Réttur


Réttur - 01.08.1937, Page 5

Réttur - 01.08.1937, Page 5
tvennt 1930, var þeim mun afdrifaríkari, sem sam- tökin voru þá orðin fjölmennari og sterkari. Stærsti og hættulegasti klofningurinn, sem íslenzkur verka- lýður hefði upplifað, mundi gerast innan skamms, ef nú væri ,,tafarlaust“ hrapað að stofnun „samein- aðs alþýðuflokks“, án þess að hafa leyst upp allar hættulegar andstæður innan verklýðshreyfingarinnar fyrst, fulltryggt samstillingu kraftanna. Það sem nú kemur til umræðu milli Alþýðuflokks- ins og Kommúnistaflokksins er ekki hin barnalega og allsendis óraunhæfa krafa Héðins Valdimax*sson- ar um „tafarlausa sameiningu“, heldur samkomulag um undirstöðu og sameiginlegan grundvöll, og loks málefnasamningur með fullkomna sameiningu flokk- anna sem lokatakmark, óðar en sýnt þyki, að ekkert beri lengur á milli, sem máli skiftir. Strok. Eftir Halldór Stefánsson. Þegar frönsku fiskiskúturnar komu svífandi inn fjörðinn á sólbjörtum sumardegi eins og stórir, hvítir fuglar með þanda vængi, var tilhlökkunin mikil hjá börnunum og gaman að lifa, jafnvel fyi'ir niðursetn- inga eins og Laugu.Fullorðna fólkið gleymir því á slíkri stundu, að hafa eftirlit með því, að hún svík- ist ekki um við beitinguna eða annað, sem hún á að gera, svo að hún geti skemmt sér við sömu sýn- ina og almennilegt fólk. Karlmennirnir þekkja skút- urnar,sem komið hafa ár eftir ár. Þeir tala um það, hvort sörhu skipstjórarnir muni vera á þeim, og þykjast geta ráðið það af siglingunni, ef breyting hefir orðið í þá átt. Og kvenfólkið hugsar líka um það, hvort sömu mennirnir og í fyrra muni koma aftur, en það er ekki eins skarpskyggnt og karlmennirnir

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.