Tíminn - 08.04.1993, Blaðsíða 32

Tíminn - 08.04.1993, Blaðsíða 32
AUG LOTT# NYTTOG FERSKT DAGLEGA m alltatámkMkudög.un reiSholtsbakarí VÖLVUFELL113 - SÍMI73655 HOGG- V DEYFAR Versliö hjá fagmönnum tiÉlfflP— mmJm var ■ÉMHðAL- Hamarsböfða 1 - s. 67-6744 Tíniinn FIMMTUDAGUR 8. APRÍL1993 Söngleikur um „Vesturfarana" hugsanlega frumfluttur við opnun nýja óperuhússins í Gautaborg: ABBA-félagar koma til liðs við Garðar Cortes TVomp Garðars Cortes, listrænr stjómanda Stóra leikhússins í Gautaborg, hefur verið lagt á borðið. Hugsanlega verður nýja óperuhúsið í borginni opnað með frumuppfærslu á söngleik um „Vesturfarana" eftir gömlu ABBA- félagana Benny Anderson og Björn Uhtaeus. Styrr hefur staðið um Garðar Cort- es að undanfömu því að margir starfs- menn leikhússins telja að hann skorti forystuhæfileika og skipulagsgáfu. Meðal annars óttast menn að hann valdi ekki starfinu sem fylgir flutningi í nýtt og veglegt óperuhús við höfnina í Gautaborg og undirbúningi fyrir glæsilega opnunarsýningu haustið 1994. „Starfsfólkið hefur ekki fengið að vita hvað verður á efnisskránni," segir Garðar Cortes til útskýringar, en við- ræðum við söngleikjahöfundana hef- ur verið haldið vandlega leyndum. Gautaborgaróperan heillar Söngleikurinn „Vesturfaramir" byggist á sögu Vilhelms Mobergs með sama heiti, en sjónvarpsþættimir með Max von Sydow og Liv Ullman í aðal- hlutverkum urðu vinsælir víða, m.a. á íslandi. Bjöm og Benny úr ABBA hafa áður samið söngleikinn „Chess". Samningum milli Garðars Cortes og höfunda verksins er ekki lokið og enn kemur til greina að annað leikhús en nýja óperuhúsið í Gautaborg hreppi hnossið. Þó virðist heillandi að færa söngleikinn upp einmitt við höfnina í Gautaborg því úr þeirri höfn lögðu hundmð þúsunda sænskra vesturfara í lok síðustu aldar. Á hinn bóginn verða höfundar að ljúka verkinu þegar í haust, eigi að takast að sýna það við opnun Gautaborgarópemnnar. Hvaða leikhús verður að lokum fyrir valinu kemur í ljós seinna í vor. Garðar Cortes bráðlyndur Ágreiningurinn um listræna stjóm Garðars Cortes og samskipti hans við Garðar Cortes hefur spilað út trompi... undirmenn sína — hann las þeim pistilinn með eftirminnilegum hætti á starfsmannafundi nýlega — er ekki útkljáður. Garðar hefur ekki fengist til að ræða málið við sænska blaðamenn svo að hið sænska dagblað Arbetet styðst við viðtal Tímans (hinn 5. apríl) í grein í gær þar sem sjónarmið Garð- ars komu fram í fyrsta sinn. Um störf hans á íslandi segir að hon- um hafi tekist vel upp við að útvega fé handa íslensku ópemnni. „Með litlum fjármunum og óþrjótandi bjartsýni hefur Garðari Cortes og samstarfs- mönnum hans nánast á hverju leikári tekist að gera kraftaverk." En aðfinnsl- um em einnig gerð skil: „Þegar hann vildi syngja „Trúbadorinn" þá færðu menn „Trúbadorinn" á svið.“ Árekstra hans við Kristján Jóhannsson tenór- söngvara er sömuleiðis getið og Garð- ar Cortes er kallaður „hinn bráðlyndi íslenski listræni stjómandi." Mikið og flókiö mál Aðspurður um lausn á ágreiningnum um Garðar segir Sven-Gunnar Tillius, framkvæmdastjóri Stora theatem, að það sé „mikið verk og flókið mál sem ekki verður leitt til lykta í einu kaffi- hléi, en ekki er hægt að búa við ósætti alltof lengi." Stjóm leikhússins kemur saman til fundar í miðjum maímánuði en þá er ætlast til að eitthvað bitastætt hafi gerst í málinu, ef ekki fyrr. Tillius vill ekkert segja um hvort hugsað sé um uppstokkun á valdssviði forstöðu- manna í leikhúsinu vegna þessa. —Þór Jónsson, Svíþjóð Bjöm Ulvaeus th. og Benny Anderson úr ABBA eru tromp Garðars. ...ERLENDAR FRÉTTIR... SARAJEVO Barist kringum Srebrenica Foringi sveita Sameinuöu þjóöanna I Bosníu, Philippe Morillon hershöföingi, stjómaði áætlun um aö senda kanad- Iskar friöargæslusveitir til umsetnu mús- limaborgarinnar Srebrenica, aö þvi er embættismaöur S.þ. sagði i gær. Liösforingi i sveitum S.þ. sagði að skot- bardagar og sprengjuárásir heföu hafist aö nýju kringum Srebrenica eftir vopna- hlé undanfarinna daga. Samþykkt var aö koma á viöræöum til aö finna ásætt- anlegt nafn i staö gamla nafns lýöveld- isins Júgóslaviu sem hefur veriö bit- beiniö í fimmtán mánaöa átökum (búa Balkanskagans. MOSKVA Kjarnorkuslys í Síberíu Stjómvöld i Kreml hafa viöurkennt aö geislavirk efni hafi lekiö úr kjamaveri i Siberlu. Þetta er alvariegasta kjamorku- slys síöan sprenging varö í Tsjemóbýl áriö 1986. Geislamengun er sögö hafa oröið lltil. Verkamenn unnu i gær viö aö moka burtu snjó og jarövegi sem mengast haföi. Kjamorkumálaráöhena Rúss- lands dró úr fullyröingum varöandi slys- ið og sagði engan hafa orðiö fyrir alvar- legri geislun. PARlS Frakkar greiöa ffyrir GATT Frakkar standa ekki lengur I vegi fyrir framgangi GATT-viöræönanna og em tilbúnir til að ræða leiöir til aö höggva á hnútinn sem viöræðumar em komnar I. Þetta var haft eftir utanrikisráöherra Frakklands, Aiain Juppe. GENF 27.000 Aserar í klípu Sameinuöu þjóöimar héldu neyöarfund meö stjómvöldum i Aserbædjan á miö- vikudag um hvemig frelsa mætti 27.000 Asera sem lokuöust inni i umsátri Ar- mena i síöustu viku. MOSKVA Jeltsín aflar sér atkvæöa Bóris Jeltsín, forseti Rússlands, sagöist myndu heimsækja lönd Síberíu til aö afla sér aukins stuönings fýrir þjóóarat- kvæöagreiösluna síöar i mánuöinum. ITOKYO sagöi Douglas Hurd, utanrík- isráöherra Breta, aö þróun mála (Rúss- landi gæti leitt til þess aö ráöstefnu leiö- toga sjö helstu iönrfkja yrði frestaö. Ráögert var að ráöstefnan færi fram I Tokyo í júll. NÝJA DELHI Palestínumenn vilja semja Palestinumenn munu ekki draga sig endanlega útúr viöræöum um ffiö I Mið- austuriöndum þótt þeir taki ef til vill ekki þátt I næstu lotu sem hefst þann tuttug- asta april. Þetta sagöi háttsettur fulltrúi frelsissamtaka Palestínuaraba i heim- sókn sinni til Indlands. RÓM Andreotti í ónáö Fynverandi forsætisráöhena Italíu, Gi- ulio Andreotti, varö aö sætta sig við frekari álitshnekki I flokki sinum, flokki kristilegra demókrata. Fyrrverandi sam- starfsmaöur hans og hægri hönd haföi veriö myrtur. I Ijós kom að sá haföi haft tengsl viö itölsku mafiuna á Sikiley. MADRlD Veröur kosið á Spáni? Spánskir sósíalistar sem fara meö völd- in á Spáni eiga viö erflöleika aö striöa. Menn geta sér þess til aö þeir muni annaö hvort neyðast til aö láta einhverja háttsetta stjómmálamenn sina fjúka ell- egar efna til kosninga. WARRINGTON, Englandi Mun deila Noröur-íra leysast? Fólk á Englandi og (riandi er slegiö yflr láti tveggja bama I sþrengjutilræöi IRA- manna. Valdamenn beggja landanna komu samari til minningarathafnar á miövikudag. Teikn eru á lofti um aö at- buröurinn geti leitt til þess aö hafnar veröi friöarviöræöur um málefni Noröur- Iriands. DENNI DÆMALAUSI „Mamma segir að ég hafi sett fullt af nýjum metum I dag. “ J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.