Tíminn - 07.08.1993, Side 14
14 Tíminn
Laugardagur 7. ágúst 1993
Hér er ekki um aö litast eins og í einhverju vinnutæki, heldur I lúxusbíl.
gera kleift að stilla stuðning við mjó-
hrygg miðaldra kyrrsetumanns. Hér
eru teppi á gólfum, sem ná allt aftur
í stýrishúsið þar sem þröngt sæti er.
Reynsluökumaður sér strax að þetta
sæti gæti rúmað með ágætum dótt-
ur hans unga og Schaeferhund stór-
vaxinn svo sem eins og eina þing-
mannaleið eða tvær.
Vélin suðar rólega og eins og hún
bíði eftir að fá skipun um að gera
eitthvað. Svo ökumaður tekur í
stöng á stýrislegg og færir niður þar
til ör vísar á stafinn D, rétt neðan við
hraðamælinn. Smá kippur fer um
Dodge Dakota pallbílinn og hann
mjakast af stað og þegar ökumaður-
inn drepur hægri fæti á bensínfetil,
er eins og orka leysist úr læðingi og
„bíllinn kippist við“, eins og segir í
ljóði Ómars Ragnarssonar um kapp-
aksturinn við Fíatinn.
Við ökum út á Nýbýlaveginn og bíll-
inn, sem lítur út eins og hálfgildings
vörubíll með þennan pall fyrir aftan,
hagar sér ekki sem slíkur, heldur
eins og lúxusbíll, allur teppalagður
og mjög hljóðlátur. Dodge Dakota
rétt suðar eins og malandi köttur og
gefur til kynna að hann geti ýmis-
legt, en nenni ekki — rétt núna.
Smá suð heyrist í hjólunum við
veginn og í vélinni, sem gefur til
kynna ónotað afl. Fyrir sjónum öku-
manns er mælaborð og þar eru mæl-
ar fyrir snúningshraða vélar, olíu-
þrýsting, kælivatnshita, eldsneyti og
rafspennu á geymi, auk aðvörunar-
ljósa. Þá eru hliðarrúðuvindur raf-
knúnar og samlæsing á hurðunum
tveimur. Opnanleg afturrúða er fyrir
aftan og þegar sólin skín og heitt er í
veðri er ekki vitlaust að opna hana
lítillega og láta miðstöðvarviftuna
blása aðeins til að endumýja loftið
inni.
Við ökum út Suðurlandsveginn og
ökumaður þyngir hægri fótinn á
bensíngjöftnni og 230 hestafla
Magnumvélin svarar að bragði og
eykur hraða þessa „vörubfls" um 40
km á klst. á augabragði, eða úr 60 í
100. Það hangir í því að afturhjólin
spóli og bfllinn æðir áfram og fram
úr einhverju 16 ventla GTi hrís-
grjónatrogi smáu.
Sjálfskiptingin er fjögurra hraða, en
fjórða hraðastigið bætist við með því
að ýta á rofa merktan OD on/off
vinstra megin við stýrislegginn í
grennd við takkana þar sem maður
stillir speglana og kveikir á ljósun-
um. Ef ekki liggur þeim mun meira
á, þá skiptir bfllinn sér í efsta gírinn,
sé ljós á OD-rofanum sem sýnir „on“,
eða á, við þetta 120 km, en lætur það
eiga sig ef Ijósið er ekki á. Ef maður
vill svo hafa það verulega þægilegt á
Iangkeyrslu, er skriðstillir í bflnum
sem mjög auðvelt er að stilla.
Liggi manni mjög á og ef enginn er
nálægur, þá er auðvitað hægt að
þrusa í botn. Þá gerist heilmikið og
viðbragðið er gríðaröflugt, enda er
þessi lúxusvagn, dulbúinn sem smá-
vörubfll, í flokki öflugustu bfla. Sé
gefið í botn á malarvegi er aflið slíkt
að afturhjólin spóla viðstöðulaust
löngu eftir að löglegum hámarks-
hraða er náð. í slíku aksturslagi er
auðvitað engin glóra, en ef einhverj-
um skyldi liggja þvflík ósköp á á mal-
arvegi, þá væri meira vit að hafa bfl-
inn í framdrifi líka. Þá er hann víst
einar 7-9 sekúndur að ná hundrað-
inu og þetta 6-8 á malbiki.
Volkswagen Caravelle Syncro:
Bíll fyrir skólabíl-
stióra og landpósta
\iolkswagen Caravelle erfjórða kynslóð „rúg-
V brauðsins" velþekkta og sú útgáfa, sem Tím-
inn reynsluók, er sérstaklega innréttuð til fólks-
flutninga og er af lengri gerð. Caravellan er fram
leidd í tveimur lengdum. Sú styttri er 4,655 m
löng, en hin lengri 5,055. Lengd milli hjóla er í
fyrra tilfellinu 2,92 m, en í því síðara 3,32 m.
Beygjuradíus þess styttri er 11,7, en þess lengri
12,9.
Það var semsagt lengri gerðin
sem við reynsluókum. Bíllinn er
innréttaður fyrir 9 farþega í ansi
þægilegum sætum. Hann er með
fimm strokka dísilvél, sem er sér-
lega þýðgeng og hljóðlát og í
akstri verður þess varla vart að það
sé yfirhöfuð dísilvél undir vélar-
hlífinni, því að auk þess sem vélin
er þýðgeng og hljóðlát er vand-
virknisleg hljóðeinangrun allt í
kringum hana.
Vélin er 2,4 lítra, gefur 78 hestöfl
við 3.700 snúninga og það verður
SUPER SWAMPER
VINSÆLUSTU TORF/ERUDEKK
I AMERIKU
Sl/fRÐ GERÐ STGR.VERÐ
215/85R15 RADIAL/TSL 8.550,-
32X10.50R15 RADIAL/TSL 13.775,-
38X15,50R15 RADIAL/TSL 26.220,-
265/80R16 RADIAL/TSL 13.281,-
36X14,50R16,5 RADIAL/TSL 22.976,-
38X15.50R16.5 RADIAL/TSL 25.665.-
36/12,50-15 TSL/SX 17.290,-
38/14,50-15 TSL/SX 20.140,-
36/12,50-16,5 TSL/SX 17.723.-
44/19,5-15 TSL/B0GGER 38.048,-
44/19,5-16,5 TSL/BOGGER 39.112,-
33X12,50-15 TSL/TH0RNBIRD 15,604,-
GÚMMÍVINNUSTOFAN HF.
RÉTTARHÁLSI 2 SÍMI 814008 OG 814009 SKIPHOLTI 35 SÍMI 31055
að segjast eins og er að þetta stór-
um bfl veitti ekkert af þetta 20
hestöflum til viðbótar, einkanlega
þegar bfllinn er fullur af farþegum
og farangri.
Bfllinn er með drifi á öllum hjól-
um og er mismunadrif nú á milli
fram- og afturdrifs, þannig að ekki
er lengur nein merkjanleg spenna
milli fram- og afturdrifs, t.d. í
kröppum beygjum. Þegar mikið
liggur hins vegar við, er hægt að
læsa þessu mismunadrifi og þá
gerist bfllinn bara merkilega dug-
legur í þungu færi. Hið læsta fjór-
hjóladrif er sett á með því að toga í
takka í mælaborðinu, þrýstiloft sér
um að læsa drifinu og aðvörunar-
ljós kviknar.
Það skal þó tekið fram að hér er
ekki um að ræða neina torfærubif-
reið og enginn skyldi þannig ætla
bflnum um of. Hann hefur engan
millikassa eða niðurfærslugír og
fer því hraðar í torfærumar en
hreinræktaðir torfærubflar gera.
En við skulum ekki draga úr mik-
ilvægi fjórhjóladrifsins, til dæmis
þegar færð er þung vegna snjóa.
Vegna þess er það alveg klárt að
Syncro- rúgbrauð fer miklu lengra
en rúgbrauð með framhjóladrifinu
einu saman og auk þess er Syncro-
bfllinn mun stöðugri og ömggari í
hálku og á lausamöl. Þess vegna
hlýtur þessi bfll að henta mjög vel
fyrir t.d. fólk, sem þarf að vera á
ferðinni í hvaða veðri og færð sem
er, svo sem skólabflstjóra eða land-
pósta. Þeir ættu að komast leiðar
sinnar, nema í alverstu stórhríð-
um.
Fyrir þá, sem þurfa að aka mikið,
er þetta fyrirtaks vinnustaður. AIl-
ur aðbúnaður og vinnuumhverfi
ökumanns er með því besta sem
gerist. Bfllinn er hljóðlátur, sem
fyrr segir, hann er mjög góður og
nákvæmur í stýri, hemlar em
hreint fyrirtak og þyngdardreif-
ingin virðist sérlega vel heppnuð,
því hann klessuliggur þótt undir
sé holóttur vegur og lausamöl og
kemur þessu til viðbótar fyrirtaks-
góð fjöðmn.
Bflstjórasætið er mjög þægilegt
og fellur vel að búknum, stýrið
hallar þægilega, allir mælar em
fyrir sjónum og öll stjórntæki við
höndina. Manni líður vel undir
stýri, situr hátt og sér vel yfir veg-
inn til allra átta og rými fyrir
handleggi og fætur er fyrirtak.
Gírkassi er fimm gfra og skipting-
in er góð og greið. Vélin er að mati
skrifara heldur lítil fyrir þetta mik-
inn bfl, hún togar ekki sterklega á
lágum snúningi og því þarf að
keyra hana talsvert út í gímnum.
Svona til fróðleiks þá er hámarks-
snúningsvægið 164 Nm á 1800-
2200 snúningum.
Innréttingin er mjög þægileg og
smekkleg og sætin góð. Miðstöðin
er öflug og fyllilega nægjanleg fyr-
ir þennan stóra bfl. Samlæsing er
á öllum dymm, útvarpið er öflugt
og fiöldi hátalara um allan bíl til
Farþegarýmiö er smekklega innréttaö
og sætin eru afbragö.