Tíminn - 20.05.1995, Side 6
6
WtWlWM
Laugardagur 20. maí 1995
Ekki spillti þaö nú fyrir aö hitta sjálfa handboltaforustuna, kallana sem alltaferu í sjónvarpinu: prestinn Pálma
Matthíasson í landsliösnefndinni og Ólaf Schram, formann HSÍ. TímamyndirEÓ
Óhcett er aö segja aö Húsdýragaröurinn sé furöulegur mótsstaöur. Þegar
Drangsnesbörnin bar aö garöi íþessu reykvíska „fjósi" voru þar stödd
börn, sem voru í tónlistarnámi og höföu líka fengiö aö fara í Húsdýra-
garöinn. Þau höföu tekiö fiölurnar meö sér og spiluöu fyrir bola.
Krakkarnir styðja strákana
í gegnum súrt og sætt
Frá Einari Ólafssyni, fréttaritara Tím-
ans á Ströndum:
Þaö hefur gengið á ýmsu hjá
landsliðinu í handknattleik og
sitt sýnist hverjum um
frammistöðu „strákanna okk-
ar". Þrátt fyrir heldur slakan
árangur eru handboltakapp-
arnir hetjur ungmenna um
land allt, og þegar Ieikurinn
stóð sem hæst komst í fréttirn-
ar að krakkarnir úr grunnskól-
anum á Drangsnesi á Strönd-
um hafi ferðast um 700 kíló-
metra leið til þess að sjá hetj-
urnar sínar leika gegn Sviss.
Farið var að morgni dags og
komið um kl. 02 aðfaranótt
sunnudags aftur heim. Ferðin
heppnaðist vel og fyrir utan
handbolta náðu yngstu nem-
endurnir að fara í Húsdýra- og
fjölskyldugarðinn áður en
haldið var í „Höllina". Ham-
borgarastaður var sóttur heim
eftir leikinn og punkturinn
settur yfir i-ib með því að sjá
„heitustu" grínmyndina í
bænum, eins og einn nemend-
anna orðaði þaö.
Nú er ferðasjóðurinn tómur,
en nemendur hafa ekki
áhyggjur af því. Aðspurð
sögðu krakkarnir að ferðin
hafi verið frábær og nú gætu
þau hress og endurnærð (eftir
erfiðan vetur) einbeitt sér að
prófunum sem eru að byrja.
Þess má geta ab minjagripir frá
HM eru algeng sjón á Drangs-
nesi um þessar mundir. ■
Þaö er alltaf dálítiö œvintýri aö komast á hamborgarastaö í Reykjavík!
Áfram ísland! Krakkarnir voru í miklu stuöi á leiöinni á leikinn í Reykjavík.
Vorar hægt á Norburlandi
Það vorar hægt um norðanvert
landið eins og þessar myndir, sem
teknar voru í Svarfaðardal í síðustu
viku, sýna. Sumarhúsin eru í landi
Syöra- Hvarfs og standa sunnan í
hæð þar sem skafið hefur yfir þau í
vetur. Þótt vegir séu víða komnir
upp úr snjónum, má enn sjá háa
ruðninga á ýmsum stöðum og var
ein meðfylgjandi mynda tekin á
veginum milli Syðra- og Ytra-Hvarfs
í Svarfaöardal.
Bændur í Eyjafirði og Þingeyjar-
sýslum verða aö bíða með vorverk
enn um sinn, þar sem snjór liggur
um mikinn hluta túna og þau tún,
sem orðin eru auð, eru enn mjög
blaut. Áburðarflutningar heim á
sveitabæi eru tæpast hafnir og sauð-
burður fer allur fram í húsi. Nokkrir
bændur hafa hleypt hrossum út, en
þau eru engu að síður á gjöf. Sam-
kvæmt upplýsingum blaösins eru
þó taldar nægilegar birgðir af heyi á
Norbausturlandi og möguleikar fyr-
ir bændur að mibla hver öðrum
heyi þar sem þörf krefur, þótt bú-
peningur verði á gjöf fram í byrjun
næsta mánaöar.
Texti og myndir: ÞI, Akureyri