Réttur


Réttur - 01.08.1961, Blaðsíða 26

Réttur - 01.08.1961, Blaðsíða 26
250 R E T T U H erura að gefa þjóðartilveru okkar upp á bátinn með inngöngu í Efnahagsbandalagið. Borgarastéttin er fyrst kapítalísk, svo þjóðleg. Þjóðlegheit hennar á uppgangstímum hennar voru afleiðing af kapítalísku eðli hennar. Oþjóðlegheitin á elliárunum eru sömuleiðis afleiðing af kapítalískri veru hennar. Þegar kapítalisminn og þjóðernið fara ekki lengur saman, fórnar borgarastéttin alltaf þjóðerninu. Þótt vinstri-stj órnin nýttist ekki til langvinnra, jákvæðra breyt- inga í íslenzku þjóðfélagi, varð hún hins vegar til þess að sýna borg- arastéttinni fram á hættuna, sem henni gæti stafað af giftudrjúgu samstarfi verkamanna og bænda. Er borgarastéttin komst aftur til stjórnarforystu hóf hún gagnbyltingu einkaauðvaldsins, tilraun lil að koma á ómeinguðum kapítalisma á Islandi. Þegar sú tilraun, viðreisnin, hafði verið brotin á bak aftur í verkföllunum í sumar, sá borgarastéttin, að verkefnið var vonlaust í þessu fámenna og ríkisvaldsveika landi. Hún sá, að henni var enginn annar kostur en fórna þjóðerninu til að viðhalda auðvaldsskipulaginu öruggu: Inn skal gengið í Efnahagsbandalag Evrópu. IV. Aukaaðild? Fyrir íslenzka borgarastétt er það sem sé orðin hlutlæg nauðsyn að fórna þjóðerninu til að viðhalda kapítalískum þjóðfélagshátt- um á íslandi. Þar með er ekki sagt, að öll borgarastéttin geri sér þess fulla grein. Víðsýnustu menn hennar munu vafalaust sjá þetta í bendi sér, og tal þeirra um aukaaðild okkar að Efnahagsbanda- laginu er því flátt, þeir vita, að þegar litli fingurinn er farinn, fylgir öll höndin á eftir. En sumir aðilar borgarastéltarinnar ætla sér þá dul að viðhalda öllu þrennu: kapítalismanum, þjóðerninu og Efna- hagsbandalagi Evrópu. Orð þeirra og viðleitni um aukaaðild að Bandalaginu er einlægt, Jjeir sjá bara ekki fyrir, bvaða afleiðingar viðleitni þeirra getur haft. Hvort sem talið um aukaaðild er vísvitandi blekking eða skamm- sýn óskhyggja, er mikil hætta á, að með því dreifist sandur í augu almennings. Því skulum við athuga það nánar. Borgarastéttin stillir þannig upp málinu áróðurslega séð:

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.