Réttur - 01.01.1987, Page 39
Á hernaðar- og
stóriðj u-samsteypu
Bandaríkjanna að takast
að þurrka burt
mannkynið af jörðinni?
Það var Eisenhower Bandaríkjaforseti, sem fyrir aldarfjórðungi, í kveðjuræðu
til þjóðar sinnar, er hann lét af embætti forseta 1961, varaði þjóð sína við því að
upp væri risin í landi hennar geigvænleg hernaðar- og stóriðju-samsteypa, sem
ógnaði öllu lýðræði landsins og gæti orðið allri veröld hættulegt, ef það fengi að
eflast stórum og ná undirtökum í þjóðlífinu.
Síðan hefur í kringum þessa samsteypu
risið upp ægilegasta auðvald, sem Banda-
ríkin hafa kynnst og sölsað undir sig æ
meira vald. Núverandi forseti, Ronald
Reagan, er sem hlýðinn þjónn í greipum
þess. Aðalaðsetur þessa auðvalds er nú í
Kaliforníu og er það orðið voldugra hinu
forna auðvaldi Austurstrandarinnar.
Þetta auðdrottnaskrýmsli teygir sig til
annarra landa og innlimar ekki aðeins
skotstaði eins og Island í árásarundirbún-
inginn heldur og erlend stóriðjufyrirtæki
hergagnaframleiðslunnar í auðhring sinn.
Vopnaframleiðendur Vestur-Þýskalands,
Englands og annarra auðvaldslanda gína
við gróðavoninni og hyggja sem Krupp &
Co. fyrrum á tímum Hitlerss gott til glóð-
arinnar að gersigra verkalýðinn og þurrka
út Sovétríkin. — Við vitum hvernig þá
fór.
En nú er meiri hætta á ferðum: út-
þurrkun mannkyns í vitfyrrtu árásarstríði
stríðsgróðavaldsins í Bandaríkjunum á
Sovétríkin, sem geta svarað fyrir sig og
tekið á móti þessum verkfærum dauðans.
Hvað sögðu bandarísku vísinda-
mennirnir, sem rannsökuðu áhrif kjarn-
orkusprengjunnar á lífið á eyju einni í
Kyrrahafi, þar sem tilraun hafði verið
gerð með atomvopn?
Allt var dautt, dýr og plöntur, — og
menn, ef þeir hefðu verið þar. — En það
skreið ein feit og bústin rotta upp úr holu
sinni, djúpt í jarðveginum. Og einum vís-
indamanninum, sem hugsaði um hvað
framtíðin kynni að bera í skauti sér, varð
að orði:
„Eiga þetta að verða erfíngjar okkar
mannanna á jarðríki?“
Vilt þú vinna að því?
39