Réttur - 01.04.1979, Síða 14
Sultur.
og 9% barna á aldrinum 12—17 ára. E1
við berum þetta saman við börn á Vest-
urlöndum þá munu svo gott sem 100%
barna á aldrinum ö—l 1 ára ganga í skóla
og 79% barna á aldrinum 12—17 ára.
Vinna barna,
Einn ljótasti bletturinn á mannkyninu
í dag er erfiðisvinna barna. Alþjóða-
vinnumálastofnunin er sú stofnun SÞ
sem hvað ötulast hefur barist gegn mis-
notkun á börnum í vinnu. Það er ljóst
að þessi misnotkun sem sums staðar er
hreinlega þrælahald, verður ekki afnum-
ið á einum degi enda vandamálið meira
og' flóknara en svo. Fjölcli þeirra barna
sem vinna erfiðisvinnu allt frd 7 dra
aldri eða jafnvel yngri, er ekki nákvœm-
itr, en samkvœmt því sem Francis Blanc-
hard, forseti Alþjóðavinnumdlastofnun-
arinnar sagði nýlega, er fjöldinn eliki
undir 52 miljónum. Elest eru þessi börn
við vinnu í landbúnaði og hæst er hlut-
fallið í fátækustu þróunarlöndunum eða
um 40 börn al hverjum 1000 íbúum.
Það skal þó tekið fram, að á þessu ári
hafa mörg þróunarlandanna gefið loforð
um að banna með lögum að börn undir
14 ára verði látin vinna ýmsa þá erfiðis-
vinnu, sem Jrau eru nú látin vinna. Hvort
þessi loforð verða haldin er svo önnur
saga, miðað við það ástand, sem nú ríkir
í þróunarlöndunum er lítil ástæða til
bjartsýni. Með öðrum orðum það litur
út. fyrir að heimurinn sé að taþa stríð-
inu um betri framtið fyrir þessi börn.
I þessti tilfelli er þvi sérstakt barnattr
lítils virði ef ekkert jákvœtt fylgir, sem
tryggir stórum hluta mannkynsins mann-
sæmandi lífsskilyrði.
94
Björn Þorsteinsson.