Réttur - 01.01.1987, Side 10
Sigurður Guðmundsson, Sigursveinn
Kristinsson, Arnór Pétursson og Magnús
Kjartansson.
Nefndin tók þegar til starfa og hélt
næstu vikurnar fundi til að ræða um mál-
efni, sem verða skyldu umræðugrundvöll-
ur við borgarstjórn. Nefndarmenn komu
sér saman um eftirfarandi ályktun um
fjóra mikilvægustu málaflokkana:
Atvinnumál.
1. Löghelgaður forgangsréttur fatl-
aðra til starfa verði tryggður í verki
með skipulegum vinnubrögðum.
2. Vinnumiðlun borgarinnar verði
endurskipulögð.
3. Meginstefnan verði sú að fatlað fólk
geti unnið á almennum vinnustöð-
um, en fyrir þá sem læknar telja að
ekki geti starfað þannig verði stofn-
aðir verndaðir vinnustaðir á vegum
borgarinnar og rekstrargrundvöllur
þeirra tryggður.
4. Skipuleg Iæknisskoðun og endur-
hæfing verði framkvæmd í því
skyni að koma í veg fyrir að fólk
sem vinnur einhæfa vinnu og erfiða,
verði öryrkjar af völdum atvinnu-
sjúkdóma.
Húsnæðis-, samgöngu- og heilbrigðismál.
1. Jafnhliða framkvæmd byggingar-
laga frá 3. maí 1978 sem kveða á
um jafnrétti fatlaðra, verði gerð
áætlun um breytingar á eldri
húsum, fyrst og fremst samkomu-
húsum, í því skyni að fatlað fólk
m.a. bundið við hjólastóla, eigi
hvarvetna sem greiðastan aðgang.
Salernum verði breytt í sama skyni.
2. Gengið verði þannig frá strætis-
vögnum borgarinnar og biðstöðv-
um að fatlað fólk geti notað al-
menningsfarartæki til jafns við
aðra.
3. Gangstéttarbrúnir verði alstaðar
sneiddar við gangbrautir, þannig að
greiðfært verði yfir götur í hjólastól
og með barnavagna. Gerð verði
áætlyn um að þeim framkvæmdum
verði í eldri borgarhverfum lokið
fyrir lok þessa kjörtímabils. Hljóð-
vitar verði við allar gangbrautir.
4. Sundstöðum borgarinnar verði breytt
þannig að fatlað fólk geti notað þá
og á öllum biðstofum, verslunum
og öðrum samkomustöðum verði
tiltækir hjólastólar, armstólar og
annar búnaður, sem auðveldi
fötluðum bið og athafnir. Við allar
endurhæfingarstofnanir og sambýl-
ishús fyrir fatlaða verði komið upp
sérhönnuðum sundlaugum.
5. Sérmerkt bílastæði fyrir fatlaða
verði við opinberar byggingar og
samkomustaði.
6. Merkingar á opinberum bygging-
um verði greinilegar fyrir sjónskert
fólk.
7. Útivistarsvæði borgarinnar verði
aðgengileg fötluðu fólki.
Þegar hér var komið var tveim nefnd-
armönnum falið að ganga á fund nýráðins
borgarstjóra, Egils Skúla Ingibergssonar,
með þessar málefnatillögur. Var sá fund-
ur haldinn 17. ágúst. Borgarstjóri tók
nefndarmönnum og erindi þeirra vel, og í
samráði við hann var ákveðið að borgar-
stjórn tæki á móti Sjálfsbjargarfélögum
að Kjarvalsstöðum þriðjudaginn 19. sept-
ember.
Fljótlega kom upp sú hugmynd að efna
til fjöldagöngu frá Sjómannaskólanum að
fundarstað á Kjarvalsstöðum. Þessari
hugmynd óx brátt fylgi og var vel tekið af
borgaryfirvöldum. Hófst undirbúningur
af kappi. Haft var samráð við önnur ör-
yrkjafélög og starfshópa á endurhæfinga-
10