Réttur


Réttur - 01.08.1937, Síða 21

Réttur - 01.08.1937, Síða 21
hvíldartímum sínum fylgist hann með öllum merkari nýungum heimsbókmenntanna. Þegar ég heimsótti hann seinast, lagði hann frá sér Eyeless in Ghaza eftir Aldous Huxley, frægasta skáldverk Englendinga frá seinasta ári, um leið og hann gekk á móti mér til að bjóða mig velkominn eftir tíu ára fjarvistir. Ég sphrði hann: Hvað eigum við að gera til þess að önnur héruð á landinu verði jafn lýðmenntuð og Suður-Þingeyjarsýsla? Heldurðu að það mundi tak- ast með nýrri löggjöf um bókasöfn, og skipulagn- ingu á bókadreifingu og bókalestri? Nei, sagði hann, löggjöf og skipulagning nær skammt og kemur ekki að notum fyrr en áhuginn er . vaknaður hjá fólkinu sjálfu. Frumskilyrðið cil að mennta fólkið og útvega því bækur og kenna því að lesa, er það, að í hverju héraði, helzt hverri sveit, séu áhugasamir einstaklingar, sem vilja fórna tíma sínum og kröftum til þess að vekja fólkið í kringum sig, segja tregðu og sljóleik stríð á hendur, og beina hugum þess til þekkingar, snilldar og menntunar. Án slíkra manna í hverri sveit hjálpar hvorki jskipu- lagning né löggjöf. Ef sérhver sveit, og þó ekki væx-i nema hver sýsla á íslandi, ætti slíkan mann sem Benedikt á Auðnum hefir verið Suður-Þingeyjarsýslu, þá væri framtíð lýðræðisins borgið hér á Islandi. Þá byggi hér þroskuð alþýða, fullfær um að hafa sín eigin mál í eigin hönd- um, og stýra þeim sér til giftu. Með bókmenntafélaginu Mál og menning hefir verið skapað verkfæri fyir áhugasama menn úr svip- uðu efni og Benedikt á Auðnum, til þess að útbreiða í landinu þekkingu og fegurð gegnum miðil hins rit- aða orðs. Við þurfum að eiga samverkamenn í lík- ingu Benedikts í sem flestum sveitum, menn, sem' skilja. að það að vinna fyrir upplýsingu þjóðarinnar er sama og að vinna fyrir lýðræðið í landinu. Án slíkra áhugaman'na í sveitum landsins er Mál og 213

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.