Réttur


Réttur - 01.01.1987, Blaðsíða 4

Réttur - 01.01.1987, Blaðsíða 4
þeir sem eru eldri en 74 ára og fólk sem ekki hefur teljandi greiðslugetu. Almenn- ingur hefur tekið þessum nefskatti vel, og hann hefur reynst traustari peningaupp- spretta en ákvæði laganna frá 1973 um framlög úr ríkissjóði. Almenningur er ekki eins naumur við aldraða og hægri stjórnir sem ætla að spara. Þessi ágæti sjóður er samt í hættu. Þingmenn voru ósköp tregir til að sam- þykkja nefskattinn, og til þess að vera vissir um að slíkt fyrirbrigði festist ekki sjálfkrafa í sessi settu þeir inn í lögin sjálf ákvæði um, að þau skuli falla úr gildi í árslok 1987. Að fenginni reynslu treysti ég ekki öðrum flokki en Alþýðubanda- laginu til að sjá svo um, að lögin um nef- skattinn verði endurnýjuð. Allir flokkar hafa í orði svipuð stefnumið uppi um málefni aldraðra, en þegar kemur að því sem öllu máli skiptir — að reiða fram fé til að standa við fyrirheitin þá bregðast þeir sem hallast til hægri. Það er ekki aðeins framkvæmdasjóður aldraðra, sem er árangur af síðustu þátt- töku Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn hvað sérmál aldraðra varðar. Alþýðu- bandalaginu tókst að fá heilstæð lög um félagslega þjónustu við aldraða samþykkt í árslok 1982. Inn í þau lög voru felld lög- in um framkvæmdasjóð aldraðra, en þing- heimur hélt áfram að vera varkár og treg- ur og lauk lagasmíðinni með ákvæði um að þau skuli falla úr gildi í heild í árslok 1987. Það var búið að þrasa lengi í stjórn- skipuðum nefndum og á Alþingi um laga- frumvörp um málefni aldraðra áður en samþykkt þeirra náðist fram, og það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir um hvað var þrasað vegna þess að þeir þing- menn, sem kjörnir verða í vor verða að taka afstöðu til þess á haustþingi hver framtíð þessara ágætu laga verður. Á að samþykkja þau óbreytt á ný eða gera á þeim einhverjar lagfæringar að fenginni reynslu eða munu nýir þingmenn fleygja verkefninu frá sér? Deilurnar í nefndunum og á Alþingi snerust að mestu um kostnað, hvernig afla skyldi fjár og hve mikils, og hverjir ættu síðan að ráðstafa fénu. Einnig var mikið deilt um skipulag og nauðsyn þess, og um sjálfstæði stofnana. Um rétt stofn- ana til að ráða sjálfar við hverjum þær taka og rétt hinna opinberu aðila, sem greiða rekstrarkostnað, var einnig deilt. Þessar deilur standa á vissan hátt enn og setja sitt mark á framkvæmd laganna. Væntanlega eru þó flestir sammála um að markmiðsgrein laganna sé eðileg og skynsamleg en þar segir: „Markmið þessara laga er , að aldraðir fái þá heilbrigðis- og félagslegu þjónustu sem þeir þurfa á að halda, og að hún sé veitt á því þjónustustigi sem er eðlilegast og hagkvæmast miðað við þörf og ástand þess aldraða. Lögin miða að því að aldr- aðir geti svo lengi sem verða má búið við eðlilegt heimilislíf, en að jafnframt sé séð fyrir nauðsynlegri stofnanaþjónustu, þeg- ar hennar er þörf.“ I samræmi við markmiðsgreinina eru í lögunum ákvæði um þjónustu á heimil- um aldraðra, og þar fá sveitarfélög hvatn- ingu til að veita slíka þjónustu, sem felst í því að sjúkrasamlög eru skylduð til að greiða kostnað af rekstri heimaþjónustu, þó þannig að sveitarfélögin greiða 65% kostnaðar en ríki 35%. Ekki þarf að efa að þessi fjárhagsstuðningur hefur átt sinn þátt í því að heimaþjónusta á vegum sveitarfélaga hefur aukist verulega eftir tilkomu laganna. Heimaþjónustan nær til læknisvitjana, heimahjúkrunar, endur- hæfingar, heimilishjálpar, félagsráðgjafar 4

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.