Tíminn - 07.08.1993, Side 13

Tíminn - 07.08.1993, Side 13
Laugardagur 7. ágúst 1993 Tíminn 13 stýrið er heldur nærri líkaman- um en undirritaður telur æski- legt, ef svo óheppilega vildi til að mikið yrði skyndilega að gera á stýrinu. Eiginlega er þessi bekkur það sem helst má finna að hvað varð- ar vinnusvæði ökumanns, en þess ber að geta að fáanlegir eru mjög góðir stólar í bílinn gegn hóflegri aukagreiðslu. Þá má einnig finna að því að rafknúin stilling fyrir útispegl- ana er nokkuð langt í burtu og þarf að teygja vinstri handlegg nokkuð fram til að ná til stilling- arinnar og raunar ljósarofans, sem þar er við hliðina. Þá er það og galli að hvorki skuli vera snúningshraðamælir né olíu- þrpstimælir. Á hinn bóginn er ýmislegt gott við innréttingu og stjórntæki í bflnum. Það er t.d. auðvelt að stilla miðstöðina, sem er bæði öflug og hljóðlát, og útvarpið er alveg prýðilegt. Útsýni er fínt til allra átta og útispeglarnir alveg fullnægjandi. Þá eru litlar opn- anlegar vindrúður framan við hliðarrúðurnar, eins og tíðkaðist í bflum fram undir árið 1970 og margir sakna í nýrri bflum. Þær komu sér ekki illa í sólskininu og hitamollunni. Vélin er sem fyrr segir mjög sérstök og skemmtileg og nógu öflug til að knýja 7-8 tonna vörubfl. Hún er með beinni inn- spýtingu, sem gerir hana nokk- uð háværa, en nýting brennslu- olíunnar verður hins vegar þeim mun betri og þar með aflið og togið mikið meira, sérstaklega á lágum snúningi. Auk þess hæfa forþjöppur vélum með beinni innspýtingu (ekkert forbruna- hólQ mjög vel og hér er það vissulega raunin. Hér skortir aldrei afl og það ætti að vera heppilegt fyrir þá, sem kannski vildu breyta þessum bflum, hækka þá og setja þá á stærri dekk. Slíkar breytingar yrðu auðveld- ar hér. Dodge Ram er byggður á sterkri grind og hefur níðsterkar Dana-hásingar að aftan og fram- an og svo þessa öflugu vél. Hann er óbreyttur talsvert háfættur, en þessutan myndi það strax breyta miklu að setja undir hann stærri dekk en þau sem undir honum eru, en þau eru óttalegar mjónur. Með stærri og belgmeiri dekkjum yrði þetta hið mesta torfærutröll, sem færi létt með að skríða upp fjallahlíðar og renna um jökla. Dekkin eru hálfgeröar mjónur og eiginlega allt of lítil fyrir þennan mikla bll, sem raunar þarf ekki annarra breytinga viö en ný og stærri hjól til aö veröa hið mesta torfærutrðH. Hásingarnar eru af gerðinni Dana 4.10 og afturdrifiö er læsanlegt. Hér er ekkert til sparaö I efni og styrk. Rauðhálsabifreið Innréttingin er miðuð við að þetta sé vinnubfll. Þannig eru gúmmímottur á gólfum, sem auðvelt er að halda hreinum, og sætisáklæðið er úr sterkri ullar- og akrýlblöndu. Manni finnst eiginlega að maður ætti að vera þverhaus, eða rauðháls á amer- íska vísu, með derhúfu og í rauðköflóttri skyrtu, í þessum bfl og í farteskinu skuli vera haglabyssa og sexkippa af Bud- weiser. Dodge Dakota Club Cab Sport 4x4: JEPPA-EIGENDUR GERIÐ VERÐ- OG GÆÐASAMANBURÐ A AUKAHLUTUM BFCoodrich n.ikh, ■■■ ■ GÆOI Á GÓÐU VEROI A/T 35“ - 15 Verð kr. 14.962 stgr. Ljóskastarar 130 w Verfl kr. 3.605,- stgr. Ljósabogar Verö frá kr. 7.592,- stgr. w Rafmagnsspil Mx 8000 Verð kr. 53.305 stgr. Vagnhöfða 23 • Sími 685825 • Fax 674340 AÐEINS ÞAÐ BESTA ER NOGU GOTT Arrv&rlcon C^uÁpnve^vl Piasthúöaóar jeppa■ og fólksbilafelgur 7" Verð frá kr. 3.300 10” Verfl frá kr. 4.489,-stgr. 12” Verð frá kr. 9.405 GANGBRETTI Verð frá kr. 11.900 stgr. DAMCHO MÞAMCHO ItjnpnHW ItinKniHW Demparar Verfl kr. 3.980,- stgr. Framfjöóur Verflfrákr. 6.491,-stgr. VERKSTÆD! A STAÐNUM GERUM FÖST VERÐTILBOÐ Pallhús Verö frá kr. 85.310,- stgr. Radial MUDDER 38“ - 15 Verö kr. 26.273,- stgr. Drifhlutfall 5:71 Verö kr. 19.950,- stgr. Loftlæsingar Verö kr. 59.800,- stgr. GREIÐSLUKJÖR ALLTAÐ 18 MÁNUÐIR Lúxusbifreiö í gervi Dodge Dakota Club Cab Sport 4x4 er lúxusbill dulbúinn sem lítill vörublll. Hann er meö 230 hestafla vél, fjöguna hraöa sjálfskiptingu, skriöstilli, samlæsingu og rafknúnar rúöuvindur og spegla og fullkomnar hljómgræjur og kostar meö vsk. 2.521.000,-krónur. vörubíls Prófaöu nú þennan þarna, ef þú vilt fá smá kúltúr eftir hrámetið," sagði Davíð Davíðs- són, stjómandi söiumála bandarískra bíla hjá Jöfri, þegar hann rétti mér lykla að gráum pallbíl eftir að ég hafði prófað trukkinn Dodge Ram. „Þessi heitir Dodge Dakota og er í raun lúxus- jeppi og verulega ólíkur hinum sem þú varst að skila,“ sagði Davíð. Á sfðunni hér á móti er sagt frá reynslunni af þeim fyrri, hinum hressa hrúti — Ram — og nú kemur lausleg huglæg lýsing á þeim síðari. Fýrstu hughrif eru þau að Dodge Dakota Club Cab Sport 4x4 er allt annar handleggur en hinn tröllslegi Ram. Samanburður er allt að því út úr kú, enda verður hann ekki reynd- ur að gagni. Lykli er stungið í hurðarskrána stýrismegin og læsingin fer af hurð- inni og líka hurðinni hinum megin. Maður sest undir stýri og hugsar: Hvað er hér að gerast? Er maður kominn út úr farfuglaheimili og inn á Hótel Holt? Svo gæti virst, enda er hér komið inn í allt annað umhverfi. Hér er ekki komið inn í bíl fyrir ein- hverja kúreka með skyggnishúfur, í köflóttum skyrtum, með haglabyssu afturí og sexkippu með Budweiser. Nei, hér er lúxusvagn dulbúinn sem smávörubfll og ekki pláss fyrir neina rusta, sem ekki kunna að bjóða góð- an daginn. Hér er umhverfi fyrir menn sem klæðast gráum jakkaföt- um og eru „diskret" í fínheitunum, eins og Danir segja, og konur í drögtum, sem sitja á Alþingi á dag- inn og setja þjóð sinni lög þegar þær mega vera að. Þessi lúxustilfinning staðhæfist betur þegar sett er í gang: Risavaxin átta strokka Magnum- vélin, 5,2 lítra og 230 hestafla, hrekkur í gang áður en maður nær að sleppa ræsilyklin- um og malar eins og köttur sem veit styrk sinn og þarf ekki einu sinni að ræskja sig til að sýna og staðfesta afl sitt Best að líta á stjómkerfið og stilla sætið og speglana: Jú, hér er að am- erískum vanda ljósarofi vinstra meg- in á mælaborðinu og þótt að dag- ljósabúnaður sé vissulega lögboð- inn, er rétt að toga í rofann svona til öryggis og stilla útispeglana með raftökkunum sem þama em við hliðina. Eftir að hafa stillt sætið þannig að skrokkur ökumanns, ítur- vaxinn um miðjuna, passar bærilega takk undir stýrinu, lappimar ná nið- ur á fótstigin fyrir hemla, bensíngjöf og stöðuhemil og lúkumar nái að grípa um stýrishjólið. ökumaður finnur undir eins að hér situr hann í ágætum stól og vinstri hönd þreifar eftir handföngum, sem

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.