Réttur - 01.08.1988, Síða 41
ar, sem verið hefur í gangi mestan tímann
síðan.
Jón Múli: Ekki var hún upphafið, það
var alltaf baráttuhreyfing í gangi, en
áróðurinn var svo stífur fyrir réttlætingu
þessarar landsölu, þessara landráða, að
það var allt undirlagt einhvernveginn við
hliðina á þessu. Það voru íþróttafélögin,
þau voru farin að keppa við hermenn og
það voru gerðir samningar, t.d. Félags ís-
lenskra hljóðfæraleikara við heryfirvöld,
að hljóðfæraleikarar fengju að spila á
vellinum. Synfóníuhljómsveitin fór suður
á völl að spila fyrir herinn. Áskriftarkort
synfóníuhljómsveitarinnar núna eru seld
á vellinum. Það var reynt að gera allt að
einni sameiginlegri bendu, þennan her,
sem heitir að vísu varnarlið hjá þeim. Það
var allt í þessum dúr, og um skeið var far-
ið að skipuleggja skemmtiferðir félaga
suður á völl til þess að sjá herstöðina og
drekka kaffi á veitingastöðum hersins.
Fyrir nú utan það, að kanaútvarpinu var
dembt yfir, svo og sjónvarpinu og allt í
nafni frelsis. íslendingar eru frjálsir
menn, þeir vilja hafa sinn her, sinn amer-
íska her og sitt ameríska útvarp og sitt
ameríska sjónvarp. Það var ekki svo lítill
bardagi og þrek sem fór í það að stoppa
kanasjónvarpið. Það var ekki hægt fyrr
en ríkisútvarpið kom með sitt sjónvarp.
Og allt þjóðlífið undirlagt af amerískum
áhrifum, sem og allt í okkar menningar-
lífi, bíóin yfirfull af amerískum áróðurs-
myndum, allt reyfararuslið, sem yfir okkur
dundi, allur áróðurinnn í borgarapress-
unni sem og ríkisútvarpinu, fyrir ágæti
kanans á allt, og kynt undir öllu með
kommúnistahatri og rússaníði sem aldrei
verður neitt lát á. Þfö þurfið ekki annað
en að fletta blöðunum í dag til að sjá það.
Ragnar: Við þurfum nú að fara að
stytta þennan þátt. En eru nokkur skila-
boð íil þeirra, sem berjast gegn her og
Nató, sem þið viljið koma frá ykkur í ör-
stuttu máli?
Stefán: Ég vildi bara segja það og biðja
fólk að muna það, að íslenska hernámið
er orðið ein samofin keðja hernáms og
gróða, þar senr auðstéttin skiptir mútu-
gjöfunum á milli sín, a.m.k. allir þeir,
sem styðja núverandi ríkisstjórn. Þetta
hefur ekki lítið að segja og það er að
verða sífellt meiri ógn fyrir íslendinga og
ísland, hvernig hernámsgróðanum er
dælt inn í landið, og stöðugt tekin fyrir
fleiri og fleiri verkefni til þess að byggja
upp herstöðvarnar, sem menn sækjast svo
eftir að vinna að, til þess að afla sér fjár.
Jón Múli: Ég vildi stinga upp á því, að
við lykjum þessunr þætti okkar í dag á
þessum orðum Stefáns. Ég þakka þér
kærlega fyrir.
Úr Sóleyjarkvœði
Hermdu mér Pjóðunn Pjóðansdóttir,
vísust af Völum.
Ætlarðu að lifa alla tíð
ambátt í feigðarsölum
á blóðkrónum einum
og betlidölum.
Er ekki betra að ganga
í ósýnilegan rann,
bera fagnandi þann,
sem brúðurin heitast ann
út í vorið á veginum
og vekja hann.
Ragnar: Núna síðast heyrðum við úr
Sóleyjarkvæði Jóhannesar úr Kötlum við
lag Péturs Pálssonar.
Ég þakka þátttakendum þessa þáttar,
ekki síst Stefáni Ögmundssyni, Jóni Múla
Árnasyni og Ólafi Jenssyni. Þættinum Af
vettvangi baráttunnar er lokið í dag.
137