Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 42
Morðhundarnir
í Chile minnast 15 ára
blóðstjórnar sinnar
Pinochet og morðhundar hans minnast þess nú að hafa pínt og misþyrmt al-
þýðunni í Chile og myrt marga af foringjum hennar. Það eru liðin 15 ár síðan
þessir fasistar brutust til valda í Chile, steyptu lýðræðisstjórn Allendes og myrtu
hann sjálfan og fjöldann af fylgismönnum hans.
Pablo Neruda, Nóbelsverðlaunaþjóðskáldið, dó er þessar skelfingar gengu yfir,
eftir að fasistarnir höfðu ráðist á hús hans og brennt bækur hans. Líkkista skálds-
ins stóð á gólfínu — og eftir að hann var jarðaður, — þótt fylkingar fasista væru
beggja megin götunnar, — safnaðist mannfjöldinn saman við gröfína, bauð land-
ráðalýðnum byrginn og söng „Internationalinn“ til að kveðja skáldhetju sína.
Fyrir utan höfnina í Santiago biðu
bandarísk herskip, reiðubúin að grípa inn
í og fullkomna blóðbaðið, ef fasistaher
Pinochets tækist ekki að fremja morðin.
— En það tókst of vel og vikum saman
voru þúsund róttækra Chilebúa geymdar
á íþróttavelli borgarinnar og drepnir
smásaman.
Bandaríkjastjórn reynir nú að þvo sig
sem mest af þessum glæpum. Það þýðir
lítið fyrir hana, því einmitt á þessum
árum stóðu erindrekar hennar að morð-
um á alþýðuforingjum víða um heim.
Þannig var einmitt Amilar Cabral, besti
leiðtogi afríkanska sjálfstæðisfiokksins í
Guineu og Grænhöfðaeyjum, myrtur í
janúar 1973 af leigumorðingjaher frá
Portugal, — og undarlegt er ef Kanarnir
hafa ekki samþykkt það morð. Þeir stóðu
þá enn í blóðugri árás sinni á frelsissveitir
Vietnam.
Undirbúningur bandarísku valdaklík-
unnar að gagnbyltingunni í Chile hefur
Pablo Ncruda.
138