Tíminn - 20.04.1989, Síða 27
Fimmtudagur 20. apríl 1989
Tíminn 27
MINNING
rbviviwu ■ Mnr
Elisabet
Guðmundsdóttir
Felli í Árneshreppi
Fædd 5. apríl 1906
Dáin 11. mars 1989
Þann 11. mars s.l. andaðist á
Borgarspítalanum í Reykjavík
Elisabet Guðmundsdóttir húsfreyja
að Felli í Árneshreppi, af hjarta-
slagi.
Við Elisabet vorum fermingar-
systur, þó hún væri einu ári yngri en
ég. Af þeim fermingarsystkinum
mínum, sem þá fermdust í Árnes-
kirkju, eru nú aðeins ég og Jóhann
Guðlaugsson frá Steinstúni á lífi. -
Nú þegar leiðir okkar skiljast langar
mig að minnast þessarar nýlátnu
fermingarsystur minnar með nokkr-
um orðum.
Hún var fædd að Munaðarnesi í
Árneshreppi þann 5. apríl 1906, og
vantaði því tæpan mánuð til að
verða 83ja ára er hún lést. - Foreldr-
ar hennar voru hjónin Guðmundur
Gísli Jónsson bóndi í Munaðarnesi
og kona hans, Guðlaug Jónsdóttir
frá Ingólfsfirði. - Guðlaug var ein af
fjórum dætrum Jóns Sigurðssonar á
Reykjanesi er hann hafði átt með
jafnmörgum konum þegar hann
drukknaði á Húnaflóa í för með
Þorsteini Þorleifssyni á Kjörvogi, á
heimleið úr kaupstaðarferð á Skaga-
strönd þann 9. september 1882, því
eftirminnilega hallærisári. Var Jón
þá aðeins 22ja ára að aldri og
kvæntur Guðbjörgu Jörundardóttur
frá Hafnarhólmi. Er stór ættbogi
kominn út af þeim dætrum Jóns.
Þau Guðlaug og Guðmundur
eignuðust 6 böm, þrjá syni og þrjár
dætur. Var Elisabet næstelst þeirra
systkina. Af þeim eru nú tveir bræð-
urnir, Indriði og Jón Jens, á lífi.
Ekki nutu þau Munaðarnessyst-
kinin lengi umsjár móður sinnar.
Hún lést af barnsförum 25. febrúar
1915, 39 ára að aldri. Var elsta barn
þeirra, Einar, 11 ára en Elisabet á 9.
ári. - Barnið, sem þá fæddist var'
stúlkubarn. Það var skírt við kistu
móður sinnar og gefið nafn hennar.
Það var tekið í fóstur af ljósmóður
þess, Steinunni Guðmundsdóttur á
Dröngum, síðar húsfrú á Skriðnes-
enni í Bitru. - Steinunn dvelur nú á
Sjúkrahúsi Hólmavíkur, háöldruð
heiðurskona.
Við fráfall Guðlaugar fóru erfiðir
tímar í hönd hjá Guðmundi með 5
móðurlaus börn á ungum aldri í
umsjá sinni. En oft leggst líkn með
þraut, og svo varð þar. Solveig systir
Guðmundar, þá orðin ekkja eftir
drukknun manns síns, Þórðar Þórð-
arsonar Grunnvíkings, kom bróður
sínum til hjálpar næstu árin við
umsjá barnanna og heimilisins. Sjálf
var hún með börn á framfæri sínu og
varð þá mannmargt heimili á Mun-
aðarnesi. En Guðmundur var ein-
stakur atorkumaður og börnum sín-
um ástríkur og umhyggjusamur
faðir. Allt bætti þetta börnunum
móðurmissinn meðan þess naut. -
En hún var ekki gömul eða há í
loftinu, hún Beta (svo var hún
jafnan kölluð af sínu fólki og ná-
grönnum) þegar húsmóðurskyldan
færðist yfir hana. Strax um og eftir
fermingu var hún tekin við því
hlutverki og annaðist það með um-
hyggju og sóma allt þar til hún
stofnaði sitt eigið heimili. Nú myndi
það vera talið eins og hver önnur
fjarstæða að ætla 14 ára stúlku að
taka á sínar herðar þær skyldur við
heimili og fjölskyldu eins og hún
gerði. Er þó ólíku saman að jafna
um öll heimilisþægindi nú og þá. En
allt blessaðist þetta með guðshjálp.
En lítið var frjálsræði hinnar ungu
stúlku. Framhaldsskólanám togaðist
þá ekki á við skylduna við heimilið
föður og systkini og nauðsyn þeirra.
- Það var stórt hlutverk þó ekki væri
það metið í prófgráðum.
Árið 1935 gekk hún að eiga
Guðmund Guðbrandsson frá Veiði-
leysu. Fóru þau þá að búa sjálfstæðu
búi á Munaðarnesi við litla ábúð, því
margbýlt var fyrir. Þar bjuggu þau
til ársins 1950 er þau fluttu að Felli
eftir að hafa fest kaup á þeirri jörð
við burtför fyrri ábúanda. Þar hafa
þau búið og átt heima upp frá því.
Nú síðustu árin voru þau hætt bú-
skap en héldu sitt eigið heimili í
skjóli dóttur sinnar og tengdasonar.
Hin síðustu ár var heilsu hennar
farið að hnigna, því olli hjartabilun.
Þau eignuðust tvö börn, dreng og
stúlku. Drengurinn, sem var þeirra
fyrra barn, varð skatnmlífur, dó
aðeins fárra vikna gamall, en dóttir
þeirra, Elisabet, býr á Felli með
manni sínum, Maríasi Björnssyni,
frá ísafirði. Bæði þau og við sveit-
ungamir vorum svo lánsöm að Mar-
ías fluttist hingað til brúðar sinnar,
öfugt við það sem algengast er
orðið, fyrst sem útibússtjóri Kaup-
félags Strandamanna á Djúpuvík og
síðan bóndi á Felli í félagi við
tengdaforeldra sína. Það var góður
styrkur við búskapinn á Felli. - Þau
Marías og Elisabet eiga 5 börn, fjóra
syni og eina dóttur, nú öll uppkomin
og mannvænleg.
Búskapur þeirra Guðmundar og
Betu var ekki stór í sniðum á
Munaðarnesi, en með snyrtibrag.
Skilyrði til túnræktar voru þar engin
áður en nútímatækni stórvirkra véla
kom til sögunnar, og margbýlt var
þar og þröngt setið. En þar byggði
Guðmundur stórt og mikið íbúðar-
hús í félagi við mága sína, sem enn
stendur og þjónar sínu hlutverki. -
Síðustu ár þeirra á Munaðarnesi
gekk Guðmundur ekki heill til
skógar. Hann fékk meinsemd í lunga
og varð að vera á sjúkrahúsum syðra
til lækninga. Fékk hann þar þá bót
meina sinna, að hann fékk að koma
heim. En lengi bjó hann að því eftir
heimkomu sína og var undir eftirliti
lækna nokkur ár eftir það. Þegar
hann kom heim var fjölskylda hans
flutt að Felli og stóð hálfbróðir hans,
Sigurvin, fyrir búinu í fjárveru hans.
- Höfðu þau hjónin alið Sigurvin
upp, allt frá því er faðir þeirra lést
árið 1935. Auk Sigurvins ólu þau
upp systurdóttur Guðmundar,
Mörtu Guðlaugsdóttur, búsetta á
Akranesi.
I búskapartíð þeirra á Felli hefur
verið unnið þrekvirki, sem vart á sér
hliðstæðu. Öll hús jarðarinnar hafa
verið byggð upp af myndarskap, og
sum tvisvar til samræmis við kröfur
tímans. Og tún hefur verið ræktað
við þau skilyrði, sem ég veit erfiðust
hér í sveit og þó víðar væri leitað.
Má segja að hver blettur af nýtan-
legu landi jarðarinnar hafi verið
gerður að túni. - Gamla túnið á Felli
var hvorki árennilegt til nytja eða
ræktunar. Það var eingöngu grjót-
hólar myndaðir af jökulruðningum
ofan úr Fellsdalnum þar sem heita
mátti að steinn væri í hverju ljárfari,
með mýrarsundum í milli. Það var
ekki auðvelt að gera þetta land að
véltæku túni áður en stórvirkar vélar
komu til sögunnar. Það var þó gert
í fyrstu með lítili Ferguson dráttar-
vél, sem þeir Fellsmenn fengu
snemma í búskap sínum þar. Með
henni lögðu þeir til atlögu við þetta
óþjála land og brutu það til ræktunar
á nútíma vísu. Það var með ólíkind-
um hvað þeim varð ágengt með
þeim ófullkomnu tækjum. Kom þar
til einstök elja og verkhyggindi Guð-
mundar, fyrst með aðstoð Sigurvins
bróður hans og síðan tengdasonar
þeirra eftir að hann kom til bús með
þeim. - Þó þarna kæmu fyrst og
fremst til verk þeirra karlmannanna,
þá lagði hún Beta sinn skerf ómæld-
an til þeirra hluta sem gerðir voru.
Þar var hún með af lífi og sál. Hún
unni líka Felli og gat ekki til annars
hugsað en að vera þar. Og þar vildi
hún fá að bera beinin. - I raun má
segja að henni hafi orðið að þeirri
ósk sinni þó dauða hennar bæri að
annarsstaðar. af sérstökum ástæð-
um. Þar hafði svo margt erfitt hand-
takið verið tekið og margur svita-
dropi fjölskyldunnar fallið í skaut
þeirrar jarðar af erfiði hennar, að
það var orðinn henni helgur staður.
Þar hafði hún líka notið margra
yndisstunda með fjölskyldu sinni og
uppvaxandi mannvænlegum barna-
börnum, sem nutu umhyggju
hennar.
1 byrjun febrúar s.l. tóku þau sig
til gömlu hjónin á Felli til dvalar á
Heilsuhælinu í Hveragerði, ætluðu
þeim til hvíldar og hressingar. Ný-
komin þangað veiktist Elisabet af
lungnabólgu og var flutt á gjörgæslu-
deild Borgarspítalans. Þar dvaldi
hún þar til yfir lauk. Hún var búin
að yfirstíga það veikindakast og
ákveðið var að útskrifa hana af
sjúkrahúsinu og senda hana heim til
vina og ættingja þar syðra þar sem
hún hugðist dvelja þar til hún gæti
haldið heim með bónda sínum. En
þá stóð svo á, að þar heima var ekki
hægt að taka á móti henni vegna
veikinda á því heimili. Var þá heim-
för hennar af sjúkrahúsinu frestað
um eina nótt. En þann dag hneig
hún örend niður. - Löngu og starf-
sömu lífi hennar var lokið. - Þannig
er gömlum og þreyttum gott að
hverfa frá þessu lífi yfir á Iand
eilífðarinnar.
Nýkomnum heim eftir stutta dvöl
á sjúkrahúsi er mér enn ljósara en
áður hvað erfitt hlutskipti bíður
margra ellihrumra og sjúkra á þeim
stofnunum þrátt fyrir ágæta aðhlynn-
ingu, fjarri öllu sínu og sínum. Því
er það kærkomin lausn að fá að
hverfa af þessu jarðvistarsvæði okk-
ar sem hún, þegar þrekið er þorrið
og starfsdeginum í raun og veru
lokið, þá er það náðargjöf. - Lík
hennar var flutt heim f flugvél þann
17. mars. Því fylgdu heim fósturdótt-
ir hennar og barnabörn til að fylgja
henni hinsta spölinn í þakkarskyni.
- Jarðarför hennar fór fram annan
páskadag. Hafði frestast um viku frá
því sem ætlað var vegna veðurfars.
Gott var að koma að Felli. Þar
mætti hverjum gestkomandi hlýja
og gestrisni. Þess naut ég oft og
margir aðrir. Þar átti Beta sinn hlut
í. Gott var að eiga þau hjónin að
nágrönnum og gott að njóta greið-
vikni þeirra.
Nú þegar leiðir skiljast eru henni
færðar þakkir fyrir það allt. Hún
hafði ung tekið á sínar herðar hús-
móðurskyldur og gegnt þeim skyld-
um lengur en nokkur önnur kona,
mér vitanlega, hér í sveitinni okkar
og með því lagt stóran skerf til
uppbyggingar heimila sinna og þess
samfélags, sem hér hefur verið búið
við, en á nú meira undir högg að
sækja en nokkru sinni fyrr. - Þar
stóð hún ókvikul á verði til hinstu
stundar. Vinir hennar skyldir og
vandalausir þakka henni það að
leiðarlokum.
Ég læt þessum fátæklegu minning-
arorðum um hina nýlátnu fermingar-
systur mína lokið, með þakklæti frá
mér og mínum fyrir samfylgdina.
Vini mínum, Guðmundi manni
hennar, dóttur hennar og öðrum
aðstandendum sendi ég samúðar-
kveðju mína og konu minnar. Heim-
ili hennar bið ég blessunar.
Guðmundur P. Valgeirsson
Suðurnesjamenn
VORHÁTÍÐ
Vorhátíð Framsóknarfélaganna í Keflavík verður haldin i
Glaumbergi (K.K. sal) föstudaginn 21. apríl og hefst ki.
19.30. Verð kr. 1.500,-
Steingrímur Jóhannes
Dagskrá: Ávarp, Steingrímur Hermannsson, forsætisráð-
herra. Jóhannes Kristjánsson flytur gamanmál.
Einsöngur, Guðmundur Sigurðsson við undirleik Gróu
Hreinsdóttur.
Góður matur - Happdrætti o.fl.
Sérstakir gestir verða Steingrímur Hermannsson og
Edda Guðmundsdóttir, Jóhann Einvarðsson og Guðný
Gunnarsdóttir, Níels Arni Lund og Kristjana Benedikt-
dóttir.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Nánari upplýsingar og miðapantanir ( símum: 13764
Drífa - 13484 Skúli - 15410 Gunnar.
Sunnlendingar!
Guðmundur Bjamason
Ómar Ragnarsson
VorfagnaðurframsóknarfélagannaíÁmessýsluverður
19. apríl n.k. í Hótel Selfoss.
Heiðursgestir verða Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðisráðherra og frú.
Litli Sam skemmtir með söng og Ómar Ragnarsson
kitlar hláturtaugamar.
Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi langt fram
á sumar.
Húsið opnað kl. 20.00.
Borðhald hefst kl. 21.00 stundvíslega.
Nánari upplýsingar og miðapantanir í símum:
31139 Guðfinna
33763 Halla
21170 Sigrún
21048 Gísli
34636 Sturla
Hörpukonur Hafnarfirði, Garðabæ og
Bessastaðah reppi:
Aðalfundur Hörpu
verður haldinn miðvikudaginn 26. apríl kl. 20.30 að Hverfisgötu 25,
Hafnarfirði.
Stjórnin.
Aðalfundur Félags framsóknar-
kvenna í Reykjavík
verður haldinn þriðjudaginn 2. maí kl. 20.30 að Rauðarárstíg 18,
Hótel Lind.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál. Stjórnin.