Réttur


Réttur - 01.08.1988, Side 21

Réttur - 01.08.1988, Side 21
nokkur hætta af Rússum á þessum árum var ekkert annað en áróðursbragð til að fá skattborgarana til að samþykkja með fögnuði auknar fjárveitingar til vígbúnað- ar svo að risafyrirtækin gætu haldið áfram að raka til sín ofsagróða. Bandaríkin höfðu algera hernaðaryfir- burði í stríðslok, þó ekki væri af öðru en því að þá réðu þau ein yfir atómsprengj- unni. Næstu skref Bandaríkjanna voru að ná tengslum við ráðandi öfl í sem flestum löndum ineð því að fá þeim svolitla fjár- hagslega hlutdeild í hinu mikla alheims vígbúnaðarfyrirtæki. Stærsta skrefið í þá átt í Evrópu var svonefnd Marshall-að- stoð 1947-1949; en hún fólst í stuttu máli í því að bandarísk fyrirtæki gerðust hlut- hafar í evrópskum fyrirtækjum og réttu þau við eftir eyðileggingu stríðsins, en hlutu að sjálfsögðu sinn skerf, þegar hin endurreislu fyrirtæki fóru að skila arði. í kjölfar þessa var svo tekið að undir- búa stofnun hernaðarbandalaga í Evrópu, Miö-Asíu og Suðaustur-Asíu, þar sem Bandaríkin voru allstaðar í forustu, þótt þau væru ekki landfræðilegur hluti að neinu þessara svæða. Hlutverk þessara hernað- arbandalaga, sem auðvitað voru skýrð varnarbandalög, var í fyrsta lagi að greiða fyrir uppsetningu bandarískra herstöðva í löndum þeirra, en síðan myndi banda- ríski herinn tryggja ríkisstjórn viðkom- andi lands fyrir ytri og innri árás eins og það var kallað um leið og hann tryggði hagsmuni eigin auðhringa. Jarðvegurinn undirbúinn Marshallhjálpin kom til Islands á miðju ári 1948 sem nokkurs konar gjafafé. Þeg- ar nú á eitt lagðist hatramur áróður kalda stríðsins, yfirþyrmandi bandarískt efni í kvikmyndahúsum og öðrum skemmtun- ariðnaði, minnkandi atvinna og skömmt- un á ýmsum nauðsynjum, þá fór mörgum að finnast erfitt að lifa á þjóðerniskennd- inni. Það voru því æ fleiri en verktakar og kaupsýslumenn, sem litu vonaraugum til Bandaríkjanna. Það skipti einnig miklu máli í þessu sambandi að menn með þessu hugarfari náðu yfirráðum í Alþýðu- sambandi íslands haustið 1948 og héldu þeim næstu sex ár, svo ekki var þaðan neins andófs að vænta. Þannig var jarðvegurinn smám saman búinn undir inngöngu í Nató, sem svo seinna leiddi af sér nýja hersetu eftir aðeins tvö ár. En þá loks gátu íslenskir verktakar og önnur fyrir- tæki fyrir alvöru farið að maka krókinn í soðpottum hersins. En langstærst þeirra fyrirtækja varð íslenskir aðalverktakar. Líklega hafa fæstir verið meðvitaðir um þetta samhengi hlutanna fyrir 40 árum. Skáld sjá það þó stundum eins og í skuggsjá. Þorsteinn Valdimarsson kvað á þessum tíma kvæðið: Vér föllum fram Sjá herra þessa heims má enginn nefna við herradóm —þvíslík er mildin hans, að heit sín ei hann hefur við að efna, þá hinstu von og athvarf smælingjans. Hverlítil þjóð, semforsjá hans vill hlíta, ei hefur við að prísa drottinn þann og öllum sínum barnagullum grýta og gerast stór í sama anda og hann. Hans sprengjur ráða ríkjum eilífs friðar; lians rausn á ei sinn líka í glœsibrag. Hann sáir dollurum í akur yðar og uppsker: yðar líf, einn sólskinsdag. Það var annars fremur hljótt um undir- búning að stofnun Atlantshafsbandalags- ins í flestum íslenskum blöðum fram und- ir árslok 1948 og hefði dagblaðið Þjóðvilj- inn ekki verið til, mætti naumast sjá að ís- 117

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.