Réttur - 01.08.1961, Page 11
R É T T U R
235
lega markaðinum.17) En það þýðir um leið atvinnuleysi þeirra, sem
unnu við þennan iðnað.
Ekki er mér kunnugt um neina opinbera rannsókn á áhrifunum á
landbúnaðinn. Aðildarríki bandalagsins liafa heldur ekki enn kom-
ið sér saman um reglurnar um landbúnaðarverzlun. Við vitum því
ekki enn, að hve miklu leyti, eða hvort yfirleitt, þær munu víkja frá
hinum almennu reglum um iðnaðarvörur. En það er andi Rómar-
sáttmálans og tilgangur sterkustu landbúnaðarframleiðendanna í
Efnahagsbandalaginu að koma á algjöru viðskiptafrelsi um land-
búnaðarvörur. Við skulum ganga út frá því, og reikna eftirfarandi
dæmi:
Ein af síðustu smjörsendingum Dana til Englands kostaði í höfn
í Englandi (cif.) pr. kg. 4.22 dkr. = 26.36 ísl. kr. (gengi 10. okt.).
Gerum ráð fyrir að smjörið yrði flutt hingað, og yrði þá litlu hærra
hér, segjum 28 ísl. kr. Segjum að uppskipunarkostnaður og heild-
söluálagning nemi 25%, þá kaupir smásalinn kílóið á 35 kr. Hann
leggi á 20% smásöluálagningu, þ. e. verðið til neytenda yrði 42
kr.18)
Nú er smásöluverð á íslenzku smjöri 69 kr. kg. I. fl., en án niður-
greiðslu væri það 104.35 kr. Skv. 92. grein Rómarsáttmálans er sér-
hver ríkisstuðningur til neytenda, þ. e. niðurgreiðslur, bannaðar,
nema jafnt komi á erlenda og innlenda vöru.
Þetta myndi þýða, að hægt væri að bjóða hér fram danskt smjör
á helmingi lægra verði en það íslenzka. Hvar ætla þá íslenzkir bænd-
ur að selja smjör sitt?
Eg hef engin dæmi tilbúin um aðrar búgreinar. En mér finnst
mjög hæpið að álykta, ef borin eru saman nátlúruskilyrði til land-
búnaðar á íslandi og á meginlandi Evrópu, að íslenzkar landbúnað-
arafurðir séu samkeppnisfærar.19) Og ég held að bændur ættu ekki
að leggja allt of mikið upp úr náttúrlegri vernd hinna löngu flutn-
ingaleiða til íslands, því að geymslutækni hraðfleygir fram í þeim
mæli sem offramleiðsla þrýstir á um nýja markaðsleit.
Bændur ættu að athuga vel sinn gang áður en þeir fallast á aðild
Islands að Efnahagsbandalaginu.
Um fiskveiðar og fiskiðnað virðist gegna nokkuð öðru máli. Því
er haldið fram, að þessar greinar myndu hagnast af bandalagsaðild.
Það er rannsakað í III. kafla.
Hver yrðu áhrif tollabandalagsins á utanríkisverzlun okkar?