Tíminn - 20.04.1989, Blaðsíða 28
28 Tíminn
FÍmmtudágúr'ÍD. ápríl 1989
Kristín Eysteinsdóttir.
Afmæli
Kristín Eysteinsdóttir, Snóksdal, Dala-
sýslu er 80 ára á morgun, föstudaginn 21.
apríl.
Eiginmaður hennar var Pálmi Jónasson
bóndi og bjuggu þau í Snóksdal frá 1931.
Pálmi lést 1974, en Kristín býr enn í
Snóksdal.
Kristín tekur á móti gestum í félags-
hcimili Suðurdala, laugardaginn 22. apríl
eftir kl. 14:00.
Listasafn íslands:
MYND MÁNADARINS
Mynd aprílmánaðar í Listasafni íslands
er MOSIVIÐ VlFILSFELL eftir Jóhann-
es S. Kjarval. Myndin er unnin í olíu árið
1940, stærð hennar er 115 X 143.5 sm og
var hún keypt til Listasafnsins árið 1941.
Mosi við Vífilsfell hangir nú uppi í sal 1.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins" fer
frama í fylgd sérfræðings á fimmtudögum
kl. 13:30-14:45 og er leiðsögnin ókeypis.
Listasafnið er opið alla daga kl. 11:00-
17:00 og er veitingastofa hússins opin á
sama tíma.
Sumarfagnaður
Húnvetnmgafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur
sumarfagnað laugardaginn 22. apríl í
félagsheimili Seltjarnarness. Hljómsveit
örvars Kristinssonar leikur. Húsið opnað
kl. 21:00. Allir velkomnir.
Hönnum auglýsingu
FRÍTT
þegar þú auglýsir
í Tímanum
AUGLÝSINGASlMI 680001
BILALEIGA
meö utibu allt í kringurri
landiö, gera þer mögulegt
aö leigja bil á einum slað
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi?
interRent
Bilaleiga Akureyrar
Nýr sýningarsalur:
Art-Hún í Stangarhyl
Nýlega opnuðu myndlistarmennirnir
Elínborg Guðmundsdóttir, Erla B. Ax-
elsdóttir, Helga Ármanns, Margrét Sal-
ome Gunnarsdóttir og Sigrún Gunnars-
dóttir sýningu á verkum sínum í nýjum
sýningarsal að Stangarhyl 7, á Ártúnsholti
f Reykjavík.
Þær hafa allar stundað nám í myndlista-
og handíðaskólum hér á landi og erlendis.
Þær Elínborg, Sigrún og Margrét Salome
sýna hér verk sín í fyrsta sinn, en Helga
og Erla hafa sýnt áður og tekið þátt í
samsýningum.
Starfsemin að Stangarhyl 7 nefnist
Art-Hún og samanstendur af vinnustof-
um og sýningarsal þeirra.
Á sýningunni verða olíumálverk, past-
elmyndir, kolateikningar, grafík, skúlp-
túrar og aðrir leirmunir.
Sýningin verður opin virka daga kl.
13:00-18:00 og um helgar kl. 14:00-18:00.
Sýningunni lýkur 1. maí nk. Á milli
sýninga verður sýningarsalurinn starf-
ræktur sem sölugallerí eigenda Art-Hún
og verður þá opið virka daga kl. 13:00-
18:00.
Sýning í Nýlistasafni
Nýlistasafnið opnaði samsýningu laug-
ardaginn 15. apríl. Að sýningunni standa:
Ásta Ólafsdóttir, Finnbogi Pétursson,
Hannes Lárusson, Jón Sigurpálsson,
Kees Visser, Ólafus Sveinn Gíslason,
Pétur Magnússon, Ráðhildur Ingadóttir,
Svava Bjömsdóttir og Þór Vigfússon.
Þessi sýning er lokasýning safnsins í
núverandi húsnæði.
Safnið er opið daglega kl. 16:00-20:00
og um helgar kl. 14:00-20:00
Sýning í HAFNARB0RG
í Hafnarfirði
í Hafnarborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, stendur nú yfir mál-
verkasýning Jóns Gunnarssonar. Sýning-
in er opin kl. 14:00-19:00 alla daga nema
þriðjudaga. Sýningin stendur til 7. maí.
Ásgrímssafn
Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaða-
stræti 74, er opið á sunnudögum, þriðju-
dögum, fimmtudögum og laugardögum
kl. 13:30-16:00.
Listasafn Einars
Jónssonar opnaðá ný
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardaga og sunnudaga kl. 13:30-16:00.
Höggmyndagarðurinn er opinn daglega
frá kl. 11:00-17:00.
Sýning Mattheu í FÍM-salnum
Matthea Jónsdóttir sýnir olíumálverk
og vatnslitamyndir í FlM-salnum til 25.
apríl. Opið er kl. 13:00-18:00 virka daga,
en 14:00-18:00 um helgar.
Sölugallerí FlM er í kjallaranum og er
opið á sama tíma.
Málverkasýning Hatldórs Árna
í Listasafni ASÍ
Halldór Árni Sveinsson opnaði mál-
verkasýningu í Listasafni ASÍ, Grens-
ásvegi 16, laugard. 15. apríl.
Halldór Árni stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands 1982-’86
og lauk þaðan prófi í auglýsingateiknun.
Þetta er önnur einkasýning Halldórs, en
hann hefur einnig tekið þátt í samsýning-
um. Á sýningunni eru landslags- og
modelmyndir unnar í olíu, vatnsliti og
pastel.
Sýningin er opin virka daga kl. 16:00-
20:00 og um helgar kl. 14:00-20:00.
Alþýðuleikhúsið:
„Hvað gerðist í gær?“
Alþýðuleikhúsið sýnir leikritið „Hvað
gerðist í gær“ eftir Isabellu Leitner í
Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3, fimmtu-
daginn 20. apríl kl. 20:30, laugardaginn
22. kl. 20:30 og fimmtudaginn 27. kl.
20:30.
Þetta er einleikur, Guðlaug María
Bjarnadóttir fer með eina hlutverkið.
Miðasalan er opin virka daga kl. 16:00-
18:00 á skrifstofu Alþýðuleikhússins,
Vesturgötu 3, og sýningardaga við inn-
ganginn frá kl. 19:00-20:30. Miðapantan-
ir í síma 15185 allan sólarhringinn.
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í
dag fimmtudag. Kl. 14:00 - frjáls spila-
mennska. Kl. 19:30 - félagsvist og kl.
21:00 er dansað.
Athugið:
Göngu-Hrólfur leggur af stað í göngu
frá Nóatúni 17 kl. 10:00, laugardaginn 22.
apríl. Heitt á könnunni hjá Hrólfi að
lokinni göngu.
Opið hús í Tónabæ, laugardag kl.
14:00. Frjálst föndur, þar verður t.d.
prjónað, teiknað, málað og skorið út.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið heldur félagsvist
laugardaginn 22. apríl kl. 14:00 í Húna-
búð, Skeifunni 17.
Árni Ólafsson í hlutverki sínu sem
„Gvendur þribbi“.
Revían í Keflavík
Leikfélag Keflavíkur hefur í hálfan
mánuð sýnt revíuna „Við kynntumst fyrst
í Keflavík" eftir Omar Jóhannsson í
Félagsbíói. Leikstjóri er Hulda Ólafsdótt-
ir.
Um 30 leikarar og hljómlistarmenn
koma fram í sýningunni. Föstudaginn 21.
apríl kl. 21:00 verður allra seinasta
sýning.
Ganga Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á laugardag 22. apríl.
Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00.
Laugardagsganga Hana nú er fyrir alla
- unga og aldna. Markmið göngunnar er
samvera, súrefni og hreyfing. Nýlagað
molakaffi á boðstólum.
Kaffisala Kven*
félagsins Seltjarnar
Kvenfélagið Seltjörn heldur sína árlegu
kaffisölu í félagsheimilinu á Seltjamar-
nesi í dag, sumardaginn fyrsta.
Stórsveit Tónlistarskóla Seltjarnarness
kemur í heimsókn og leikur nokkur lög.
Húsið verður opnað kl. 14:30.
Sölusýning: Einnig verður í dag sölu-
sýning hjá eldri bæjarbúum á Seltjarnar-
nesi að Melabraut 5—7 og verður hún
opnuð kl. 14:00.
Útivistarferðir
Sumardagurinn fyrsti Id. 13:00 - Land-
námsgangan 10. ferð: Gengið með Laxár-
vogi í Hvalfirði út að Búðasandi. Skoðað-
ar rústir við Maríuhöfn eftir kaupstað frá
14. öld. Hugað aðfjörulífi.t.d. kræklingi.
Stórstraumsfjara. Nýtt fólk er hvatt til að
byrja í þessari skemmtilegu ferðasyrpu.
Enn eru eftir 13 ferðir. Tilgangurinn er að
ganga á mörkum landnáms Ingólfs. Brott-
för frá BSÍ, bensínsölu, farmiðar við bíl
(800 kr.)
Ath. að engin ferð er kl. 10:30.
Sunnudagsferð 23. apríl kl. 13:00 -
Eidvörp - útilegumannakofarnir. Skoðuð
ein mesta gtgaröð á Reykjanesskaga og
hugað að merkilegum fornminjum norð-
vestan Grindavíkur. Brottför frá BSÍ,
bensínsölu, farmiðar við bíl (1000 kr.)
Þórsmerkurferð - 4 dagar. Brottför
föstudagskvöldið 28. apríl. Einnig gengið
á Fimmvörðuháls og Mýrdalsjökul á
skíðum.
Tónleikar á Selfossi
Samkór Selfoss og Ámesingakórinn í
Reykjavík halda sameiginlega tónleika í
Selfosskirkju laugardaginn 22. apríl kl.
17:00.
Kóramir syngja fyrst hvor í sínu lagi og
síðan sameiginlega.
Á efnisskrá eru bæði innlend og erlend
lög.
Stjórnandi Samkórs Selfoss er Jón
Kristinn Cortes. Stjórnandi Árnesinga-
kórsins í Reykjavík er Sigurður Braga-
son. Undirleikarar: Úlrik Ólafsson og
Ólafur Flosason.
Einsöngvarar verða: Laufey Geirsdótt-
ir og Árni Sighvatsson.
Tónleikar
Kammermúsíkklúbbsins
Fimmtu tónleikar á starfsárinu 1988-
’89 Kammermúsíkklúbbsins verða föstu-
daginn 21. apríl kl. 20:30 í Bústaðakirkju.
Þar leikur Sinnhoffer-kvartettinn frá
Múnchen. Hann leikur hér á landi í sjötta
sinn. Fyrst kom hann hingað 1977 á 150.
ártíð Beethovens til þess að taka þátt í
heildarflutningi á strengjakvartettum
hans.
1 Bústaðakirkju 21. apríl er á efnisskrá
strengjakvartett nr. 1 eftir Leos Janácék
(1854-1928), strengjakvartett í As-dúr
eftir Antonin Dvorák (1841-1904) og
síðast strengjakvartett í f-moll eftir Beet-
hoven.
glettur
r r
POSTFAX TIMANS
Drögum vel úr ferð
við blindhæðir og brýr.
GÓÐA FERÐ
UMFEROAR
Irád