Réttur


Réttur - 01.08.1961, Side 21

Réttur - 01.08.1961, Side 21
RÉTTUR 245 verða fyrir skakkaföllum, hvort sem einhverjum grcinum hans tekst að halda sér, og fiskveiðilandhelgi okkar verður lögð niður; -----það hlýtur að leiða til þess að fiskistofninn við Island eyðist og fiskveiðar hér leggjast niður; tilvera okkar hér verður undir er- lcndum fyrirtækjum hér ó landi komin, sem rekin verða að einhverju leyti, kannski að miklu eða mestu leyti, með erlendu verkafólki; þau mundu þvi vart veita öllum þeim vinnufæru Islendingum atvinnu, sem hvergi fé hana annars staðar i landinu sjólfu; -----oð það er ekki einu sinni víst að þessi erlendu fyrirtæki verði reist hér, það verður undir duttlungum auðvaldsmarkaðsins í Vestur- Evrópu komið en ekki okkur, ef þau verða ekki reist, þó er vist eins gott fyrir okkur íslendinga að fara að lita aftur i kringum okkur suður á Jótlandsheiði; -----en það er alveg víst, cnda þótt þessi atriði fari ó þann hótt, sem okkur verður hagkvæmastur, AÐ ÍSLENZKT ÞJÓÐFÉLAG LÍÐ- UR UNDIR LOK SEM SJÁLFSTÆTT ÞJÓÐFÉLAG. Og þó líður fleira undir lok, íslenzk mcnning og islenzkt þjóðerni týnist lika. Og ef við sjáum fram á þessa þróun eftir að við erum gengin í Efnahagsbandalag Evrópu, getum við þá ekki farið úr því aftur? 240. gr. Rómarsáttmálans segir: „Sáttmáli þessi er gjörður til ótakmarkaðs tíma.“ Ef við viljum gangast undan honum aftur, yrði litið á það sem uppreisn útkjálkahéraðs gegn miðstjórnarvaldi hinna upprennandi Bandaríkja Vestur-Evrópu. III. Rök íslcnzku borgarastéttarinnar og ríkis- stjórnar hennar fyrir aðild Islands að Efnahagsbandalaginu. íslenzku borgaraflokkarnir töluðu lengi vel varlega um alla að- ild íslands að markaðsbandalögum V-Evrópu. En eftir að kunnugt varð um áform brezku ríkisstjórnarinnar að sækja um upptöku í Efnahagsbandalagið (yfirlýsingu Mac Millans fyrir neðri deild Brezka þingsins 31. júlí þ. á.) og vangaveltur og áform hinna EFTA- ríkjanna að fylgja á eftir, hvarf sú varúð smátt og smátt og tala nú

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.