Tíminn - 07.08.1993, Side 16

Tíminn - 07.08.1993, Side 16
16Tíminn Laugardagur 7. ágúst 1993 breyta bílum í torfærutröll! Tímamyndir Ami Bjama Jón Hólm við einn Ford Econoline, sem verió eraó breyta hjá Fjallabíl- um. Aó hans sögn færist þaö I vöxt aö rlkisstofnanir og björgunarsveitir láti breyta nýjum bílum, þannig aö þeir fái betri aksturseiginleika og séu um leiö færir f flestan sjó þegar mal- bikinu sleppir. getu til þess að gera það vel. Vilji menn hins vegar spara sér þessa fyr- irhöfn, má benda á þau nýsmíða- verkstæði sem hafa leyfi til þess að smíða hluti sem teljast til öryggisút- búnaðar bfls. Upplýsingar um hvar hægt er að fá þessa þjónustu er hægt að fá hjá Iðntæknistofnun. Mörg dæmi þess að þurfí að smíða allt upp aftur „Það er til fjöldi manna, sem kunna ágætlega að breyta," segir Jón Hólm. „Þessi smíði getur þó að hluta til verið mjög vandasöm og oft koma þessir menn til okkar og láta okkur smíða stýrisstangir og annan öryggisbúnað. Það getur verið var- hugavert fyrir menn, sem ekki kunna til verka, að gera þetta." En eru þess mörg dæmi að það þurfi að endursmíða bfla, sem eru hækkaðir og breytt hjá fúskurum? Jú, jú, svoleiðis tilfelli höfum við margoft fengið inn til okkar. Menn hafa verið að kaupa bfla, sem eru illa smíðaðir og komið í ljós síðar að þetta þarf allt að gera upp á nýtt." Það er dýrt að hækka bfl upp og setja á breiðari dekk, breyta stýris- gangi og fleiru. Þess vegna er ekki mælt með því að menn séu að breyta of gömlum bflum; þær breytingar geta kostað meira en bflverðið og síðan ekki skilað sér sem neinu nemur í endursöluverði. Þá er einn- ig mælt með því að til breytinga séu fengnir menn sem kunna til verka, varahlutir sem eru í lagi og eftii sem duga. Sem dæmi um verð á þeim bflum, sem Fjallabflar breyta aðallega, en það eru Globusbflamir, nefnir Jón Hólm að það er hægt að hækka Ford Explorer lítillega upp og breyta demparabúnaði fyrir 35 þúsund krónur. Vilji menn hins vegar hækka hann verulega upp, setja undir hann breið dekk og stórar felgur, auka millikassa, spil og fleira í þeim dúmum, er hægt að eyða allt að 1 milljón króna í þessar breyting- ar. Dýmstu breytingamar á Econo- line nema tæplega tveimur milljón- um króna, enda er þá verið að tala um að smíða nær óstöðvandi fjalla- tmkk úr venjulegum sendiferðabfl. Venjulegur sendiferöabíll og til sam- anburöar annar sem búiö er aö breyta. Þessi breyting kostaöi meö efni, vinnu og aukahlutum um 1200 þúsund krónur. Litið inn hjá sérhæfðu jeppabreytingaverkstæði: Fjallabílar—Stál og stansar hf. ereitt af fáum verk- stæðum sem hafa sérhæft sig í breytingum á jeppum og sendiferðabílum. Mesta reynslu hafa þeir hjá Fjallabílum af breytingum á Ford Econoline sendi- ferðabílum, en Globus flytur þessa bíla inn eingöngu afturhjóladrifna. Þeir hjá Fjallabílum hafa um þessar mundir umsmíðað um hundrað bíla af þessari tegund og breytt sakleysislegum sendiferðabílum í öfluga Ijallatrukka. Búið að breyta fíest- um tegundum „Það er búið að breyta óhemju mörgum jeppum og sendiferðabfl- um hér á landi; flestöllum gerðum," segir Jón Hólm, rennismiður og stofnandi Fjallabfla. FVrirtæki hans er tiltölulega ungt, stofnað 1987, enda má segja að það hafi vart verið markaður fyrir sérhæfð breytinga- verkstæði fyrr en á s.l. áratug. Áður höfðu menn verið að hækka upp jeppa, setja á þá spil og breyta þeim í öflugri torfærubfla, en í mun minna mæli heldur en þekkist í dag. „Það má segja að breytingar á jepp- unum hafi komist á skrið með fýrstu torfærukeppnunum í kringum 1970, en í kjölfar þeirra fylgdu stóru dekkin," segir Jón. ,Menn byrjuðu á mykjudreifaradekkjum; urðu sér úti um breið dekk undan mykjudreifur- um og það voru fyrstu stóru dekkin sem látin voru undir breytta jeppa." Ekki verið að skemma aksturseiginleika Þeir, sem lagst hafa gegn því að ver- ið sé að hækka upp bfla og breyta þeim, rökstyðja gjaman mál sitt með því að verið sé að skemma akst- urseiginleika þeirra. Þessu hafnar Jón Hólm og bendir á að í mörgum tilfellum breytist aksturseiginleikar til hins betra með betri fjaðrabúnaði og breyttu demparakerfi. „Við hækkum reyndar bflana upp,“ segir hann, „en um leið eru þeir komnir á breiðari felgur og dekk og eru eftir sem áður jafn stöðugir. Það er lítið mál að taka sumar jeppategundir og breyta þeim þannig að þær verði mun betri í akstri." — Getur þú nefnt dæmi um teg- undir sem má laga á þennan hátt? „Þær eru margar, en það er alltaf viðkvæmt mál að nefna einstakar tegundir. Við höfum t.d. bætt akst- urseiginleika Ford Explorer með því að setja undir hann öflugri dempara. Hann er ekkert einsdæmi, þetta gildir um flestalla jeppa sem þarf að aka á möl og utan vega. Oft koma þessir bflar á dempurum sem eru eingöngu gerðir fyrir akstur á mal- biki.“ Þeir, sem hækka upp jeppa sína og umsmíða þá sjálfir, þurfa að láta taka út breytingar — á stýrisgangi og öðru sem fellur undir öryggisat- riði — hjá Iðntæknistofnun. Það sama gildir reyndar um dráttarbeisli og annað sem tengist kerrum og aft- anívögnum. Þá er rafsuða röntgen- mynduð og séð til þess að öllum kröfum um öryggi sé framfylgt. Margir þeirra, sem eru að gera upp bfla í tómstundum og breyta þeim í torfærutröll, hafa bæði kunnáttu og

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.