Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 23
Austurvöll milli kl. 12 og 1 til þess með
því að sýna að þeir vilji að Alþingi hafi
starfsfrið.“
Fundurinn við Miðbæjarskólann var
örstuttur, en þar var einróma samþykkt
ályktun, þar sem skorað var á Alþingi að
taka ekki lokaákvörðun um málið án þess
að leitaö væri álits þjóðarinnar í almennri
atkvæðagreiðslu. Fundarmenn héldu síð-
an á Austurvöll.
Fylgcl
eftir Guðtnwui Böðvarsson
Korndu, litli Ijúfur,
labbi, pabba stúfur,
látum draumsins dúfur
dvelja inni utn sinn,
— heiður er himinninn.
Blærinn faðmar bœinn,
býður út í daginn.
Komdu kalli minn.
Glitrar grund og vangur,
glóir sund og drangur.
Litli ferðalangur
láttu vakna nú
þína tryggð og trú.
— Lind í lautu streymir,
lyng á heiði dreymir,
— þetta land átt þú.
Hér bjó afi og amtna
eins og pabbi og mamma.
Eina ævi og skamma
eignast hver um sig,
— stundum þröngan stig.
En þú átt að muna,
alla tilveruna,
að þetta land á þig.
Ef að illar vættir
inn um myrkragættir
bjóða svika sættir,
svo setn löngum ber
við í heimi hér,
þá er ei þörf að velja:
Þú mátt aldrei selja
það úr hendi þér.
Göngum langar leiðir,
landið faðminn breiðir.
Allar götur greiðir
gatnla landið mitt,
sýnir hjarta sitt.
Mundu, mötnmu Ijúfur,
mundu, pabba stúfur,
að þetta er landið þitt.
Viðtal Ragnars Stefánssonar
við þrjá „sakamenn“
Ragnar: Þetta er þátturinn Af vettvangi
baráttunnar, atburðirnir 30. mars 1949.
Við heyrðum áðan inngangspistil Árna
Björnssonar um aðdraganda þessara at-
burða. Hér eru staddir hjá mér Jón Múli
Árnason, Stefán Ögmundsson, Ólafur
Jensson og Dýrleif Bjarnadóttir. Við ætl-
um að ræða við þessa fyrstnefndu þre-
menninga, sem allir voru þátttakendur í
atburðum þessa dags og hlutu fyrir þátt-
töku sína harða dóma. Við ætlum að
rabba við þá nokkra stund.
Það mátti skilja á pistli Árna hér áðan,
að íslandi hefði verið troðið inn í Nató
með leiftursókn og fólk hefði ekki átt von
á því að þetta myndi ske svona hratt.
Kom þetta ykkur á óvart?
Jón Múli: Það mátti nú skilja hitt líka,
að frá því að Keflavíkursamningurinn var
gerður, þá er látlaus áróður fyrir þessu,
kannski ekki mjög hávær, en á bak við
tjöldin er landsölumannskapurinn allur
með sinn áróður í gangi. Það er komið á
þriðja ár loksins þegar íslandi er troðið
119