Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 8
 11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR ÖPUNARÞ NÝSKÖ ÞING Nýsköpunarþing Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Útfl utningsráðs verður haldið fi mmtudaginn 12. mars nk. kl. 8.00–10.00 á Grand Hótel Reykjavík. Á Nýsköpunarþinginu verður kastljósinu beint að opinni nýsköpun. Á þinginu verða veitt Nýsköpunarverðlaun fyrir árið 2009. Fundarstjóri Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands DAGSKRÁ Léttur morgunverður Ávarp Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra Nýsköpun með framtíðarsýn - leiðin út úr kreppu Guðjón Már Guðjónsson, Industria Opin nýsköpun í starfandi fyrirtæki – þörf á breyttu hugarfari Anna María Pétursdóttir, Vífi lfell Fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja Eggert Claessen, Frumtak Persónulegur stíll í alþjóðaumhverfi Steinunn Sigurðardóttir, hönnuður Tónlistaratriði Steindór Andersen, kvæðamaður Nýsköpunarverðlaunin fyrir árið 2009 afhent Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra Vinsamlega tilkynnið þátttöku: Rannís, s. 515 5800, rannis@rannis.is Nýsköpunarmiðstöð, s. 522 9000, nmi@nmi.is Útfl utningsráð, s. 511 4000 utfl utningsrad@utfl utningsrad.is OPIN NÝSKÖPUN DÓMSMÁL Lögmaður manns sem fékk dæmdar 250 þúsund króna bætur vegna ólöglegs eftirfarar- búnaðar lögreglu segir það standa upp á yfirvöld að bæta öllum þeim skaðann sem hinu ólögmæta úrræði var beitt gegn. Úrræðið, staðsetningarbúnaður sem notaður er til að fylgjast með ferðum fólks, rataði í reglur frá ríkis-saksókn- ara um sérstak- ar rannsóknar- aðferðir lögreglu árið 1999. Það átti sér hins vegar ekki stoð í lögum fyrr en nú um síð- ustu áramót og var fram að því ólöglegt, sam- kvæmt úrskurði héraðsdóms, og raunar áður dóms Hæsta- réttar einnig. Lögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson segir að ætla verði að búnað- urinn hafi verið notaður sem almennt rann- sóknarúrræði hjá lögreglu frá 1999 hið minnsta. „Við erum því að tala um að búnaðurinn hefur verið not- aður með ólöglegum hætti, og brot- ið þannig á rétti íslenskra ríkis- borgara, í tæp tíu ár,“ segir hann. „Ég tel að það hvíli ótvíræð skylda á ríkisvaldinu að láta fara fram nákvæma könnun á því í hversu mörg skipti þessi ólögmæti eftirfararbúnaður hefur verið not- aður og að hverjum aðgerðirnar hafa beinst,“ segir Vilhjálmur. „Síðan þarf að upplýsa viðkom- andi um það að svona búnaður hafi verið notaður til að fylgjast með þeim og benda þeim á rétt þeirra til að sækja skaðabætur eða bjóða fram skaðabætur að fyrra bragði,“ segir hann. Nauð- synlegt sé að yfirvöld hafi frum- kvæði að því vegna þess að þeir sem hafa sætt eftirfylgninni viti ekki endilega af því sjálfir. Eiríkur Tómasson lagapróf- essor er ekki á sama máli og Vil- hjálmur. „Ég get ekki séð að það sé nokkur lagaskylda sem hvílir á ríkinu að gera þetta en auðvitað getur ríkið gert þetta ef það þykir rétt,“ segir hann. Ragna Árnadóttir dómsmála- ráðherra segist munu bíða með viðbrögð við málinu þar til ljóst verður hvort ríkislögmaður áfrýj- ar dómnum til Hæstaréttar. Stefán Eiríksson lögreglustjóri tekur í sama streng og Ragna, en bendir þó á að reglur ríkis- saksóknara um eftirfararbún- aðinn séu byggðar á niðurstöð- um skýrslu frá árinu 1999 sem unnin var af fulltrúum lögreglu- og ákæruvalds, auk Bjargar Thor- arensen, nú prófessors í stjórn- sýslurétti, og Atla Gíslasonar, nú þingmanns Vinstri grænna. Mat skýrsluhöfunda hafi verið að ekki þyrfti dómsúrskurð fyrir notkun eftirfararbúnaðar af þessu tagi, þótt héraðsdómur hafi nú komist að annarri niðurstöðu. stigur@frettabladid.is Allir sem fylgst var með fái miskabætur Lögmaður telur að ríkinu beri skylda til að hafa samband við og greiða öllum þeim bætur sem lögreglan fylgdist með á ólögmætan hátt síðustu tíu ár. Hér- aðsdómur er ósammála mati á búnaðinum sem fram kemur í skýrslu frá 1999. EIRÍKUR TÓMASSON VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON LÖGREGLAN AÐ STÖRFUM Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður telur að ríkisvald- inu sé skylt að kanna hversu oft eftirfararbúnaðurinn hefur verið notaður. Lögregla grunaði manninn um að tengjast smygli á fíkniefnum til landsins í póstsendingu. Hann hefur áður hlotið þunga dóma, meðal annars fyrir fíkniefnasmygl. Ákveðið var að festa eftirfararbúnað á bíl hans og fylgjast með ferðum hans. Hann fann búnaðinn og kærði. Héraðsdómur kemst að þeirri niðurstöðu að eftirlitið sé þess eðlis að dómsúrskurð þurfi fyrir því. Það hafi hins vegar verið ómögulegt fram til síðustu áramóta, þar sem dómari getur ekki veitt lögreglu heimild til aðgerða sem ekki er sérstaklega kveðið á um í lögum. Allt eftirlit af þessu tagi hafi þannig verið ólöglegt fram til síðustu áramóta. AÐDRAGANDI MÁLSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.