Réttur - 01.08.1937, Blaðsíða 22
menning andvana fætt. En með hjálp slíkra manna
getur slíkt félag skapað tímamót í sögu íslenzkrar
alþýðumenningar.
Verið þess minnugir," lýðræðissinnaðir æskumenn,
að án almennrar upplýsingar, almennrar menntun-
ar, er ekkert lýðræði hugsanlegt, hvorki hér á landi
né annarsstaðar. Óupplýst alþýða er bágstaddasta og
volaðasta skepna jarðarinnar. Menntuð alþýða er
sterkasta og glæsilegasta og virðulegasta vald heims-
ins. Aukin menntun alþýðu er hin eina líftrygging
lýðræðisins. Látið það vera verkefni Ungmennafélag-
anna í hverri einustu sveit, að tryggja lýðræðið með
því að efla upplýsinguna.
Martröð Mussolínis.
Eftir Michael Godl.
Eins og flestum lygurum, hásvindlurum og morð-
ingjum, gengur Mussolini illa að njóta svefns. Oft í
seinni tíð hefir hann átt skelfilegar nætur, þótt dag-
arnir væru fullir af dýrð og ljóma. T.d. eftir hinn
sögulega dag, er hann vísaði Englandi til helvítis, og
sendi nýja 50,000 manna hersveit suður á eyðimerk-
ur Afríku og fann upp handa sér enn einn háglæst-
an einkennisbúning og hafði þjáðst óvenjulítið af sínu
króniska hægðaleysi, þá sótti hann heim þessi sér-
staklega vondi draumur.
Benito hafði verið á fótum lengi fram eftir, og
skrifað nýtt móðgunarskjal til Abessiníu. Hann tók
inn hægðapillurnar, færði sig úr sínu hernaðarlega
lífstykki og þjónarnir sáu honum að vanda fyrir hans
'stórveldis hitapoka. Kærkomnasti nuddlæknir hans
neri á honum verkjandi líkamann, þennan skrokk,
sem veittist það erfiðara með hverjum deginum að
halda Peter Pan-hlutverki sínu, að leika funandi
214