Tíminn - 20.04.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 20. apríl 1989
Tveir af bestu mönnum íslenska landsliðsins, þeir Axel Nikulásson og
Guðmundur Bragason í baráttu um frákast í leiknum í gær.
í tilefni dagsins:
Dýr golfbíll!
Það er ekki sama hvernig golfbíl
þú ekur þegar þú bregður þér á
golfvöllinn. Hvers vegna ekki að fá
sér einn fyrir litlar 1.050.587,00?
Að vísu er þessi golfbíll „Rolls“
allra golfbíla. Golfbíllinn er af gerð-
inni Royal Ride og hann inniheldur
ýmsa aukahluti sem aðrir golfbílar
hafa ekki. Má þar t.d. nefna; örygg-
isgler, stereó útvarp og segulband,
sígarettukveikjara, klukku, sérstök-
um höldurum fyrir drykki, speglum,
sérstökum te uppáhellara, fiber
þaki, litasjónvarpi, ísskáp og frysti,
háum og lágum ljósum, bremsuljós-
um, hjólkoppum, grilli o.fl.
Bíllinn er að sjálfsögðu rafdrifinn
og er þess vegna hægt að fá sérstak-
lega sterka rafgeyma til að knýja öll
ósköpin áfram.
Nú er bara að fá sér einn og
bregða sér svo á rúntinn upp í
Grafarholt. . FH.
Körfuknattleikur:
Varnarleikurinn í
og tap hjá lands
gegn ungversku meisturunum CSEPEL 86-98
fslenska landsliðið í körfuknatt-
leik tapaði óvænt fyrir ungversku
meisturunum CSEPEL, er liðin
mættust í Laugardalshöll í gærkvöld.
Ósigur íslenska liðsins kom á óvart
því í fyrsta leik Iiðanna á mánudags-
kvöld sigraði íslenska liðið með ali
miklum mun.
Jafnræði var með liðunum framan
af leiknum í gær, en Ungverjarnir
áttu síðan góðan leikkafla og breyttu
stöðunni í 15-31 sér í hag. Þessi
munur hélst með liðunum og tölur
eins og 22-39 og 31-43 sáust á
stigatöflunni. Þegar að leikhléinu
kom voru Ungverjarnir 19 stigum
yfir 39-58.
íslenska liðið kom mjög ákveðið
til leiks í síðari hálfleik, staðráðið í
því að bæta varnarleikinn, sem hafði
verið í molum í fyrri hálfleik. Ung-
verjarnir héldu áfram að hitta eins
og óðir væru og íslenska vörnin átti
ekkert svar. Þegar líða tók á hálfleik-
inn fór íslenska liðið að pressa meira
á Ungverjana með góðum árangri.
Munurinn breyttist úr 50-70 í 63-73.
Minnstur munur var á liðunum 71-
80, en þrátt fyrir góðan varnarleik
komust okkar menn ekki nær. Er
þar um að kenna að skothittnin brást
þegar mest á reyndi. Lokatölurnar
86-98 gefa rétta mynd af gangi
leiksins.
Með smá stemmningu og hvatn-
ingu áhorfenda hefði íslenska liðið
sigrað í leiknum. Áhorfendur voru
því miður ekki í Laugardalshöliinni
í gær, ef undan eru skildir einar 35
hræður. Fleiri hefðu gjarnan mátt
gefa sjónvarpinu frí eitt kvöld og
orðið vitni að ágætlega leiknum
körfuboltaleik.
íslenska liðið undirbýr sig nú af
kostgæfni fyrir Norðurlandamótið,
Körfuknattleikur NBA-deildin:
N.Y. Knicks og Uta
meistarar í sínum
Nú styttist óðum í úrslitakeppni
NBA-deildarinnar í körfuknattleik,
en þar kemur fyrst í Ijós hinn
raunverulegi styrkleiki liðanna. Tvö
lið hafa þegar tryggt sér meistaratitil-
inn i sínum riðlum, New York
Knicks eru meistarar í Atlantshafs-
riðli austurstrandarinnar og Utali
Jazz hefur tryggt sér meistaratitilinn
í Miðvesturriðli vesturstrandarinn-
ar.
í Miðriðli austurstrandarinnar er
jafnan hörð keppni og allt útlit er
fyrir sigur Detroit Pistons í riðlinum.
Öll liðin í riðlinum að Indiana Pacers
undanskildu hafa tryggt sér þátt-
tökurétt í úrslitakeppninni, en lík-
legt er að þau tvö lið sem uppá
vantar í úrslitin verði Philadelphia
’76ers og Boston Celtics. Washing-
ton Bullets gætu þó sett strik í
reikninginn hjá Boston, en 4 leikjuin
munar á liðunum sem stendur.
Á vesturströndinni er öllu meiri
óvissa. Auk Utah Jazz hafa lið
Denver Nuggets og Houston Rock-
ets tryggt sér úrslitasæti af liðum í
Miðvesturriðlinum, en i Kyrrahafs-
riðlinum eru Los Angeles Lakers,
Phoenix Suns, Seattle Supersonics
og Golden State Warriors komin i
úrslitin. Reyndar berjast Lakers og
Suns harðri baráttu um sigurinn í
riðlinum. Áttunda liðið í úrslita-
keppnina verður að öllum líkindum
Portland Trail Blazers, en Dallas
Mavericks verður sennilega að sitja
eftir.
Úrslit leikja síðustu daga:
Sunnudagur:
Cleveland Cavaliers-Chicago B........111-92
Houston Rockets-Dallas Mavr.........114-112
Philadelphia-New York Knicks .... 115-112
Detroit Pistons-Washington B.........104-98
Milwaukee Bucks-N.J.Nets.............100-96
L.A.Lakers-Miami Heat...............121-108
Mánudagur:
Boston Celtics-Charlotte H..........113-108
Chicago Bulls-New York Knicks .... 104-100
Houston Rockets-S.A.Spurs ........... 99-91
Utah Jazz-L.A.CIippers..............108-102
Phoenix Suns-Sacrnmento Kings........140-85
Seattle Supers.-Golden State........116-109
Þriðjudagur:
Washington B.-Boston Celtics.......121-113
Detroit Pistons-Cleveland C.........118-102
Dallas Mavricks-Miami Heat...........103-99
Charlotte Hornets-N.J. Nets.........121-105
Philadelphia-Miwaukee Bucks........124-102
Atlanta Hawks-Indiana Pacers.......121-114
L.A.CIippers-Utah Jazz............... 95-92
Seattle Supers.-Golden State........122-118
L.A.Lakers-Denver Nuggets...........142-118
Sacramento Kings-Portland T.........120-118
Staðan í deildinni er nú þessi:
Unnir leikir, tapadir leikir og sídast ímynduð
stig.
Austurdeildin-Atlantshafsriðill:
New York Knicks.............. 50 30 100
Philadelphia ’76ers ......... 44 35 88
Boston Celtics ............... 41 38 82
Washington Bullets............ 39 40 78
New Jersey Nets .............. 26 53 52
Charlotte Hornets ............ 20 60 40
Austurdeildin-Miðriðill:
Detroit Pistons................60 19 120
Cleveland Calaliers........... 56 24 112
Atlanta Hawks................. 50 29 100
Milwaukee Bucks............... 47 31 94
Chicago Bulls............... 46 33 92
Indiana Pacers.............. 26 53 52
Vesturdeildin-Miðvesturriðill:
Utah Jazz .................. 50 30 100
Houston Rockets ............ 43 36 86
Denver Nuggets.............. 43 36 86
Dallas Mavericks............ 36 44 72
San Antonio Spurs........... 21 58 42
Miami Heat.................. 14 66 28
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2
Get-raunir!!!
Enginn var með 12 rétta síðast og
því er þrefaldur pottur á laugardag-
inn og sprengipottur að auki. Það
verður því há upphæð í boði á
laugardaginn fyrir 12 leiki rétta, eða
um 7 inilljónir króna.
Það voru aðeins 2 vinningshafar í
síðustu leikviku getrauna. Þeir voru
báðir með 11 rétta, og fengu í sinn
hlut 371.273 kr. sem er hæsti vinn-
ingur vetrarins fyrir 11 rétta.
Fylkir var söluhæsta félagið í síð-
ustu viku, en Fram var í öðru sæti.
Haukar eru enn að færa sig uppá
skaftið og þeir eru nú komnir í 3.
sætið.
Staðan í hópleik getrauna er nú
mjög spennandi. Ein vika er eftir af
leiknum og staðan á toppnum er sú
að ROZ, BIS og FYLKISVEN eru
jafnir með 104 stig.
í fjölmiðlaleiknum hefur MBL
enn góða forystú með 74 stig, Bylgj-
an kemur næst með 69 stig, en aðrir
miðlar hafa minna. Þjóðviljinn hafði
vinninginn í síðustu viku með 6
rétta, en Tíminn og Stöð 2 höfðu 5
leiki rétta. Aðrir miðlar höfðu færri
leiki rétta.
En þá er ekki úr vegi að líta á
leikina á seðlinum, 16. leikvika:
Charlton-Manchester United: 2
Eftir tapið á heimavelli um síðustu
helgi rísa United menn uppá aftur-
lappirnar og vinna sigur á Lundúna-
liðinu.
Coventry-QPR: 1
Coventry er öllu heilsteyptara lið og
FJÖLMIÐLASPÁ
LEIKIR 22. APRÍL ’89 J m 5 > Q TÍMINN Z Z > s 2 | DAGUR RÍKISÚTVARPIÐ BYLGJAN CM S (/> STJARNAN SAMTALS
1 X 2
Charlton - Man. Utd. X 2 2 2 2 2 2 2 2 0 1 8
Coventry - Q.P.R. 1 1 1 1 X X 1 2 1 6 2 1
Derby - Sheff. Wéd, 1 1 X 1 X 1 1 X 2 5 3 1
Middlesbro - Nott. For. 2 2 2 2 1 X 2 2 1 2 1 6
Newcastle - Luton 1 1 1 1 1 1 1 1 X 8 1 0
Norwich - Aston Villa 1 1 1 1 2 1 1 1 1 8 0 1
Southampton - Wimbledon 1 2 X X X 1 X X 2 2 5 2
Tottenham - Everton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 9 0 0
West Ham - Millwall 2 X X X 1 1 X X X 2 6 1
Brighton - Swindon X 1 1 X X 2 1 X 1 4 4 1
Chelsea - Leeds 1 1 1 1 X 2 1 X 1 6 2 1
Ipswich - W.B.A. X 1 2 2 2 X X 1 2 2 3 4
* x2 1x2 1x2 1x2 1x2