Réttur - 01.08.1988, Side 24
inn í Nató. Pað er búið að undirbúa þetta
rækilega. Kapítalistarnir, þeir kunna nú
sitt fag, að undirbúa svona hluti. Þetta
var að vísu leiftursókn, en þessi leiftur-
sókn tók á þriðja ár, alveg frá stjórnarslit-
um 1946, þangað til gengið er í Nató
1949.
Ragnar: Og voru það þessir efnahags-
legu þættir og peningahagsmunir sem
réðu þessu fyrst og fremst að ykkar mati?
Jón Múli: Það kom nú eiginlega fram í
þætti Arna Björnssonar ágætum, áðan,
að þetta hefði komið flestum að óvörum.
Það kom ekkert að óvörum því fólki sem
hafði einhverja hugmynd um alþjóða-
kapítalismann. Hann var ekki eitthvað
nýtt, sem fundið var upp eftir seinni
heimsstyrjöld. Alþjóðakapítalistarnir voru
sameinaðir löngu fyrr um víða veröld.
Það þurfti ekkert að hvetja þá til að
Kagnar Slcfúnsson
standa saman. Þeir stóðu alltaf saman
eins og þeir gera enn þann dag í dag.
Kóka Kóla gaf tóninn
Ólafur: Það er í takt við það sem Árni
sagði, að við höfðum á stríðsárunum orð-
ið að stunda viðskipti og verslunarsam-
bönd við Bandaríkin. Þau styrktust ákaf-
lega mikið. Og þar voru margir stórkaup-
menn. Viö minnumst lengi dæmisins um
Kókakóla-Björn. Kókakóla var eitt af
þessum vörum, sem gaf svona tóninn um
þaö hvað sambandið við Bandaríkja-
menn væri orðið sterkt á verslunarsvið-
inu, enda var Vísir, sem einkum var
málgagn kaupmannastéttarinnar ákaflega
sterkt í áróðrinum fyrir nánara samstarfi
við Bandaríkin og vildi allt fyrir þau gera
til þess að viðhalda þessum viðskiptum.
Það er nokkurnveginn á hreinu að við
vorum alltaf með á því að það voru við-
skiptahagsmunir, sem skiptu miklu máli
til þess að viðhalda þessu sambandi við
Bandaríkin.
Ragnar: Það kemur fram hjá Árna
líka, að það eru skáld og menntamenn,
sem hafa sig mjög í frammi í baráttunni
gegn hernum. En Sósíalistaflokkurinn,
hafði hann sig ekki mikið í frammi á ár-
unum þarna á undan?
Stefán: Sósíalistaflokkurinn og verka-
lýðshreyfingin stóðu að ákaflega sterku
andófi gegn þeim aðgerðum að koma ís-
landi í Nató. Og það er óhætt að bæta því
við að þá voru skáld og menntamenn
mjög samstiga verkalýðshreyfingunni. En
hún átti sinn stóra þátt í þessari baráttu
og hún geymdi enn með sér kunnáttuna
að verjast þessum áróðri auðvaldsins,
sem var mikill eins og Jón Múli tók fram.
Hún geymdi með sér þann móð, sem lnin
náði upp gegn Keflavíkusamningnum.
Annars er það augljóst mál, að það er
120