Réttur


Réttur - 01.08.1988, Page 11

Réttur - 01.08.1988, Page 11
aðeins þeir sem boðuðu sósíalismann í sambandi við kristna trú sína, allt i'rá Jesú frá Nasaret til Thomas Múnzers og Thomas Moore, heldur og stjórnmála- leiðtogar, sem afturhaldið óttaðist. Og þá voru það ekki aðeins kommúnistarnir sem létu lífið, myrtir af erindrekum auþ- valdsins, — svo sem Karl Liebknecht, Rosa Luxemburg, Che Guevara og þús- undir annarra, — heldur var auðvaldið og fljótt að grípa til morðvopnsins, ef það óttaðist að róttækir borgarar væru að snúast gegn því scm hugsjónamenn, svo scm þeir Kennedy-bræður, John forseti og Kobert dómsmálaráðherra, Martin Luther King og máske líka forsætisráð- herra Svía Olof Palme. CIA, — leyni- þjónusta Bandaríkjanna, hefur sínar að- ferðir og spyr engan um leyfi. Við mennirnir höfum vafalaust nokkra áratugi til að hindra eyðingu mannkyns, en við verðum að nota þá, — líka til að gera þessa jörð að unaðsreit — fyrir alla. Það er tími til kominn að jarðarbúar taki örlög sín í eigin liendur og bjargi mannlífinu á jöröinni. 107

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.