Réttur - 01.01.1964, Blaðsíða 56
,,rXJnita“ 40 ára
Hið frœga dagblað ítalaka Kommiinislaflokksins, „l’Unita41,
varð 40 ára gamalt þann 12. febrúar. Það var stofnað 12. febrúar
1924.
Það var erfiður tími fyrir ítölsku verkalýðshreyfinguna. Með
„marsinum til Róm“ 1922, höfðu fasistarnir unnið sigur. Arásirn-
ar á forystumenn kommúnista höfðu hafist. Tveir verkalýðsfor-
iiigjar þeirra, Carlo Berutti, ritari járnbrautarverkamanna, og
Pietro Ferrero, ritari námumanna, höfðu verið myrtir. Þrjú blöð
kommúnista höfðu verið bönnuð. Togliatti var fangelsaður. Stofn-
andi flokksins, Antonio Gramsci, var landflótta í Vín. En flokk-
urinn hélt áfram baráttunni og þegar Mussolini iét lina dálítið á
ógnarstjórninni fyrir kosningarnar 1924, notaði flokkurinn tæki-
færið til að stofna l’Unita, blað Gramsci’s og Togliattis. Skömmu
síðar tóku þeir báðir við stjórn þess, er Togliatti hafði verið sleppt
úr fangelsinu og Gramsci komið heim. Giovanni Germanetto, fræg-
ur ítalskur rithöfundur, var þá einn af blaðamönnum l’Unita. Blað-
ið kom út í 25—40.000 eintökum og varð brátt eitt bezta baráttu-
blað verkalýðshreyfingarinnar.
1926 harðnaði ógnarstjórn fasistanna. Blaðið var bannað. Rit-
stjórarnir fangelsaðir. Langt skeið ólöglegrar baráttu hófst. l’Unita
var prentað á laun í Italíu og í Frakklandi og dreift leynilega.
Stundum kom það aðeins út aðra hvora viku, en það kom alltaf,
það gafst aldrei upp, — eina ítalska blaðið, sem aldrei hætti í
baráttunni gegn fasismanum. En fórnirnar voru miklar, fram á
síðustu stund, þegar sigurinn var að vinnast. Þúsundir Kommún-
ista í andspyrnuhreyfingunni voru drepnir.
Gramsci, ritari flokksins, þingmaður hans og einn bezti hugsuð-
ur marxismans, var handtekinn 8. nóv. 1926, 35 ára að aldri,
dæmdur í 20 ára fangelsi 1928, þjáðist mikið í fangelsinu, fékk
hvað eftir annað blóðspíting, var neitað uin læknishjálp, en hélt
sínum andlegu kröftum alveg fram í andlátið. Hann dó 27. apríl