Réttur


Réttur - 01.01.1987, Blaðsíða 34

Réttur - 01.01.1987, Blaðsíða 34
III. Og hættan var ekki liðin hjá. Á árunum 1919-21 réðust alls 14 gagn- byltingarherir á hið unga verkalýðsríki, ósamstæðir og úr öllum áttum. Og í hetjulegri og fórnfrekri vörn gegn þeim féll helmingur af þeim flokksfélögum, er byltinguna gerðu 7. nóv. 1917, — en sigr- uðu. Kraftaverk rússnesku kommúnistanna og alþýðunnar, er þeim fylgir, bjargar lífi byltingarinnar. — En í árslok 1921 var framleiðslan á því landsvæði, er byltingin réði, komin niður í '/ó þess, er hún var 1913. Það var engin tilviljun, heldur lífsnauð- syn, er Lenin gerði tvennt á árinu 1921: að koma á „Nep“, þ.e. leyfa einkafram- taki vissa aðstöðu — og rita bókina „Vinstri róttækni eða barnasjúkdómar konimúnismans“, til þess að vara flokk- inn við því ofstæki og einangrunarstefnu, sem heltekur stundum hugsjónahreyfing- ar, jafnt trúarbrögð sem stjórnmálahreyf- ingar. Sú aðvörun Lenins átti ekki aðeins rétt á sér, er byltingin var að slíta barnsskón- um. „Barnasjúkdómar“ geta alveg sér- staklega orðið banvænir, ef menn — og flokkar — fá þá á fullorðinsárum. Og það átti Kommúnistaflokkur Sovét- ríkjanna eftir að reyna. IV. Hér er ei staður né stund til að rekja sö|u þessa flokks og Sovétríkjanna. I þeirri sögu skiptast á tímabil hörmu- legustu heiftarverka annarsvegar og stór- fenglegustu hetjudáða og fórna hinsveg- ar, er forða mannkyninu frá ógn fasism- ans með því að leggja hann að velli. Spurningin, sem margir menn nú velta fyrir sér, er hvort margir þeir, sem urðu því ofstæki að bráð, sem Lenin forðum varaði við, verði nú að lokum viður- kenndir sem einhverjir bestu leiðtogar, sem Sovétríkin áttu, menn eins og t.d. Bucharin' o.fl. Einnig vaknar sú spurning hvort verknaður eins og innrásin í Tékkó- slóvakíu 19682 verði nú gagnrýndur sem brot á siðferðireglum sósíalismans, en sú innrás var samþykkt í framkvæmdanefnd flokksins (Pol-búro) með 6 atkvæðum gegn 5 — og réð Breschnew þar úrslitum gegn forseta landsins, forsætisráðherra og Suslow, aðalmanni alþjóðastefnu flokks- ins. Vinir Sovétríkjanna munu vonast eftir því að sem best takist til og forn mistök verði viðurkennd. Slíkt verður til þess að auka veg sósíalismans. Pað mun hinsvegar enginn ætlast til þess að þau níðingsverk sem Bandaríkja- stjórn lét vinna, ekki síst á árum Kalda stríðsins verði viðurkennd. Morðin á Sacco og Vanzetti eða á Rosenberg-hjónunum munu halda áfram að verða svartir blettir á bandarísku réttarfari. SKÝRINGAR: 1 Um Bucharin. einn af bestu leiðtogum Komm- únistaflokks Sovétríkjanna. má lesa nánar í „Rétti" 1978. bls. 174-175. 2 Atkvæðagreiðslan í framkvæmdanefnd sovéska Kommúnistaflokksins um innrásina í Tékkó- slóvakíu var tekin nóttina 16. - 17. ágúst 1968 og það varð Ijóst hvernig atkvæði höfðu failið. er Husák. sem tók við af Dubcek, veitti aðeins 6 af 11 meðlimum framkvæmdanefndarinnar háa „orðu". Þessir 6 höfðu greitt atkvæði með inn- rásinni og það voru: Woronow, Kirilenko. Pelsche, Schelepin, Sekelest og Breschnew. Á móti höfðu greitt atkvæði þessir fimm: Kossygin, Masurow, I’odgorny, Poljanski og Suslow. — í „Rétti" var innrásin fordæmd í grein. sem hét „Hvernig gat þetta gerst?" og birtist í 3. hefti 1968. bls. 127-134. 34

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.