Réttur


Réttur - 01.08.1988, Qupperneq 26

Réttur - 01.08.1988, Qupperneq 26
að lesa vísu eftir Jón Rafnsson. Jón Rafnsson var náttúrlega framarlega í verkalýðshreyfingunni og baráttusveit hennar alla tíð. Sigursveinn D. Kristins- son samdi ágætt lag við þetta Ijóð, sem verkalýðskórinn söng á sínum tíma og fór víða um landið í hljómleikaferðir til að syngja m.a. þessar vísur Jóns. En það var fólk úr öðrum hópum, sem var að yrkja á svipaðan hátt. Ég var uppalinn svona ná- lægt því, sem var innsti hringur íhaldsins á þeim tíma. Árni frá Múla var svo sann- arlega íhaldsmaður, en hann þekkti sitt fólk. Löngu áður þá var hann að yrkja um svona mannskap. Hann lýkur kvæði um stjórnendur á Undralandi, sem hann kall- aði svo löngu áður en kemur að Keflavík- ursammningi eða inngöngu í Nató. Hann lýkur kvæði sínu svona: Peir tala þetta og taka völdin, tafarlaust í hendur sér Ólafur Jensson bralla síðan bak við tjöldin býsna margt, er húma fer. Og syngja tíðum seint á kvöldin, þá sonarástin dofnuð er: Við skulum nota völdin römmu, við skulum bara selja mömmu. Hann var ekki úr verkalýðshreyfingunni, þessi boðskapur. Þetta var bara úr innsta hring íhaldsins komið. Ragnar: Það stendur í dreifibréfinu um fundinn við Miðbæjarskólann, að þarna hefðu kommúnistar boðað til fundar án þess að leita leyfis. Hverjir voru þessir kommúnistar? Stefán: Það hafa sennilega verið Dagsbrún og Fulltrúaráð verkalýðsfélag- anna. En ég veit aö þarna var um ósann- indi að ræða. Það var leitað leyfis hjá lög- reglustjóra fyrir þessum fundi, og hann gerði hvorki að játa né neita og því var fundurinn haldinn. Og þetta var nú ckk- ert stór fundur, því það var stuttur tími til boðunar. En hann var ákaflega hljóðlátur og prúður verð ég að segja. Það voru eng- ir æsingamenn þar á ferðinni. Guðmund- ur Vigfússon starfsmaður fulltrúaráðsins setti fundinn og ég hélt þar stutta ræðu og hún var í samræmi við þá ályktun, sem samþykkt var og flutt var Alþingi. Við vorum kjörnir til þess tveir, sá þriðji var niðri á Alþingi, það var Sigurður Guðna- son. Við Björn Bjarnason fórum niður í þing og svo kom fólkið á eftir, sem verið hafði á fundinum. Ég man að á móti okk- ur kom Lárus Salómonsson og vildi greiða okkur leiðina í Alþingi. Hann bauð okkur aö fara bakdyramegin, en ég sagði við Lárus: Þetta er opinbert erindi og við förum fordyris og þá lét hann sig nú hafa það að reyna að ýta fólki frá svo við kæmumst að aðaldyrunum. Þá báðum við um að fá að tala við forustumenn 122

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.