Réttur - 01.08.1937, Side 31
Hlutleysisnefndin makkar á ný við Þjóðverja og ítali.
Þeir leggja fram ósvífnustu tillögurnar, sem enn hafa
komið fram. Þær eru ræddar eins og mjög athyglis-
vert plagg og loks hverfur enska stjórnin frá sínum
tillögum og bræðingssérfræðingurinn Eden semur
um nýja málamiðlun við fasistana.
Tillögur fasistaríkjanna voru í stuttu máli þessar:
Að veita báðum aðilum á Spáni hernaðarréttindi,
þ, e. a. s. að hlaupa frá öllum ákvæðum alþjóða-
réttar um löglega stjórn og uppreist og ákvæðum
Þjóðabandalagsins um meðferð á málum árásaþjóða.
Allt gæzlustarf á sjó skyldi nið(ur falla og aðilum
veittur réttur til hafnbanns, sem vitanlega gæti þýtt
það, að Franco með aðstoð ítalskra og þýzkra her-
skipa gæti lokað fyrir stuðning til þeirra borga, er
stjórnin hefir á valdi sínu. — Gæzlustarf á landi
skyldi ekki fellt niður til að tryggja það, að stjórnin
fengi enga hjálp frá Frakklandi. — Aðaltilgangur-
inn með þessum tillögum fasistanna er þó eins og
alltaf áður að vinna tíma og tækifæri til að geta
áfram flutt vopn og her til Spánar. Stjórnir lýðræðis-
ríkjanna sýna sömu svikin og aumingjaskapinn og
fyr, þýzku fasistarnir hvísla því að Franco, að hann
skuli bjóða ,,Lundúna-city“ hlutdeild í járnnámum
Baskalands. Og herra Eden dregur tímann og kemur
svo með slíka málamiðlunartillögu, sem mjög gengur
Franco í hag. Á meðan á þessu stendur fara fram
nýir herflutningar til Spánar. Mussolini setur þúsund-
ir hermanna á land í Cadiz, Máraliði — 2 þúsundir —
er skipað á land í Gibraltar og síðan sent til Madrid-
vígstöðvanna. Áætlun Francos er að hafa 100 þús.
manna her og 500 flugvélar til árásarinnar á Madrid.
Þessa áætlun eru nú fasistaríkin að reyna að uppfylla,
meðan lýðræðisstjórnir Frakklands og Englands eru
að fyrirgera leifunum af því trausti, sem alþýða
Spáhar og alls heimsins enn þá ber til þeirra.
Ásg. M. Bl.
223