Réttur - 01.08.1988, Qupperneq 11
aðeins þeir sem boðuðu sósíalismann í
sambandi við kristna trú sína, allt i'rá Jesú
frá Nasaret til Thomas Múnzers og
Thomas Moore, heldur og stjórnmála-
leiðtogar, sem afturhaldið óttaðist. Og þá
voru það ekki aðeins kommúnistarnir
sem létu lífið, myrtir af erindrekum auþ-
valdsins, — svo sem Karl Liebknecht,
Rosa Luxemburg, Che Guevara og þús-
undir annarra, — heldur var auðvaldið og
fljótt að grípa til morðvopnsins, ef það
óttaðist að róttækir borgarar væru að
snúast gegn því scm hugsjónamenn, svo
scm þeir Kennedy-bræður, John forseti
og Kobert dómsmálaráðherra, Martin
Luther King og máske líka forsætisráð-
herra Svía Olof Palme. CIA, — leyni-
þjónusta Bandaríkjanna, hefur sínar að-
ferðir og spyr engan um leyfi.
Við mennirnir höfum vafalaust nokkra
áratugi til að hindra eyðingu mannkyns,
en við verðum að nota þá, — líka til að
gera þessa jörð að unaðsreit — fyrir alla.
Það er tími til kominn að jarðarbúar
taki örlög sín í eigin liendur og bjargi
mannlífinu á jöröinni.
107