Réttur


Réttur - 01.08.1988, Qupperneq 29

Réttur - 01.08.1988, Qupperneq 29
Thors. Hann brýndi menn að standa á verði gegn yfirvofandi árás kommúnista á Alþingishúsið. Mig minnir að hinn hafi heitið Ólafur líka. Hann fékk það hlut- verk að undirbúa félagana undir að verja Alþingishúsið fyrir árás. Ragnar: Og þitt hlutverk var þá að standa fyrir utan Alþingishúsið og hafa á öllu gát? Jón B.: Mönnum var skipt í ákveðna flokka og allir voru boðaðir með símhring- ingum. Það var símakeðja. Ég held ég hafi verið í hópi, sem hét C eitthvað. Þeg- ar hringingin kom til mín átti þingfundur að hefjast eftir klukkustund eða minna. Ég hygg að þessu liði hafi verið saman safnað á Austurvöll á tveim til þrem tímum. Auðvitað get ég ekki fullyrt þetta, því ég var greinilega í þeim hópi, sem síðast var boðaður, enda neðst í virð- ingarstiga. Ragnar: Hvað voruð þið margir, sem stóðuð þarna fyrir utan? Jón B.: Það veit ég ekki, en held þeir hafi aldrei verið færri en fjögur til fimm hundruð. Ragnar: En úrvalssveitin er semsagt inni í Alþingishúsinu sjálfu, vopnuð kylfum? .Jón B.: Já, og mikil leynd hvíldi yfir. A.m.k. var svo, þegar þessi hópur ruddist fram að fleiri en ég stóðu agndofa. Við vissum ekkert um þetta lið. Ragnar: En þarna á fundinum á undan, þá hai'ið þið verið sannfærðir um það af þessum mönnum, að þessir svokölluðu kommúnistar ætluðu að ráðast á þinghús- ið? Jón B.: Já, já. Það er nú þannig að bak- grunnur þessara atburða er gleymdur öðrum en gömlum mönnum. Eftir lýð- veldistökuna var sjálfstæðishugur mikill. Svo kom þessi kaldastríðsnæðingur og eftir járntjaldsræðuna hjá Churchill gamla var kommúnistagrýlan mögnuð upp. Ég sem margir ungir menn hélt að þeir sem skipuðu sér undir fálkamerki Sjálfstæðisflokksins væru arftakar þess, sefn upphaflega lét bera það, Jóns Lofts- sonar, og stóð á móti erlendri ásælni. Upphaf átakanna Ragnar: En þessi úrvalssveit, sem er þarna inni í þinghúsinu, hún ryðst allt í einu út úr húsinu. Geturðu kannski lýst því eitthvað? Jón B.: Já. Ákaflega fjölmenn fylking kom inn á Austurvöll úr göngu mikilli, sem hafði verið skipulögð og auglýst. Formenn borgaralegu flokkanna höfðu og hvatt fólk til þess að koma- á Austur- völl til þess að verja þinghúsið fyrir þess- ari árásarsveit sem svo var auglýst. En þegar fólkið kom og skipaði sér á völlinn Jón Bödvarsson 125

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.