Réttur - 01.08.1988, Page 9
ströndinni, til aö fullkomna níðingsverk-
ið, ef Pinochet skyldi mistakast.
I 7 ár réðst ríkasta land heimsins,
Bandaríkin, á eitt fátækasta land verald-
ar, Vietnam, dengdi yfir það kjarnorku-
kúlum, eyðilagði akra þess með eitri og
hugðist þannig geta brotið þetta land
undir sig. En það mistókst: bandaríski
herinn varð að flýja — með leppa sína
flesta, en skilja aðra landaráðamenn
eftir. — Hið gereydda, fátæka Suður-
Vietnam fékk með hetjubaráttu sinni
frelsi til að byggja upp sósíalisma í landi
sínu — á mörgum áratugum.
Pannig reynir auðvald Bandaríkjanna
og Evrópu með grimmdarverkum sínum
að hindra frjálsa þróun þeirra landa til
sósíalisma, sem á þingræðislegan hátt
hafa skapað frumskilyrði fyrir þróun
hans.
Lærdómurinn er: fyrst og fremst verður
sú alþýða, er nær völdum í landi sínu og
vill þróa það sér í hag, að vera nógu
sterkt vald til að hindra auðvaldsríkin í að
steypa alþýðuvöldum með hervaldi, — og
við vitum að auðvaldsríki heims eru um
leið voldug, mestu herveldi heims, — að
Sovétríkjunum undateknum.
Valdið í höndum alþýðu, — nógu
sterkt til að verjast blóðhundum auð-
valdsins, — er fyrsta skilyrðið til að geta
komið á sósíalisma.
Tekst auðvaldinu að eyðileggja
jörðina og útrýma mannkyninu,
áður en sósíalisminn sigrar?
Enn er auðvaldið stcrkasta valdið á
jörðinni — og um leið skeytingarlaust um
allar aðgerðir sínar, ef þær aðeins færa
því vald og auð.
En hvcrnig er þetta auðvald að fara
með jörðina? Eigum við mennirnir ekki á
hættu að það eyðileggi öll lífsskilyrði
mannanna?
Athugum hvað yfir vofir:
1. Kjarnorkudauði. Kjarnorkusprengj-
ur eru nægar til á jörðinni, til að drepa
hvert mannsbarn sex sinnum. — Það er
reynt af hálfu sósíalismans að fá auðvalds-
ríkin til samninga um útrýmingu kjarn-
orkusprengjanna. — Það gengur hægt. —
Og þó var þetta einmitt tillagan, sem
Stimson, hermálaráðherra Roosevelts,
gerði á síðasta fundi sínum: að Bandarík-
in — eftir kjarnorkuárásina á Hiroshima
og Nagasaki — afhentu Sovétríkjunum
leyndarmálið og semdu við þau um að
hvorugt þeirra byggi til slíkar sprengjur
framar. Hann hafði meirihluta fyrir þess-
ari tillögu á síðasta ráðherrafundinum —
en síðan tóku vopnaframleiðendur völdin
og gróðaþorstinn fékk þá til að framleiða
síðan þau heljarvopn, sem ógna tilveru
mannkynsins.
Og enn tregðast þessir skammsýnu og
gróðafíknu valdhafar við að semja við
Sovétríkin um að tryggja líf mannkyns-
ins.
2. Eiturbirgðirnar, sem safnað hefur
verið saman til að nota í hernaði, nægja
til að drepa allt mannkynið. Samt fást
ekki enn samningar um að eyðileggja
þær. — Gróðinn hjá auðvaldsherrunum
er enn tregðan, þó líf mannkynsins liggi
við.
3. Mengunin, sem stafar af allskonar
framleiðslu og felst í fjölda afurða, er
þegar farin að drepa eða gereyða lífi á
fjölmörgum stöðum jarðarinnar. Við vit-
um hvernig farið er um fiskinn í Eystra-
salti og víðar, — hvernig eitraður úrgang-
ur frá verksmiðjum eyðileggur sjóinn á
stórum svæöum, hvernig útblástur drep-
andi lofts frá verksmiðjum eyðileggur
gróðurinn: viö þurfum ekki nema sjá
105