Réttur


Réttur - 01.08.1937, Qupperneq 12

Réttur - 01.08.1937, Qupperneq 12
Katrínar eða annara, þegar niðursetningur átti í hlut- Hún ætlaði að reyna að freista að fara með hann inn að Koti og reyna að biðja fyrir hann þar. Þar bjó fátækt og einfalt fólk, hún treysti sér helzt til að tala um fyrir því. Hún vissi, að hún mundi verða barin, þegar hún kæmi heim, fyrir að hafa verið svona lengi í burtu, en fyrr skyldi Jón mega drepa hana með hnífnum, en hún segði til drengsins. Hún tók í hönd- ina á honum og benti inn dalinn. En drengurinn var þá búinn að tapa öllu trausti á þessu voðalega landi og íbúum þess, að henni meðtaldri. Hann hríðskalf af kulda og gerði ekki annað en slá hana, þegar hún reyndi að fá hann með sér. Svo hélt hann af stað niður fjallið, áleiðis til þorpsins. Laugu lá við að gráta af gremju; það var alveg meiningarlaust af honum að gefast þannig upp, og hún vissi, að hann mundi verða barinn, þegar hann kæmi um borð. Hún hljóp á eftir honum, togaði í hann og reyndi að sýna honum fram á hvað þetta væri vitlaust af honum. Kot! Kot!, sagði hún og benti inn eftir dalnum. Cot-cot, endurtók hann móðgaður yfir því að vera ávarpaður eins og hænsni, sleit sig lausan og hélt áfram. Lauga varð að gefast upp, þótt henni félli það sárt. Svo röltu börnin í rigningunni niður gilið, þegjandi og vonsvikin, of sljó til þess að gera sér hugmyndir um viðtökurnar hjá fullorðna fólkinu. Þegar þau komu niður í þorpið, urðu þau þess brátt vör, að komizt hafði upp um flótta þeirra. Þrátt fyrir rigninguna var rnargt fólk úti og Flandrarar, sem þarna voru, tóku þegar í stað skipsdrenginn með sér urn borð. Lauga horfði í örvæntingu á eftir honum, það var eins og hún heyrði þegar í honum hljóðin, hana langaði til að segja eitthvað hughreystandi við hann að skilnaði, en hvernig átti að fara að því, þegar hann skildi ekki neitt mannamál, og auk þess leit 204

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.