Réttur


Réttur - 01.08.1961, Qupperneq 37

Réttur - 01.08.1961, Qupperneq 37
R É T T U R 261 aka sér þangað, sumar hafa bundið ýmislega litum klútum um liöfuð sér til skjóls og það má greinilega sjá á göngu- lagi sumra þeirra hvað þær hafa farið í svellþykk nærföt undir peysufötin til að klæða af sér kuldann. Loks kom svo aðalhópurinn eða þeir sem raunverulega gátu talizt fylgjendur. Þeir komu allir í eigin bílum, mörg- um splunkunýjum máluðum abstrakt í skærum litum með tvö spjót fram og fjögur aftur og stáltennta kjafta ægilegri ásýndum en nokkur sjóskrímsl. Þeir lögðu þessum dýrlegu farkostum sínum hverjum við annan unz komin var fjórföld röð sunnanvið kirkjuna og tvöföld röð útvið þinghúsgarð- inn. Hvernig sem á því stendur, leggur aldrei neinn kirkju- gestur bíl sínum norðan við kirkjuna. Þetta voru þeir sem höfðu verið við húskveðjuna, því bíl- arnir komu í einni lest á eftir líkvagninum. Utúr þeim þyrptist samstæður hópur virðulegra karla og kvenna í sínu bezta stássi. En í svona kaldrana veðri var enginn öfunds- verður af því að vera í þeim útvalda hóp. Líkvagninn var kominn á undan þeim að kirkjudyrum, með þann sem allt snerist um að þessu sinni og kuldinn átti víst sinn þátt í því hve óvenju tafsamt varð að korna téðri persónu í guðshúsið, það er einsog allt verði lil tafar þegar mest þarf að hafa hraðann á. Líkmennirnir veigruðu sér við að fara útúr yln- um í fordyri kirkjunnar, fyrr en í síðustu lög, því kjólföt þeirra voru meira til skrauts en skjóls. Það tók ökumann svarta vagnsins nokkra stund að búa þetta í hendur þeirra, því jarðarförin var þessháttar að ekki mátti gefa nema sem minnstan afslátt af virðuleikanum, hvað sem veðrinu leið, og það tókst honum með þeim ágætum að helzt mátti ætla að hann væri sama sinnis og gamla konan, sem níræð og næstum blind þráaðist við að raka ljána, þó annað fólk flýði í hús undan skýfallinu, og varð henni þetta að orði: Hvað varðar mig um það hvað skaparinn gerir!

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.