnum. Einnig
er í bígerð að teknar verði upp
sérstakar merkingar á rafhlöðum í
samvinnu við hin norðurlöndin og
fleiri lönd innan Evrópu. En í dag
eru margar þeirra aðeins merktar á
máli framleiðslulandsins sem getur
verið Japan eða annað land í þeim
heimshluta.
„Þetta átak okkar tengist norrænu
samstarfi sem miðar að uppbyggingu
sameiginlegrar endurvinnslustöðv-
ar, Þá er þetta huti af norrænni
áætlun um varnir gegn mengun
hafsins. En þar var ákvæði um að á
öllum Norðurlöndum skyldi vera
komið upp, fyrir árslok ’89, inn-
söfnunarkerfi á notuðum rafhlöð-
um,“ sagði Birgir. Bráðlega gengur
sömuleiðis nýtt ákvæði norræna
samningsins í gildi, varðandi það að
leyfilegt hámarksmagn þungmálma
í rafhlöðum verði minnkað. Magn
kadmíums til dæmis niður í 0,25%
en í dag er það í mörgum tilvikum
allt að 10 til 15 prósent. jkb