Réttur - 01.01.1987, Side 18
lagalega heimild til slíks. Alþingi var ekki
kallað saman fyrr en í október og stóð
þá frammi fyrir herteknu landi. Var því
ástandið svipað og er íslendigar voru
neyddir til að samþykkja einveldi Dana-
konungs í Kópavogi 1661, er danskir her-
menn stóðu umhverfis alþingismenn með
hlaðnar byssur.
IV.
Sagan af afskiptum Bandaríkjahers af
íslandi er því óslitin röð af ofbeldisverk-
um, hótunum, sviknum loforðum og her-
námi.
Nú hefur hernámið frá 1951 staðið í 36
ár, aldarþriðjung. Og á þessu tímabili
hafa Bandaríkin verið að vinna hér á
landi eftirfarandi óþurftarverk:
1. Bandaríkjaher hefur verið að treysta
hernaðarleg tök sín á landinu. Keflavík-
urflugvöllur og umhverfi (Helguvík etc.)
er orðin risavaxin árásarherstöð, þar sem
staðsettar eru Awacs-flugvélar, sem
stjórnað geta flugskeytum úr kafbátum
og hafið þannig árásarstríð. Jafnhliða
hafa, — gegn mótmælum íbúanna — ný-
tískulegustu radarstöðvar verið settar
upp á Austurlandi og Vestfjörðum, svo
sífellt stærri hlutar íslands eru gerðir að
skotmarki í styrjöld, sem stríðsóð valda-
klíka Reagans & Co., hermangaravald
Bandaríkjanna, undirbýr. Og allri þessari
þróun á að hraða, ef ríkisstjórn fslands
sýnir hernámsveldinu sömu undirgefni og
hingað til.
2. Bandaríkjavaldið lætur þjóna sína hér
vinna að því að forheimskva og blinda ís-
lendinga, svo að þeir sjái ekki hvert stefnt
er og hvílík tortímingarhætta er leidd yfir
þjóðina. Petta erlenda hervald, hið vold-
ugasta og frekasta í heimi, hefur með gíf-
urlegum mútum komið sér upp íslenskri
yfirstétt, sem lifir og stórgræðir á her-
námsvinnu fyrir innrásarherinn. Þessi
yfirstétt á yfir 1000 milljónir króna inn á
íslenskum bönkum, — skattfrjálst og
með háum vöxtum, — auk bygginga sem
„Watergate" og líklega drjúga dollara-
eign erlendis.
Samtímis því sem þannig er risin upp
ríkasta yfirstétt, sem verið hefur á íslandi
— og er í þjónsafstöðu við erlent vald og
hefur gífurlegt vald yfir fjölmiðlum, —
hefur svo fátæktinni verið komið á aftur,
laun jafnvel verið lækkuð með bráða-
birgðalögum um einn þriðjung. — Þeirri
fátækt, sem íslensk alþýða bjó við í þús-
18