Réttur


Réttur - 01.08.1961, Síða 43

Réttur - 01.08.1961, Síða 43
R E T T U R 267 inga verkalýðsfélaga og atvinnurekenda og kaupmáttur samkvæmt mati stjórnarvaldanna sjálfra rýrður um 5.6%. Næst kom sjálf „viðreisnin“, það er að segja gengisfelling, sem hækkaði verð gjaldeyris um allt að 79% jafnhliða lögbanni við greiðslu verðlagsbóta í nokkru formi á laun, nýrri riftingu allra kjarasamninga verkalýðsfélaganna og að auki umbyltingu á öllum skatta- og útsvarslögum, sem færði allan þunga skattheimtunnar af bökum gróðafélaga og hátekjumanna yfir á almenna neyzlu nauð- þurfta jafnt sem miður þarfrar eyðslu. í kjölfar viðreisnarinnar og skattabyltingarinnar fylgdu síðan ofsalegri skattahækkanir en sagan kann frá að greina og hafa samanlagðir skattar og tollar hækkað um full 100% á valdatíma stjórnarflokkanna, 3 árum. „Yiðreisnin“ var fyrsta aðgerð Sjálfstæðisflokksins til efnda á því fyrirheiti sínu í kosningunum 1959 að leiða þjóðina inn á braut bættra lífskjara. Hæstvirtur forsætisráðherra og ríkisstjórn kváðu nú að vísu þá braut ekki jafn beina og slétta sem þeir höfðu útmálað fyrir kosningar. Nokkrar lítilfj örlegar byrðar yrði að leggja á al- menning í bili. En yrði aðgerðunum eirt um stundarsakir, í nokkra mánuði, hálft ár, í hæsta lagi eitt ár, verkalýðshreyfingin sýndi að- gerðunum biðlund og hefðist ekki að um beinar kauphækkanir skamma hríð, þá niundi örugglega sannast að aðgerðirnar færu, innan tíðar, að skila árangri eins og til væri stofnað, það er að segja bættum lífskjörum og traustari efnahag þjóðarheildarinnar. Biðlundin var sýnd og fullur reynslutími veittur. Viðreisnin hafði staðið í eitt og hálft ár þegar verkalýðshreyfingin lét til skarar skríða um aðgerðir til almennra launahækkana láglaunafólks. Og hvernig stóðu reikningarnir þá? Þeir stóðu þannig, að kaupgjald hefði þurft að hækka um 18% með óbreyttu verðlagi til þess að kaupmáttur þess gagnvart verðlagi á vörum og þjónustu yrði hinn sami og hann var við upphaf „viðreisnarinnar" og um 24% til þess að raunveruleg launakjör væru óbreytt frá upphafi valdaskeiðs stjórnarflokkanna. Þetta eru ekki ágizkunartölur mínar eða annarra stjórnarandstæðinga. Þær eru tölur Hagstofu íslands um þróunina, mótaðar í þeim útreikningslistum, sem sjálf ríkisstjórnin hefur á- kveðið að beitt skuli, til þess að sýna sem mildilegasta niðurstöðu. Þannig voru viðhorfin í kjaramálum launastéttanna á síðastliðnu

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.