Tíminn - 07.08.1993, Side 5
Laugardagur 7.há|úst 1993
Tíminn 5
Það er alkunna að á hverju hausti, þegar rík-
isstjómir rembast við að ná sem minnstum
halla á því fjárlagafrumvarpi er fyrir liggur
að kynna á Alþingi, þá er spamaðar helst
leitað í þeim málaflokkum þar sem útgjöldin
em mest. Það þarf hins vegar ekki að vera að
þar sé auðveldast að spara. í viðkvæmum
málaflokkum eins og heilbrigðis- og trygg-
ingamálunum verður því að fara afskaplega
varlega í fyrirætlunum um spamað, þó að
vitað sé að á mörgum sviðum innan þessara
málaflokka megi margt betur fara og eftir
vemlegum spamaði sé að slægjast í ríkisút-
gjöldunum.
Mörg undanfarin ár hafa stjómvöld haft
áhyggjur af háum lyfjakostnaði hér á landi.
Fyrrverandi ríkisstjórn undir fomstu Fram-
sóknarflokksins náði ótrúlegum árangri í
lækkun lyfjakostnaðar. Það var gert með
hagræðingu, spamaði og skipulagsbreyting-
um á ýmsum sviðum, en forðast var að
leggja auknar skattaálögur á sjúklingana
með því að velta hluta af lyíjakostnaði ríkis-
ins yfir á þá.
Alþýöuflokkurinn á
móti frelsinu
Heilbrigðisráðherra Framsóknarflokksins í
síðustu ríkisstjóm vildi ná meiri árangri í
lækkun lyfjakostnaðar á þeim tíma en náðst
hafði. Það vildi hann gera með frelsi í lyfsölu
og lyfjadreifingu og aukinni samkeppni. Því
lagði hann fyrir Alþingi á þeim tíma fmm-
varp til laga um lyfsölu og lyfjadreifingu,
sem hafði það að markmiði að lækka lyfja-
kostnaðinn, en skattleggja ekki neytendur
lyfjanna, þ.e. sjúklinga. En Alþýðuflokkur-
inn, sem þá sat í ríkisstjóm með Framsókn-
arflokknum, treysti sér ekki til að standa að
því fmmvarpi á þeim tíma. Þegar hins vegar
Alþýðuflokkurinn komst til valda og fór með
þennan viðkvæma málaflokk sem eru heil-
brigðismálin, þá var hans fyrsta verk að
gera breytingar á
Finnur Ingólfsson skrifar
hækka skattaálögur á sjúklinga með því að
velta stómm hluta af lyfjaútgjöldum ríkisins
beint yfir á sjúklingana. í tvö ár var beðið eft-
ir fmmvarpi frá ríkisstjórn Davíðs Oddsson-
ar, sem gerði ráð fyrir skipulagsbreytingum
á lyfsölu og lyfjadreifingu í landinu.
FVrrverandi heilbrigðisráðherra, Sighvatur
Björgvinsson, lýsti því yfir hvað eftir annað
að frumvarpið kæmi fram á Alþingi og yrði
þar samþykkt. Þegar svo ffumvarpið var
loksins lagt fram,
þá gengu þungar
ásakanir á milli
ríkisstjórnar-
flokkanna um
fmmvarpið þar
sem þeir brigsl-
uðu hvor öðmm
um svik við frels-
ið og frjálsa sam-
keppni.
Það þarf engum
að koma á óvart þó að þessir flokkar séu
þessum dyggðum ekki trúir, það staðfestir
reynslan. Fmmvarpið var hins vegar gallað
að mörgu leyti. Á því þurfti að gera viðamikl-
ar breytingar, ef ekki hefði átt að verða stór-
slys í lyfsölu og lyfjadreifingu í landinu.
Hluti af stjómarandstöðunni lýsti sig tilbú-
inn til samvinnu við ríkisstjómarflokkana
um viðamiklar breytingar á ffumvarpinu,
sem tryggði frelsi í lyfsölu og lyfjadreifingu
og aukna samkeppni, en jafnframt trygga og
ömgga lyfjadreifingu um land allt. Niður-
staðan varð hins vegar sú að fmmvarpið
fékkst ekki samþykkt á Alþingi vegna ágrein-
ings milli stjómarflokkanna um málið. Það
þarf í sjálfu sér engum að koma á óvart, því
ljóst var strax í upphafi að ffumvarpið var
ekki lagt fram með stuðningi ríkisstjómar-
innar og aldrei stóð til að lögfesta það. Ríkis-
stjómarflokkamir treystu sér ekki til gmnd-
valiarbreytinga á lyfsölu- og lyfjadreifingar-
málum í landinu. Þeim fannst hins vegar
miklu þægilegra að velta auknum lyfja-
kostnaði yfir á sjúklingana, þá sem síst
skyldi. Sjálfstæðisflokkurinn boðar frelsi fyr-
ir suma en aðra ekki og samkeppni má að-
eins nýta til að hygla þeim útvöldu.
Reynslan af Alþýðuflokknum frá fyrri ríkis-
stjórn sannar að sá flokkur meinar ekkert
með yfirlýsingum sínum um ffelsi og aukna
samkeppni í lyfjaversluninni. Það verður því
fróðlegt að fylgjast með hvað hinn nýi heil-
brigðisráðherra
Alþýðuflokksins,
sá maður sem
mest talaði um
að Alþýðuflokk-
urinn yrði að
vera trúr sinni
félagsmála-
stefnu, muni nú
gera í lyfsölu- og
lyfjadreifingar-
málunum. Mun
hann halda áfram að skattleggja sjúklingana
eða mun hann koma fram á Alþingi með til-
lögur, sem gera ráð fyrir breyttri skipan
lyfjamála í landinu?
Frumvarp framsóknar-
manna
Til að fylgja því stefnumiði Framsóknar-
flokksins eftir að stokka upp lyfsölu og lyfja-
dreifingu í landinu og ná þannig fram hag-
ræðingu og sparnaði í ríkisútgjöldum, þá
flutti ég ásamt fleiri þingmönnum Fram-
sóknarflokksins frumvarp til lyfjalaga fyrir
Alþingi. Helstu nýmæli þess frá núgildandi
lögum eru í fyrsta lagi að gerðar eru grund-
vallarbreytingar á stjórnun og skipulagi
lyfjamála, sem miða að því að gera kerfið
sem einfaldast og skilvirkast.
í öðru lagi er gert ráð fyrir að einokunarað-
staða lyfsala verði afnumin og komið verði á
samkeppni í heildsölu og smásölu lyfja.
Frumvarpið gerði ráð fyrir að stofnað verði
hlutafélag sem hafi með höndum smásölu-
dreifingu lyfja.
í þriðja lagi er gert ráð fyrir nýju fyrir-
komulagi í lyfjainnkaupum. Lyijakaupa-
nefnd verði komið á fót og í henni eigi sæti
fulltrúar ASÍ, BSRB, Tryggingastofnunar
ríkisins og heilbrigðisyfirvalda, allt fulltrúar
þeirra sem mestra hagsmuna eiga að gæta
að inn sé keypt sem ódýrast.
í fjórða lagi er gerð grundvallarbreyting á
fyrirkomulagi verðlagningar lyfja með því að
breyta innkaupamáta og nýta sér alþjóðleg-
an markað í þeim efnum til að ná lyfjaverð-
inu niður. Eftir því sem verð og skilmálar
gerast hagstæðari hverju sinni, að uppfyllt-
um öryggiskröfum, má fullyrða, að ná megi
fram verulegri lækkun á innkaupsverði lyfja.
í fimmta lagi er gert ráð fyrir því að hægt sé
að bæta lyfsölu og lyfjadreifingu í landinu
frá því sem nú er með því að fjölga lyfsölu-
stöðum og færa þjónustuna sem næst fólk-
inu.
Spamaður gæti skipt
hundruðum milljóna
Sparnaður samkvæmt frumvarpi þessu
kæmi fyrst og fremst fram í lægra verði lyfja
vegna breytts fyrirkomulags í verðlagningu,
þar sem þeim aðilum, sem mestra hags-
muna hafa að gæta að verð sé sem lægst, er
jafnan falið að annast samninga um verð.
Með því að lækka lyfjaverð um 7-10%, eins
og heilbrigðisyfirvöldum í nágrannalöndum
hefur tekist með svipuðu fyrirkomulagi og
hér er lagt til, mætti lækka kostnað ríkisins
vegna lyfjakaupa um hundruð milljóna
króna. Það má gera án þess að velta þeim
spamaði, sem ríkið vill ná fram í lyfjakostn-
aði, yfir á notendur lyfjanna, sem í flestum
tilfellum eiga erfitt með að bera aukin út-
gjöld.